Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Vinátta og friður eða Ying og Yang

DSC00004 (1) Ying og Yang Gosi og Tító

Hve ég vildi óska að allir menn í heiminum ekki bara í landinu okkar væru eins góðir vinir eins og hann Tító minn og hann Gosi minn, sem hér lúra saman eins og þeir gera svo oft.

 

DSC00031 Tító á svölunum

það berast sífellt hræðilegar fréttir utan úr heimi, eins og t.d. frá Austurríki, þar sem hver hörmungaratburðurinn rekur annan. Mannvonskan virðist  oft ekki eiga sér nein takmörk.

Jarðskjálftar skekja Kína þar sem fólk liggur grafið undir rústum og á sér enga lífsvon og í Mjanmar eða Búrma voru nýlega hryllileg flóð þar sem tugþúsundir ef ekki hundruð þúsund manna létu lífið. 

Hér heima er allt á niðurleið, kreppan farin að segja til sín og fólki sagt upp störfum í tugatali. Lóðir sem fólk hefur keypt er skilað og óseldir bílar hrannast upp. 

Og borgarstjórnin okkar er í bullandi upplausn, því þar er hver höndin upp á móti annarri, enda hafa sjálfstæðismenn tapað miklu fylgi meðal borgarbúa.

En þó skein sólin í dag í Reykjavík og túlípanarnir úti í garði opnuðu krónur sínar mót sólinni, lífgjafa okkar allra. Hunangsflugurnar sveimuðu á milli þeirra á fullu við að safna hunangi og börnin léku sér  á hjólunum sínum og hrópuðu og kölluðu glaðlega sín á milli, á pólsku.  

 

Ég horfði á þau og hugsaði með mér, hve allt er breytingum undirorpið. það eru ekki nema svona rúmur áratugur síðan flestallir Íslendingar voru innbornir hér á landi. En í dag er mannflóran orðin litríkari. Börnin hér í hverfinu og fullorðna fólkið líka, er orðið alla vegana á litinn, hvítt, brúnt, gult og svart.  Og það heyrir til undantekninga að sjá litla glókolla að leik, hvað þá rauðhausa.

En mér er nokk sama hvernig fólk er á litinn, það er innrætið sem skiptir mestu máli en ekki hörundsliturinn og sjálf á ég þrjú  barnabörn sem eru asísk í móðurætt,. Ég sé þau bara alltof sjaldan og bráðum bætist meira að segja eitt barn við hjá þeirri fjölskyldu.
En svo á ég eitt barnabarna í viðbót, sonarson sem er ljóshærður og með þau bláustu augu sem ég hef  á ævi minni séð.,( fyrir utan augun hans Tíós.)  En öll barnabörnin mín standa samt hjarta mínu jafnnærri. 

Dóttir mín og tengdasonur sem fara utan á næstunni til þess að víkka sjóndeildarhringinn munu ekki gefa mér barnbörn næstu tvö árin sagði dóttir mín. Ég hugsa stundum hvort 'heilaþvottur' minn á henni þegar hún var lítil telpa hafi dugað svona vel eða hvort allt sem hún hefur gert sé alfarið frá henni sjálfri komið?
Ég innrætti henni  fyrst og fremst að mennta sig vel, fá sér góða vinnu, eignast eigið húsnæði og sjá heiminn og svo skyldi hún  fyrst þar á eftir,  fara að huga að barneignum. 

Allt hefur þetta gengið eftir hjá henni og nú er komið að því að búa í útlöndum. Svo eru þau líka að fara í sumar í tveggja vikna frí til Parísar. Þau fóru sniðuglega að því, þar sem þau hafa íbúaskipti við Parísarbúa. 

Já, allt gengur sinn vanagang í heiminum þrátt fyrir stríð og ógnaröld og ég er bráðum á leiðinni út í heim líka. þó að ekki fari ég  langt, aðeins til Danmerkur, en þangað er alltaf jafngaman að koma. Ég hef ekki áhyggjur af þeim Tító og Gosa á meðan, því börnin mín ætla að skiptast á um að koma til þeirra, (svo þarf auðvitað að vökva blómin mín á meðan líka.)


En fyrst og fremst munu kislingarnir mínir gæta hvors annars á meðan ég er í burtu, leika sér í blómskrúðinu á svölunum og kúra sig að hvor öðrum meðan þeir bíða þess að 'mamma' komi heim.

Ó hve það er góð tilfinning, að einhver muni sakna manns þegar maður skreppur frá í smátíma. 

 

 


Viskukornið

 

scan Vitrungurinn small

 Guðný Svava Strandberg.


Prom dress

**Dad makes prom dress out of

 

 

condoms**

 

About the time you thought

 

 

you had seen it all,

 

here's a 'safe sex' dress!

 

Pretty original,

 

 

to say the least…

 

!cid_E Prom dress


Bévítis herforingjastjórnin í Mjanmar

sem vill ekki að hjálp berist nauðstöddu fólki. Ég fékk tölvupóst frá Unicef í gær þar sem ég var beðin um að leggja fram minn skerf til hjálpar sem ég og gerði. En nú hefur herforingjastórnin gert öll hjálpargögn upptæk. Hvað er að þessum karlandsk....?  Ég vona samt að úr rætist og þeir létti banninu af svo nauðstatt fólkið fái einherja hjálp.
mbl.is SÞ stöðva flutning hjálpargagna til Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veistu það, - sonur minn?

Augu þín eru köld og full tortryggni, - sonur minn.

Veistu, að ég vildi aldrei gefa þér brjóst
og að ég vildi ekki hafa vögguna þína inni hjá mér
og að amma þín gekk þér fyrst í móðurstað?

Veistu það, - sonur minn?

Veistu, að ég grét mig í svefn á hverju kvöldi
og bað til Guðs að ég yrði þér betri móðir á morgun,
að ég hrópaði á Hann,
'hvað er að mér!' 'Hvers vegna er ég svona?'

Veistu, hve sektarkenndin nagar mig
og hversu sárt það er að þú viljir ekki tala við mig
og að ég fái ekki að umgangast barnabörnin mín?

Veistu það, - sonur minn?

Veistu, að ég er enn þá bara átta ára
og ég sit enn út´í horninu.
Lítil stúlka í hnipri,
skelfingu lostin,
heimurinn að hrynja.

Á veggnum, stór svartur skuggi
með útréttar vondar hendur.

Veistu það, - sonur minn?


Sýniárátta eða sönn ást?

Ég verð nú að viðurkenna það, að djúpt undir niðri hef ég aldrei skilið af hverju flestallir samkynhneigðir sem taka virkan þátt í gleðigöngunni,  á prömmunum, á Gay Pride þurfa endilega að vera hálfnaktir.

Ég hef ekkert á móti samkynhneigðum og fólk sem ég tel til vina minna er margt samkynhneigt eða bisexual, en er virkilega þörf á að sýna svona mikið af skrokknum á sér í þessari gleðigöngu?
Ekki elskum við bara með líkamanum, heldur sálinni líka.

Mér finnst samt gaman að horfa á gönguna þó að öll þessi hálfnekt hafi vakið upp þessa spurningu í huga mér. 


mbl.is Telur gleðigöngu samkynhneigðra sýniáráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænir fingur

Ég er með svo græna fingur,
að ég er að hugsa um
að taka af mér  afleggjara
áður en ég dey.


Hvers vegna Guð gaf okkur gæludýr

!cid_Þau passa börnin okkar

 Þau líta eftir börnunum okkar.

!cid_Þau líta eftir þeirm sem eru minni

 Þau líta eftir þeim sem eru minni máttar.

7 þau hugsa jákvætt

 Þau hugsa jákvætt.

6 Þau hjálpa þér þegar þú ert langt niðri

Þau hjálpa þér þegar þú ert langt niðri. 

!cid_9 Þau elska bangsana sína

þau elska bangsana sína. 

!cid_D2C12 þorsti

Þau eru til í að testa vatnið fyrir þig

Þausýna okkur hvernig maður á að slappa af .jpg 4

Þau sýna okkur hvernig á að slappa af. 

!cid_60 11 Og þau vita hvernær við þurfum á brosi að halda

Og öll vita þau hver nær við þurfum á brosi að halda. 


I´m in love, I´m in love, I´m in love!

Wiht this cat.

Þetta er ragdoll læða sem á heima í Svíþjóð. Litirnir og feldurinn minna mig á Tító minn. Ég ætla að eignast svona kisu þegar elsku Tító minn er allur, en hann verður alltaf slappari og slappari. Það eru tveir aðilar sem rækta þessa tegund katta hér á Íslandi, en ég veit ekki hvort þeir eru með þennan lit sem minnir mig svo á Tító. Ég hef séð einn sem heitir Xantos á Kynjakattasýingunni, en hann er því miður blár og hvítur. Svo veit ég um annan ræktanda sem á ragdoll  kisu með dökka grímu. En ég get beðið þar til þessi brúntóna og hvíti litur kemur til Íslands, því ég verð örugglega lengi að jafna mig eftir að Tító yfirgefur mig, svo á hann vonandi eitthvað eftir elsku vinurinn minn.

DSc  small Blitzabeth

DSC_0698_small Blitzabeth


Gullkorn úr ýmsum áttum og sumarblóm

 

scan0002 Sumarblóm

 

Mesta og torræðasta gáta mannanna er maðurinn sjálfur. Bæði hið ómálga barn sem rjálar við fingur sér, og hinn snjallasti vísindamaður, sem leiðir fram ný sannindi eru að leita lausnar á þeirri gátu.  (Pálmi Hannesson)

 

Andi mannsins er lampi frá Drottni. (Orðskviðir Salómons)

 

Ég hef aldrei hitt neinn, sem var til einskis nýtur. Hver maður býr yfir einhverju, ef hann fær tækifæri.( Henry Ford)

 

Guð heldur mest upp á venjulegt fólk. Það er þess vegna sem hann hefur gert svo marga þannig.( Abraham Lincoln) 

 

Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó er ekki einn þeirra gleymdur Guði. (Jesús Kristur)

 

Nú veit ég að sumarið sefur
í sál hvers einasta  manns.
Eitt einasta augnablik getur
brætt ísinn frá brjósti hans.

(Tómas Guðmundsson) 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband