Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, maí 2008

Sumariđ er gengiđ í garđ og ţrír mánuđir í ţjóđhátíđ

Ég hef veriđ ađ fylgjast međ býflugnadrottningu hér utan viđ húsiđ í nokkra daga. Hún er eins stór og kólibrífugl og ég held ađ  hún sé örugglega ađ leita sér ađ hentugum stađ fyrir búiđ sitt.
Ég horfđi á hana út um opinn gluggann síđdegis ţar sem hún sveimađi um garđinn, augljóslega í rannsóknarleiđangri. Hún var svo feit og falleg og mikiđ mega krútt.
Ég vona bara ađ hún finni sér hentugan bústađ til ađ verpa í og fjölga býflugnakyninu.

Ţađ hefur líka veriđ mikiđ af ţröstum undanfariđ hér í garđinum, ađ leita sér ađ ćti og mér sýnist ţeir vera búnir ađ para sig.
Ţegar sumar og sól gengur í garđ ţá tekur lífiđ og ástin völdin og ţá langar mig á Ţjóđhátíđ.

Á Ţjóđhátíđ svífur ástin yfir vötnunum eđa réttara sagt Daltjörninni, ţví allir eru svo ofbođslega rómantískir á Ţjóđhátíđ, ađ ţeir geta vart litiđ framan í nokkra manneskju án ţess ađ verđa yfir sig ástfangnir. 

Á Ţjóđhátíđ upplifa allir íbúar og gestir dalsins, hina dularfullu töfra ástarinnar og vináttunnar sem rćđur ríkjum í ţessari ljósumprýddu  undraveröld í  svo örfáa, en ţó svo ógleymanlega daga, sem geymast í minningunni eins og helgidómur, innst í hjartastađ.

Ţjóđhátíđ í Eyjum er einstök og ţó ég hafi víđa fariđ og margt séđ ţá hef ég aldrei upplifađ neitt sem kemst í hálfkvisti viđ mína heittelskuđu Ţjóđhátíđ.

 

Logandi bál 

Ást mín er logandi bál eins og brennan á ţjóđhátíđ í Eyjum.

 

Guđný Svava Strandberg. 

 

Ágústnótt 
 

Ţú undurhlýja ágústnótt
ég ennţá um ţađ dreymi
er inn í tjald
hann kom um kvöld
og kyssti mig í leyni.

ţó liđin séu ár og öld
heil eilífđ um ţađ bil
ţeim kossi
og hvarmaljósum tveim
gleymt kann ég ei né vil.

Ţví leiđir skildu á lífsins braut
hans lá um hafsins strauma
en ég sat heima og bađ og beiđ
í bríma fornra drauma.

 

Guđný Svava Strandberg. 


« Fyrri síđa

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband