Leita í fréttum mbl.is

Vinátta og friður eða Ying og Yang

DSC00004 (1) Ying og Yang Gosi og Tító

Hve ég vildi óska að allir menn í heiminum ekki bara í landinu okkar væru eins góðir vinir eins og hann Tító minn og hann Gosi minn, sem hér lúra saman eins og þeir gera svo oft.

 

DSC00031 Tító á svölunum

það berast sífellt hræðilegar fréttir utan úr heimi, eins og t.d. frá Austurríki, þar sem hver hörmungaratburðurinn rekur annan. Mannvonskan virðist  oft ekki eiga sér nein takmörk.

Jarðskjálftar skekja Kína þar sem fólk liggur grafið undir rústum og á sér enga lífsvon og í Mjanmar eða Búrma voru nýlega hryllileg flóð þar sem tugþúsundir ef ekki hundruð þúsund manna létu lífið. 

Hér heima er allt á niðurleið, kreppan farin að segja til sín og fólki sagt upp störfum í tugatali. Lóðir sem fólk hefur keypt er skilað og óseldir bílar hrannast upp. 

Og borgarstjórnin okkar er í bullandi upplausn, því þar er hver höndin upp á móti annarri, enda hafa sjálfstæðismenn tapað miklu fylgi meðal borgarbúa.

En þó skein sólin í dag í Reykjavík og túlípanarnir úti í garði opnuðu krónur sínar mót sólinni, lífgjafa okkar allra. Hunangsflugurnar sveimuðu á milli þeirra á fullu við að safna hunangi og börnin léku sér  á hjólunum sínum og hrópuðu og kölluðu glaðlega sín á milli, á pólsku.  

 

Ég horfði á þau og hugsaði með mér, hve allt er breytingum undirorpið. það eru ekki nema svona rúmur áratugur síðan flestallir Íslendingar voru innbornir hér á landi. En í dag er mannflóran orðin litríkari. Börnin hér í hverfinu og fullorðna fólkið líka, er orðið alla vegana á litinn, hvítt, brúnt, gult og svart.  Og það heyrir til undantekninga að sjá litla glókolla að leik, hvað þá rauðhausa.

En mér er nokk sama hvernig fólk er á litinn, það er innrætið sem skiptir mestu máli en ekki hörundsliturinn og sjálf á ég þrjú  barnabörn sem eru asísk í móðurætt,. Ég sé þau bara alltof sjaldan og bráðum bætist meira að segja eitt barn við hjá þeirri fjölskyldu.
En svo á ég eitt barnabarna í viðbót, sonarson sem er ljóshærður og með þau bláustu augu sem ég hef  á ævi minni séð.,( fyrir utan augun hans Tíós.)  En öll barnabörnin mín standa samt hjarta mínu jafnnærri. 

Dóttir mín og tengdasonur sem fara utan á næstunni til þess að víkka sjóndeildarhringinn munu ekki gefa mér barnbörn næstu tvö árin sagði dóttir mín. Ég hugsa stundum hvort 'heilaþvottur' minn á henni þegar hún var lítil telpa hafi dugað svona vel eða hvort allt sem hún hefur gert sé alfarið frá henni sjálfri komið?
Ég innrætti henni  fyrst og fremst að mennta sig vel, fá sér góða vinnu, eignast eigið húsnæði og sjá heiminn og svo skyldi hún  fyrst þar á eftir,  fara að huga að barneignum. 

Allt hefur þetta gengið eftir hjá henni og nú er komið að því að búa í útlöndum. Svo eru þau líka að fara í sumar í tveggja vikna frí til Parísar. Þau fóru sniðuglega að því, þar sem þau hafa íbúaskipti við Parísarbúa. 

Já, allt gengur sinn vanagang í heiminum þrátt fyrir stríð og ógnaröld og ég er bráðum á leiðinni út í heim líka. þó að ekki fari ég  langt, aðeins til Danmerkur, en þangað er alltaf jafngaman að koma. Ég hef ekki áhyggjur af þeim Tító og Gosa á meðan, því börnin mín ætla að skiptast á um að koma til þeirra, (svo þarf auðvitað að vökva blómin mín á meðan líka.)


En fyrst og fremst munu kislingarnir mínir gæta hvors annars á meðan ég er í burtu, leika sér í blómskrúðinu á svölunum og kúra sig að hvor öðrum meðan þeir bíða þess að 'mamma' komi heim.

Ó hve það er góð tilfinning, að einhver muni sakna manns þegar maður skreppur frá í smátíma. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

halkatla, 15.5.2008 kl. 01:13

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hugljúf færsla hjá þér.  Hafðu það gott elskan og knús og kisulinga.

Ásdís Sigurðardóttir, 15.5.2008 kl. 15:14

3 identicon

Kisurnar þínar eru ekki áhiggjufullar og mikið eru þeir góðir vinir.Já það þarf ekki mörg ár til að breita ímsu hjá okkur og það er sosum góðu lagi ,ef gott fólk blandasr okkur.Veð verðum bara að vera bjartsýn við höfum áður lent í kreppu og meikað það ,við vinnum á þessu líka.Það er skelfilegt að ekki skuli meiga aðstoða Kínverjana ,en þetta eru þeir sjálfir sem vilja það ekki.Verulega er gama þegar geingur vel hjá fólkinu manns ,og þetta er fólk frammtíðarinnar.

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 21:42

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Anna Karen

Takk, Ásdís mín og knús til þín og þinnar kisu.

Jón Reynir, það er satt hjá þér að við verðum að vera bjartsýn, þó að kreppa og hörmungar gangi yfir. En ég skil ekki afhverju Kínverjar vilja ekki hjálp, en þeir voru þó að fá hjálp frá Japönum.
Já,  það  er  gaman  þegar  vel  gengur  hjá  fólkinu  manns  og  börnin  manns eru  framtíðin.

Svava frá Strandbergi , 16.5.2008 kl. 00:24

5 identicon

Ég hef bara ekki áttað mig á því að Ísland er orðið fjölmenningar land. Það er leiðinlegt að heyra afturhaldsseggi bölsótast yfir því endalaust. Ég segi bara meira fólk meira fjör, þannig var það og er á þjóðhátíð en við megum ekki dæma alla útfrá örfáum einstaklingum við eigum að læra af þeim örfáu hvernig ekki á að gera. Fordómar eru sprottnir af fávisku og fáviska elur af sér ótta, óttinn skapar ástæðu til að reka mann á flótta. Ekki satt?

Diddi (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 00:26

6 Smámynd: www.zordis.com

París er yndisleg borg .....  á eftir að fara í brúðkaupsferðina mína en nú eru liðin tæp 3 ár síðan við lofuðum eilífðina.

... njóttu danmerkurferðarinnar þinnar en ég stefni á köben í ár ...

www.zordis.com, 16.5.2008 kl. 13:31

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Helvíti ertu góður! Dr. Jekyll. Já, það er fjör í Eyjum........

Svava frá Strandbergi , 16.5.2008 kl. 13:32

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ætlarðu þá í brúðkaupsferð til lKöben, Zordís? Anyway, skemmtu þér vel!

Svava frá Strandbergi , 16.5.2008 kl. 13:35

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.5.2008 kl. 13:56

10 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er svo mjúk og notaleg færsla, næstum eins og kisumal.

blessi þig á fallegu föstudagskvöldi

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 16.5.2008 kl. 17:25

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis Katla.

Blessi þig líka Steina. 

Svava frá Strandbergi , 16.5.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband