Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Breska heimsveldið?? Ha, ha, ha !!

Bretland er ekki neitt ands....  heimsveldi lengur. Þeirra tími er löngu liðinn undir lok þeir geta bara ekki horfst í augu við þann sára sannleika. Þess vegna vaða þeir uppi með yfrirráðastefnu sína eins og vandræða krakkagemlingur sem leggur  sér yngri börn í einelti.
Bretar hefðu aldrei dirfst að leggja svo harða atlögu að sér valdameiri og stærri þjóð eins og þeir gerðu Íslandi með hryðjuverkalögunum.

Þeir mega skammast sín og ættu skilið að vera 'teknir á teppið'  og rassskelltir af  Evrópudómsstólnum fyrir vikið.


mbl.is Breska heimsveldið hörfaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?

Ísland! farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir!
Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?
Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama
lýsir sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld.
Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,
himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.
Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu
austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit.
Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti;
ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt.
Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð.
Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði.
Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll.
Þá riðu hetjur um héröð og skrautbúin skip fyrir landi
flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim.
Það er svo bágt að standa’ í stað, og mönnunum munar
annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.
Hvað er þá orðið okkart starf í sex hundruð sumur?
Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?
Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,
himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart.
En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.
Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga
blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik.
Ó, þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir!
Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!

Jónas Hallgrímsson


mbl.is Landsbanki í slæmum félagsskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hún ekki bara að gefa stefnuljós??

Verst ef hún blikkar bæði með hægra og vinstra auganu. Það gæti ruglað fólk í ríminu.  Henni væri nú svo sem trúandi til þess þar sem hún er algjörlega úti að aka í vel flestum málum.
mbl.is Blikkandi Palin ruglar fólk í ríminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland???

Ég missti andlitið

og er í djúpum skít.

Vantar gefins grímu

og góðan drullusokk.


mbl.is Segja Ísland hafi orðið fyrir auðmýkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fussum svei! Danir með sína nýlendustefnu, myndu örugglega koma okkur til bjargar

ef þeir hefðu einhvern minnsta rökstuddan grun um að e.t.v. væri olíu að finna á landgrunni Íslands sem þeir gætu hugsanlega notið góðs af.
mbl.is Simbabve norðursins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það væri kannski ekki svo vitlaust

að hverfa aftur til miðalda hvað varðar viðurlög  við alvarlegu misferli eins og t.d. grófri fjárglæfrastarfsemi.  Ég er þá að tala um fjárglæfrastarfsemi sem bitnar ekki aðeins á okkar eigin þjóð heldur fjölda annarra þjóða líka. 

Við slíku misferli mætti til dæmis taka upp stjaksetningar á Austurvelli og til vara setja upp gapastokk á Arnarhóli.Devil

En við erum víst orðin svo siðmenntuð að slíkt yrði aldrei tekið á mál á okkar tímum. Enda er þetta  kannski meira  sagt í hálfkæringi,  en fullri alvöru af minni hálfu.
En mér datt þetta samt  í hug og þó hef ég alltaf reynt að bjarga frekar pöddum sem bera hættulega gerla inn til mín en að gera þeim mein. Halo


mbl.is Leita réttar umbjóðenda á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég veit ei hvað skal segja

en alla vega hefði ég ekki skilið 15 ára dóttur mína eftir í nokkra daga í umsjá ókunnungra aðila í erlendu landi.
mbl.is Umdeild móðir sökuð um vanrækslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband