Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

'Og hafið þetta til marks....

'Og hafið þetta til marks, þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.'maria_jesubarni_og_josef1.jpg

Tilveru streddirí

Hið innra er ég alveg tóm

en ytra nokkuð gisin.

Tilveran er torrætt hjóm

trosnuð, skökk og visin.


Taktu ekki lífið of nærri þér - Ljóð dagsins á Ljóð.is 18. nóvember

Taktu ekki lífið of nærri þér, það lifir það hvort sem er enginn af.

Gagg-rýnandinn

Síðastliðinn sunnudag frumsýndi íslenski Álftaflokkurinn, ballettinn Svanavatnið á Tjörninni.
Hlaut sýningin einróma lof áhorfenda.

Með eðlislægum þokka og óaðfinnanlegri tækni lyftu álftirnar verkinu í hæstu hæðir.
Stórsveit Reykjavíkur flutti tónlistina við verkið með tilþrifamiklu flauti strætisvagna og tærum klukknahljómi Dómkirkjunnar.

Síðast en ekki síst myndaði mengunin í miðborginni hina fullkomnu umgjörð um þetta sígilda meistarverk.


Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband