Leita í fréttum mbl.is

Óðurinn til rósarinnar

Ó munúðar perla,
ó merluð döggum rós,
ó munni hinn helgasti
heilagrar frúar,
er ást sína umlykur
og ávöxtinn ber,

- sem er Frelsarinn fæddur
á foldu hjá þér.

 

Svava frá Strandbergi.


Úrslit kosninganna

Ísland heldur að það sé viti sem lýsir upp heiminn. En ljós þess er aðeins týra á grútarlampa hálfvitanna.

Húsamyndir

 H

Húsamyndircimg4177.jpghus_gotu-11.jpg


Skilaboðin sem kærust eru mér

Skilaboðin sem mér þykir vænst um af öllum

Sæl og blessuð Svava,já það eru nokkrir svona dagar í minningunni,sem alls ekki gleymast.Fylgist alltaf með þér á ......


Höfnunarkennd á báða bóga 'Vertu svo endanlega sæl vinkona'

Endanlega sæl?

Já, endanlega, you don´t give a shit about me, Svava. I am just some name.

Ég sem var að hugsa um að bjóða þér heim um helgina, ekki til að skoða myndirnar mínar heldur til að kynnast manninum á bak við nafnið en það verður þá víst ekkert af því.


Mér er spurn?

Svava Frá Strandbergi
Klámsíða eða síður þar sem misnotkun á barnungum stúlkum viðgengst, tengist Facebook og vídeó þar sem lítil saklaus dýr eru brennd lifandi eru birt á Facebook!!!!!!!!! Hver er eiginlega stefna Facebook í þessum málum????? Mér er spurn?????
Like · · Share · 5 minutes ago ·

Sigþór Gretarsson and Alva Kristín Kristínarr like this.
Svava Frá Strandbergi Á kannski að loka á mig af því að ég dirfist að spyrja að þessu???
2 minutes ago · Like


Ágústnótt

Þú undurhlýja ágústnótt
ég ennþá um það dreymi
er inn í tjald þú komst um kvöld
og kysstir mig í leyni.

Þó liðin séu ár og öld,
heil eilífð um það bil.
Þeim kossi og hvarmaljósum tveim
gleymt kann ég ei né vil.

Því leiðir skildu á lífsins braut.
Þín lá um hafsins strauma.
En ég sat heima og bað og beið
í bríma fornra drauma.


Mary had a little lamb

Mary had a little lamb,
little lamb.
Its fleece was white as snow.
But she took it to the
slaughter house, slaughter house
and litla lambið dó.

G.Svava.


Mála myndir eftir pöntun af börnum, dýrum og fullorðnu fólki.

Blýantsteikning

Perla bloggið

Mynd af Cavalier tíkinni Perlu.

Tek að mér að teikna og mála myndir eftir góðum ljósmyndum af börnum, dýrum og fullorðnu fólki. Stærð myndar A3. Myndirnar eru afhentar í kartoni . Verð á teikningu 25 þúsund, málaðri mynd 28 þúsund kr. Upplýsingar í síma 5579721 og 6619721


Boðskapur kirkjunnar

Gef oss í dag
vort daglegt brauð
smurt með smávegis
sifjaspellum
og klípu
af kynferðislegu ofbeldi.

      Amen!


Næsta síða »

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband