Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Af hverju í fjáranum fæddist ég ekki á undan Pollock?


Ég hélt þegar ég var 14 ára að ég hefði fundið upp þá aðferð að hella málingunni á myndflötinn í stað þess að bera hana á með penslum.
En svona er lífið. Pollock var á undan.
(þó ég hefði á þessum tíma ekki hugmynd um að hann hefði verið til,  hvað þá að hann væri dauður.)
Þess vegna er ég ekki heimsfrægur listmálari sem getur selt myndirnar sínar fyrir milljarða, heldur aðeins fátæk myndlistarkona á Íslandi.
En teiknikennarinn minn var allavega hrifinn af fyrstu 'Pollock' myndinni minni. Hann hélt henni hátt á lofti, skoðaði hana í krók og kring og sagði svo andagtugur að 'þetta væri sannkalllað listaverk'
Myndin fór meira að segja á skólasýninguna um vorið.
Ég var rosalega montin af verkinu og fór aldrei langt frá því við opnunina. Ég hlakkaði svo til að heyra alla dást að þessarri dýrindis mynd minni.
En ég varð fyrir miklum vonbrigðum ALLIR sem létu svo lítið að berja listaverkið augum,  hristu annað hvort hausinn eða hlógu hæðnislega.
Ég var orðin ansi lítil í mér út af þessum óvæntu viðbrögðum svo þegar strák kvikindi nokkurt spurði mig  hreint út, hvort ég hefði málað þetta klessuverk, var mér allri lokið og lúskraðist heim háskælandi. 
Svona er að vera vitlaus manneskja á kolvitlausum stað. 


mbl.is Frekari efasemdir um umdeild Pollock-verk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísklumpur fyrirboði þess sem koma skal

Var þetta ekki bara ísmoli úr vínbolla einhvers guðanna? Líkast til eru þeir í svall og sorgarveislu vegna komandi Ragnaraka?  Því hér hleypur Andskotinn um meðal manna, eldrauður með horn og hala og æsir þá upp til voðaverka. 
Enda geisa hér stríð um veröld alla, flóðbylgjur hrifsa burt hundruð þúsunda manna, jörð skelfur, lofthiti hækkar uns hann verður eins og í Helvíti og allskonar ólifnaður viðgengst.

 

scan0007small


mbl.is Ísklumpur af himnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvískinningur

Guð minn góður, varð mér að orði þegar ég las þessa frétt.
 Ég skil ekki af hverju fuglgreyið fékk ekki að fara í friði þegar hún hætti að anda.
Nú á endilega að halda í henni lífinu allt fyrir duttlunga mannskepnunnar.
Ég er eiginlega bálreið út í þessa asna sem pína dýrið til að lifa til þess eins að friða eigin samvisku. Ætli það endi ekki með því að öndin sem átti að verða sunnudagasteik fær á endanum hátíðlega útför þar sem allir viðstaddir verða með vota hvarma. 


mbl.is Lífseigri önd bjargað úr nýrri hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STórMáL (Stjórnmál)

Aðalmálið er
að hafa eitthvað
til málanna
að leggja


og það er mitt
hjartans mál
að ekki verði
mikið mál
að leysa vandamál
varðandi málefni
og stefnumál
flokksins

eða máls málanna

- sem er bundið mál

því tók ég til máls
um mál málanna
meðal málsmetandi
manna

gerður var góður rómur
að máli mínu
enda er ég rómuð fyrir
að vera vel máli farin
og hafa sannfærandi
málróm

kvisast hefur út orðrómur
um það
að málið sé í höfn

enda er það málið


er það mál manna
að ég hafi alfarið
tekið málin í mínar hendur

og þar með leyst málið

- sem er mjög gott mál


Öndin sem elskaði freyðibað og sveskjugraut

Aumingja öndin hugsaði ég með mér þegar ég las þessa frétt en þó át ég stundum endur hér áður fyrr með góðri lyst.
Elsti bróðir minn var mikill skotveiðimaður og oft kom hann heim með fugla í jólamatinn, oftast gæsir og endur sem voru besti jólamatur sem ég hef nokkru sinni smakkað.
Einu sinni kom hann meira að segja heim með ungan svan sem hann hafði skotið í 'ógáti'.
Þó skömm sé frá að segja fannst mér svanurinn mesta lostætið að hinu fiðurfénu ólöstuðu.
En þó við værum fuglaætur í fjölskyldunni vorum við líka hinir mestu fuglavinir. Eitt sinn kom annar bróðir minn heim með olíublauta önd sem hann hreinsaði eftir bestu getu.
Öndin var mjög spræk eftir björgunina og fylgdi bróður mínum eftir þetta eins og væri hún hundur. Þegar hann fór svo í ærlegt freyðibað um kvöldið linnti hún ekki látum fyrr en hún fékk að fara ofan í baðkarið til hans.
Þetta var mjög kósý hjá þeim, hann lá ofan í vatninu en hún synti ofan á því og undi sér hið besta innan um sápukúlur og froðu.
Það var svo mikill hasar hjá þeim að þetta sjónarspil minnti mann einna helst á smábarn að leika sér alsælt í baði með gúmmíöndina sína. 
En mamma var ekki eins og hrifin af öndinni og við systkinin en þó bjó hún um hana eftir bestu getu fyrir nóttina í lokuðum pappakassa inni í eldhúsi.
En öndinni tókst að brjótast út úr prísundinni og finna sér huggulegri stað til að hvílast á.
Mamma hafði búið til sveskjugraut um kvöldið og sett skálina með grautnum út í eldhúsgluggann til þess að kæla hann yfir nóttina og einmitt þar í miðri grautarskálinni kom mamma að andarskömminni morgunin eftir.
Það er líklega óþarfi að taka það fram að við fengum engan sveskjugraut þann daginn en það lá við að mamma fengi því framgengt að það yrði andarsteik í staðinn.  


mbl.is Önd lifði byssuskot og tveggja daga dvöl í ísskáp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söngvakeppni

Svartklædd dís
með
silfurbelti
á fjólubláu skýi
stígur dans
flauelsmjúk leikmynd
himnalengja
lýsir með fjarstýrðum
stjörnukrans


hnyklar Bragi brýr
er brýnir raustu rós
rafurs roða ljós
rúskna sýnir drós



svartklædd dís
með silfurbelti
á fjólubláu skýi
stígur dans...

Okkur Tító og Gosa fannst akkúrat ekkert varið í lögin í söngvakeppninni í kvöld.
Þau voru nánast öll eins. Það var helst að síðasta lagið 'Húsin hafa augu' stæði aðeins upp úr meðalmennskunni enda komst það víst áfram ásamt einhverjum tveim öðrum sem við tókum ekkert sérstaklega eftir.
En ef framhaldið verður á þessa sömu leið nennum við ekki að horfa á þetta.
Það vantar allt púður í þetta stöff, það er ekki nógu Silvíu eða Páls Óskarslegt, sagði Tító.
Við Gosi vorum alveg sammála honum, enda vorum við öll alveg við það að sofna yfir þessu. scan0031


Nauðg-um-ferðarbrot

Það lá við að mér væri nauðgað í dag
þegar bíllinn fyrir aftan mig reyndi
að troða sér inn í púströrið hjá mér.

Lifandis skelfing er maður orðin þreyttur á umferðarþunganum í Reykjavík. Ég og vinkona mín vorum fyrir stuttu á leið heim úr vinnunni og það tók heilan klukkutíma að þokast bara eftir Hringbraut og Miklubraut.
Það lá við að bílarnir færu uppá hvern annan á leiðinni, svo hættulega stutt var á milli þeirra í endalausri röðinni, sem náði alla leið frá Háskólasvæðinu og upp í Breiðholt.
Er það kannski tóm steypa hjá mér að það kæmi betur út bæði fjárhagslega - og heilbrigðslega séð, ef járnbrautar eða sporvagnakerfi yrði komið á í Reykjavík, ég bara spyr?
Eitthvað hlýtur það alla vega að kosta okkur að þurfa sífellt að láta endurnýja malbikið á mestu umferðargötunum ár eftir ár því göturnar koma eins og gatasigti á hverju vori undan vetrinum.
Þær þola ekki allan þennan umferðarþunga.
Ég veit það ekki en mér finnst þetta vera eins og að pissa í skóinn sinn, eða þá einna líkast húsverkum sem aldrei taka enda og sem ég þoli alls ekki, að vera sífellt að malbika ofan á malbik.
Svo eru heldur ekki svo litlar framkvæmdirnar sem ráðist er í til þess að allir bílarnir komist nú örugglega leiðar sinnar, í formi allskonar brúa og boga sem bera við himinbláman og er hreinasta sjónmengun að því. 
Svo er tíminn líka alltof dýrmætur til þess að eyða honum í glórulausar bílferðir fram og til baka.
Það er svo margt annað skemmtilegt sem hægt væri að nýta tímann í.
Ekki bætir loftmengunin sem bíldruslurnar framleiða heldur úr skák.
Það er enda engin furða að mengunin sé mikil þar sem nánast hver einasti Reykvíkingur yfir 17 ára aldri á sinn eiginn bíl.
Einn franskur vinur minn sagði mér það að það væri ekki hægt að líkja því saman hversu umferðin væri minni í París heldur en í Reykjavík, sem er þó nokkrum milljónum manna fámennari borg.
Þess vegna held ég því fram að það sem okkur vantar mest hér í Reykjavík sé járnbrautarkerfi.
Þá gætu menn setið og slappað af á leiðinni í vinnuna í stað þess að vera með sífelldar áhyggjur af því hvort næsti bíll ætli að abbast eitthvað upp á þinn eiginn bíl með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.


Bóndinn getur orðið súr í bragði...

.. ef ei býðst honum súrmeti í munn.

Það er bóndadagurinn í dag eins og allir vita og Þorrinn byrjaður samkvæmt okkar gamla mánaðatali. 
Það er því um að gera að nýta Þorra gamla til þess að raða í sig bráðhollum súrmatnum, það er að segja ef maður hefur efni á þess konar lúxus eða þá lyst til.
Því okkar gamli þjóðlegi matur sem 'hélt þjóðinni gangandi í aldir' eins og segir í Morgunblaðinu er merkilegt nokk orðinn munaðarvara í dag.

Ber þar harðfiskinn hæst, eins og vera ber, á um fimm þúsund krónur kílóið, en hákarlinn fylgir fast á eftir, á krónur fjögur þúsund og sexhundruð kílóið, í bitum það er að segja.
Hvað ætli einn meðalstór hákarl leggi sig þá á í krónum talið í heilu lagi? Mér er spurn?


Það er ekki þar með sagt að mér þyki hákarl góður á bragðið þó hann sé dýr enda verður maður víst að venjast bragðinu, segja menn.
 

En þar sem alsiða er að drekka íslenskt brennivín með hákarli venst hann víst bara furðuvel að sögn fróðra manna og skyldi engan undra er til virkni brennivínsins þekkir.
En það ku að sögn geta valdið hinum furðulegustu skyn - og bragðvillum og meira að segja hinum neyðarlegustu hegðunarvillum líka.

Get ég þar trútt um talað og um vitnað, því eitt sinn er ég var á þjóðhátíð í Eyjum, er ég var mjög ung stúlka og undir allmiklum áhrifum af okkar fyrrnefnda brennivíni, át ég í óðagoti annað eyrað af sviðakjamma nokkrum. 

Hafði ég þó aldrei látið slíkt ljúfmeti inn fyrir mínar varir fyrr en þarna. Sökum þess að  mér hafði ætíð orðið hugsað til eyrnamergs  (sem mér hugnast ekki til átu) þegar sviðakjammar með eyrum og öllu öðru sem hausum tilheyra, lentu óvart á disknum mínum.

Varð mér ekki um sel er við söguna bættist daginn eftir, að þegar ég hafði lokið við að gæða mér á áðurnefndu eyra með bestu lyst, hefði ég hent öllum afgangnum af svo til óétnum sviðakjammanum inn um næsta opna og upplýsta glugga sem á vegi mínum varð.

Síðan þetta gerðist hef ég ekki getað horft framan í nokkurn ærlegan sviðahaus án þess að skammast mín alveg niður í tær.


Þorramatinn hef ég líka látið algerlega í friði eftir þetta og sömuleiðis passað mig á brennivíninu. 

En verði ykkur hinum að góðu.


Raunir Títós

Í gærkvöldi þegar tölvan bilaði sátum við Tító grútsyfjuð langt fram á nótt við það að reyna að laga hana.
Það endaði með því að Tító gafst náttúrulega upp og setti mér úrslitakosti.scan0029small


Næsta síða »

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband