Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011

Hefjum kettina til þeirrar virðingar sem þeir eiga skilið.

Á íslenski kötturinn ekki þá virðingu skilið að hann sé ræktaður eins og íslenski hundurinn sem næstum dó út?  Í BNA er til kyn sem kallast American Shorthair og í Bretlandi er ræktaður British Shorthair.


Með hinum mikla fjölda erlenda kattategunda sem fluttar hafa verið til landsins hefur átt sér stað allnokkur blöndun við íslenska húsköttinn og hætta er á að þetta gamla íslenska landnáms kattakyn deyji út


Með markvissri ræktun á íslenska kettinum mætti ef til vill koma í veg fyrir að að köttum sé hent út á guð og gaddinn í bókstaflegri merkingu. Og þá jafnt fullorðnum köttum (jafnvel til í dæminu inniköttum sem ósjálfbjarga kettlingum.)                 
Þarf ekki annað til slíkra grimmdarverka en að eigandinn telji sig ekki hafa efni á að gefa dýrinu að éta. Hvað þá að skutla honum upp í Kattholt að maður minnist nú ekki á kostnaðinn við að láta deyða dýrið.


Með ræktun á íslenska kettinum myndi orðstír hans aukast verulega og jafnvel gæti hann jafnvel orðið jafn eftirsóttur og verðmætur og íslenski hundurinn. Sjá hér að neðan. Fólk virðist meta það sem kostar einhverja peninga meira en það sem fæst frítt, því miður. En það gæti  komið kettinum vel og minnkað verulega líkur á því að kettir lentu á vergangi eða væru deyddir með ómannúðlegum hætti.

'Íslenski hundurinn er jafngamall búsetu á landinu. Litlu munaði að hann dæi út og voru einungis nokkrir hundar eftir þegar hafist var handa um markvissa ræktun hans árið 1967.
Íslenski hundurinn naut hylli hefðarfólks í Evrópu og var þó nokkuð fluttur út, sérstaklega á miðöldum.

Íslenski kötturinn hefur fylgt manninum allt frá landnámi.
Íslenska kattarkynið hefur haldist nokkuð vel í gegnum tíðina en nú í dag er orðið svo mikið um innflutning á köttum að einhver blöndun hefur átt sér stað.
Í gamla daga var kötturinn mikið nytjadýr á Íslandi. Hlutverk hans var að halda rottum og músum frá híbýlum manna.'


Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband