16.9.2007 | 16:34
Stjörnuspáin mín í dag
Ljón:
Alheimurinn lætur þig vita þegar þú hefur villst af bestu leiðinni fyrir þig. Í stað þess að verða pirraður skaltu þakka fyrir þig og hlusta á viðvörunina.
Hvernig í fjandanum á ég að skilja þessa stjörnuspá? Er ég að villast af leið með því að mála þessar myndir mínar í gríð og erg? Ég sem að stefni loksins að einhverju af viti í áraraðir.
Og er alheimurinn að fyljgjast með mér við þessa iðju mína? Og hvernig lætur hann mig vita að ég sé á rangri leið?
Mér er satt að segja um og ó. Og svo er ég bara alls ekkert pirruð, svo þetta hlýtur að vera einhver misskilningur. Eða ég ætla rétt að vona það. Annars skal ég ....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.9.2007 | 17:51
Náinn Birt aftur
Brástjörnur bláar man ég
blika mót sjónum mínum.
Bros líkt og ljómuðu perlur
leiftraði á vörum þínum.
Þín nálægð var neistandi elding
er nam ég frá verund þinni
Þitt nafn eins og ómfagur söngur
yljar enn sálu minni.
Hann var mín hreina og saklausa æskuást.
Hann dó átján ára gamall.
Ljóð | Breytt 19.9.2007 kl. 04:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
11.9.2007 | 12:39
Þetta er fyrsta jákvæða fréttin sem ég hef lesið um Paris Hilton
Hingað til hefur mér þótt Paris bæði vera ljót og fýld manneskja og ég hélt að það væri fátt gott sem hún hefði til að bera. En fyrst hún elskar dýr þá hefur hún vaxið stórlega í áliti hjá mér.
Ætli þessi mynd birti ekki hennar eina sanna andlit?
Ég gæti bara trúað því að það væri sterkur leikur hjá henni til þess að finna hamingjuna og losna við ólifnaðinn úr lifi sínu, að gerast dýralæknir.
![]() |
Paris Hilton ræður dýrahirði til starfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.9.2007 | 00:54
Kvika
Ég nota allar frístudir ítil að mála. Ekki seinna að vænna að að eiga eitthvað til af myndum ef af maður fer að sýna þetta. Mig vantar bara pening. það kostar minnst 300.000 krónur að sýna í galleryi ef maður tekur allt með í reikningin. En maður vonar að þetta reddist, ég fái styrk og svoleiðis. Svo er bara málið að allir gagnrýnendur á Mogganum verði ekki í fríi þegar sýningin verður haldin, eins og þegar ég hélt síðustu sýningu. Það kemur sér andskoti illa að fá ekki gagnrýni. En mér var allavega lofað af fulltrúa menningar og lista á Mogganum að ég fengi almennilega umfjöllun næst.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.9.2007 | 23:23
Óttalegt rokrassgat er þetta alltaf úti !
Svo er sífelld rigning í þokkabót. Mann langar mest til þess að kúra undir sæng með hommunum sínum og fara ekki út úr húsi.
Það endar illa sumarið, eins og september getur oft verið ljúfur mánuður.
Svo er bráðum kominn október og þá er pottþétt komið haust og sumarið alfarið til andskotans.
Þessi rigning og rok er svo spælandi eftir góðviðrið í sumar. Svo eru blómin í garðinum öll vindblásin og niðurrignd og ég sem hef svo gaman af að dunda mér í garðinum. Ætlaði meira að segja að setja niður meira af limgerðisplöntum, en moldin er alltaf svo mígandi blaut að mér hryllir við að fara að drullumalla í henni. Maður getur bara ekkert verið úti við og það er hundfúlt.
Það eru svo miklar öfgar í veðrinu orðið, að ég spái því í fúllyndi mínu, að veturinn verði óvenju harður með grimmdarfrosti allt upp í 20 stig og öskrandi snjóbyljum sem færa allt á bólakaf og hananú!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.9.2007 | 22:34
Ljóðið, Gallery ást, Ást við opnun myndlistarsýningar. Olíupastel
8.9.2007 | 00:26
Snert hörpu mína himinborna dís
Snert hörpu mina himinborna dís
svo hlusti englar Guðs í paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í því líf.
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt
um varpann leikur draumsins perluglit.
:,:Snert hörpu mína himinborna dís og hlustið englar Guðs í paradís:,:
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
4.9.2007 | 22:09
Sefur sól
und jarðar yggldri brún
haust
hvín vindurinn hvössum rómi
úfið
svelgir haf saklaust skip
sorgmætt
fellur regn í næturstríði.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
3.9.2007 | 18:24
Sturlungaöld??
Nú þarf bara að fá Saxa lækni til þess að gera að sárum hins höggna.
![]() |
Klauf nef árásarmanns með saxi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
-
katrinsnaeholm
-
zordis
-
katlaa
-
jonaa
-
halkatla
-
ormurormur
-
martasmarta
-
steina
-
gudnyanna
-
zoti
-
ragjo
-
diesel
-
estersv
-
alit
-
toshiki
-
kaffi
-
svartfugl
-
jenni-1001
-
laufabraud
-
stormsker
-
svanurg
-
guru
-
ingo
-
lindagisla
-
bjorkv
-
prakkarinn
-
agny
-
bergruniris
-
raggibjarna
-
maple123
-
saethorhelgi
-
vglilja
-
johannbj
-
partners
-
vitinn
-
zeriaph
-
gudrunmagnea
-
birtabeib
-
iador
-
gudrunfanney1
-
ibb
-
kolgrimur
-
skjolid
-
bene
-
coke
-
hux
-
nonniblogg
-
heringi
-
hjolaferd
-
amason
-
joiragnars
-
steinibriem
-
rafdrottinn
-
siggith
-
vefritid
-
ljosmyndarinn
-
poppoli
-
perlaoghvolparnir
-
vitale
-
skordalsbrynja
-
lindalea
-
bidda
-
manisvans
-
scorpio
-
haddih
-
gattin
-
korntop
-
brahim
-
klarak
-
laugatun
-
konur
-
panama
-
sigurfang
-
joklamus
-
valdimarjohannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar