Leita í fréttum mbl.is

Sturlungaöld??

Sem betur fer klauf hann  ekki innbrotsmanninn í herðar niður. Annars er ástandið í Reykjavík orðið þannig sem hér sé Sturlungaöld enn við lýði.
Nú þarf bara að fá Saxa lækni til þess að gera að sárum hins höggna.
mbl.is Klauf nef árásarmanns með saxi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, Arna enda þori ég ekki fyrir mitt litla líf on´í miðbæ Reykjavíur um helgar.

Svava frá Strandbergi , 3.9.2007 kl. 18:39

2 identicon

Ég man nú eftir því þegar ég var í partý í Hafnarfirðinum og ungur maður kom og ógnaði gestum með haglabyssu... Það var hringt strax í lögregluna...

15 MÍNÚTUM seinna komu tveir óvopnaðir lögreglumenn og bönkuðu á dyrnar í rólegum fíling. Sem betur fer var árásarmaðurinn farinn, braut bara eina rúðu og vildi hræða vissa aðila. En á þessum 15 mínútum hefði hann auðveldlega getað drepið alla og forðað sér. Þetta sama kvöld var víkingasveitin að skipta sér af rifrildum hjóna á Álftanesi... grunur var að maðurinn hefði skotvopn en kom í ljós að svo var ekki.

Pointið er að ég treysti ekki lögreglunni hér á landi fyrir eigin öryggi. Maður á bara helst að hafa vopn á heimilinu.

Geiri (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 18:39

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er alveg satt þetta er orðið hræðilegt ástand hér.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.9.2007 kl. 18:40

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ljótu djö. lætin í fólki orðið, þeir fara sjálfsagt bráðum að kljúfa hvorir aðra í herðar niður.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.9.2007 kl. 20:19

5 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

jedúdda  mía Geir

Ef fólk færi að hafa almennt vopn á heimilum held ég að ástandið fari fyrst versnandi. Trúum á hið góða og fallega. Forðumst bara áhættusama staði. Nægt er rýmið á okkar góða landi.

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 3.9.2007 kl. 20:40

6 identicon

Fólk er hættulegt... vopnin eru bara tól. Hvert einasta heimili hefur hluti sem hægt er að nota til þess að drepa aðra.

Ég allavega trúi á rétt einstaklingsins til þess að verja eigin heimili og limi ef til þess kemur. 

Geiri (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 00:05

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég tek undir það sem Ása Hildur segir, að ef fólk færi almennt að hafa vopn á heimilum fari ástandið versnandi. Þá fyrst mundi hefjast önnur eiginleg sturlungaöld á Íslandi, þar sem menn vega mann og annan.

Byssuleyfi er almennt ekki hægt að fá hér á landi,  til þess að verja sjálfan sig gegn öðrum mönnum. það er lagalega skylda lögreglunnar að sjá um þá hlið mála, enda finnst mér það rétt ályktað að almennir borgarar eigi ekki að hafa vopn undir höndum, því misjafn er sauður í mörgu fé og algjört stórnleysi gæti þá tekið völdin. Sorglegt finnst mér ef þú lítur á öll tól eins og þú segir sem vopn. 

Ef við lítum til Bandarikjanna þar sem byssueign er alvmenn þá eru morð hvergi almennari en þar.

Svava frá Strandbergi , 4.9.2007 kl. 01:59

8 identicon

Ég veit ekki betur en það séu tugir þúsunda skotvopna á Íslandi. Þó við gefum ekki leyfi fyrir skammbyssum þá er nú hægt að drepa með öllum tegundum ef viðkomandi ætlar sér það. Svo er líka hægt að drepa með hnífum, fjöldi hnífa á Íslandi er örugglega yfir milljón.

Að lýta á vopnin sjálf eða leyfi til eignar er frekar þröngsýnt, það eru mörg lönd sem hafa mikið af skotvopnum án þess að hafa sömu vandamál og Bandaríkjamenn. Skotvopnaeign er líka mikil í Kanada en samt sleppa þeir margfalt betur. Ástandið almennt í þjóðfélaginu skiptir meira máli heldur en hversu aðgengileg tólin eru. Bandaríkjamenn eru í djúpum skít fyrst og fremst vegna fíkniefnastríðsins og átaka milli kynþátta.

Þannig að lausnin eru ekki bann, lausnin er frelsi. Því miður eru yfirvöld í Bna að ýta undir átök milli hópa. Það á að benda á fólkið en eki tólin sem það notar.

Geiri (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 02:13

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Myndi ekki lögreglan fara að bera vopn ef allir hefðu skotvopnaleyfi

Jóna Á. Gísladóttir, 5.9.2007 kl. 00:00

10 identicon

Lögreglan sér ekki þörf á því að bera skotvopn þó að það séu 50.000 byssur í landinu nú þegar. En þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að meta reglulega.

Víkingasveitin er náttúrulega kölluð þegar einhver ógnar öðrum með skotvopni. 

Geiri (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband