Færsluflokkur: Dægurmál
9.9.2008 | 14:35
Ég var klukkuð
Störf sem ég hef unnið
Fiskverkunarstúlka í Vestmannaeyjum.
Afgreitt í tískuvöruverslun.
Unnið á auglýsingastofu.
Unnið við kennslu.
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Casa Blanca
The Green Mile
Meet the Fockers
Kvikmyndin La Traviata
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Á Vesturgötunni
Í Hlíðunum
Í Anaheim, suður California
Á Selfossi.
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Fréttir
House
Design Star
Man ekki fleir. Horfi lítið á sjónvarp.
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Hollland.
Bandaríkin
Danmörk
London
Fjórar síður sem ég heimsæki daglega(fyrir utan bloggsíður
Ljóð.is
mbl.is
Poetry.com
Fjórir staðir sem ég mundi helst vilja vera á núna:
Kaupmannahöfn,
Á skemmtiferðaskipi um norsku firðina
London
Á siglingu á snekkju um Karabíahaf.
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Katrín Níelsdóttir
Guðný Anna Arnþórsdóttir
Kaffi, Bergur Thorberg
Halkatla.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.8.2008 | 17:23
Olympíuleikarnir í Peking
Ég vaknaði í morgun til þess að horfa á keppnina um gullið í handboltanum og mér varð það fljótt ljóst að við myndum láta í minni pokann í þessum leik.
En þó gleðst ég yfir góðum árangri okkar manna, því það er enginn smá árangur hjá þeim að verða í öðru sæt.
Samt verð ég að viðurkenna það, að þegar ég horfði á leikana og auglýsingarnar um þá, varð ég oft hálfpartinn hrygg í bragði. Því þessir leikar eru aðeins ætlaðir fáeinum útvöldum, sem hvergi kenna sér meins, hvorki líkamlega né andlega,
Hvað með þá sem eru fatlaðiir á einhvern hátt? Gátu þeir glaðst með, þar sem þeim var meinaður aðgangur að þessum leikum? Máttu ekki einu sinni koma sem áhorfendur.
Hvað með það að litla stúlkan sem átti að syngja við setningu Olympíuleikanna var ekki talin falla í hinn fullkomna hóp, af því að hún var með skakkar tennur? Og önnur fullkomin stúlka (útlitslega séð) var látin þykjast syngja fyrir hana.
Hvers konar áhrif ætli sú lítillækkandi höfnun, hafi á sálarlíf litlu 'ekta' söngstúlkunnar í framtíðinni?
Hvað með heftun á mál og ritfrelsi og önnur mannréttindabrot? Er það siðferðislega rétt að við samþykktum allt þetta óréttlæti og siðblindu , með því að taka þátt?
Man einhver eftir manni að nafni Hitler???
Vorum við ekki hreint út sagt, ekki að viðurkenna kenningar þess manns, með þátttöku okkar???
17.8.2008 | 01:44
'Allt sem við viljum er friður á jörð'
Allt sem við fáum, er að færa auðmönnum gull,
allt sem við fáum, er ´til helvítis með öryrkj-ana',
allt sem við fáum, er að blekkj´a útlendinga-asnana,
allt sem við fáum, er samráð fyrir-tækjana,
allt sem við fáum, er bullið með borgar-stjórnina.
Allt sem við viljum, er réttlæti á jörð!!!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.8.2008 | 00:14
Ég hélt, að konur gætu verið sexý, án þess að vera stífmálaðar...
En....
... þessar myndir fengu mig til að hugsa mig um tvisvar.
Þessi mynd af Coldie, gerði mig skíthrædda!
Og þessi hræddi gersamlega úr mér líftóruna.
Eruð þið ekki ánægðari með ykkur sjálfar núna, stelpur?
- Farið þá bara og smellkyssið spegilmyndina ykkar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.8.2008 | 14:42
Ég á bara ekki til eitt einasta orð
Flækingsdýrum útrýmt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bambus, var síamsköttur í föðurætt, en persi í móðurættina. Hann var félagi minn og vinur í tíu ár, allt þar til ég neyddist til þess að láta svæfa hann, þar sem hann var kominn með krabbamein í lifur.
Það voru þung spor þegar ég fór með hann, mikið veikan upp á Dýraspítala, þar sem dýralæknirinn sagði mér, að Bambus væri kominn með svo langt gengið krabbamein, að ekki væri forsvaranlegt annað en að lina þjáningar hans, með svæfingu.
Bambus fór eitt sinn á kattasýningu, þegar hann var upp á sitt besta og gerði garðinn aldeilis frægan þar. Honum leið svo illa í búrinu sínu og var svo hræddur við mannfjöldann, að veinin í honum heyrðist alla leið út á götu. Sjónvarpsmenn sem komu á staðinn runnu á hljóðin og 'tóku að sjálfsögðu, viðtal' við 'Bambusinn'.
Það var með naumindum, að hægt væri að nema, það sem fréttamaðurinn, sem hélt á hinum fræga Bambusi', sagði, sökum ærandi öskursins sem þessi 'súperstjarna' gaf frá sér.
Þó komst það til skila, að, 'Fressinum Bambusi, líkaði svo illa vistin á kattasýningunni, að hann lagði fyrst búrið sitt algjörlega í rúst og fór síðan fljótlega heim upp úr því'.
Dóttir mín, hún Erla Ósk og frænka hennar Eva, sem höfðu farið með Bambus á sýninguna, voru alveg eyðilagðar yfir þessari dæmalausu framkomu kattarforsmánarinnar.
Sögðu þær báðar, þegar heim var komið, að ef Bambus hefði aðeins getað haldið sér saman, hefði hann örugglega unnið fyrstu verðlaunin á sýningunni, með elegans.
Það tók þær margar vikur að fyrirgefa Bambusi.
En svona var Bambus bara, hann lét alltaf vel í sér heyra ef það var eitthvað sem honum mislíkaði, eða þá langaði í.
Ég tala nú ekki um, ef að hann var svangur, þá gaf hann frá sér ærandi sírenuvæl, þar til hann fékk eitthvað að éta.
Samt var hann óttalegt krútt, hann Bambus minn og líka algjör hetja, því hann bjargðaði mér eitt sinn frá bráðum bana.
Ég hafði ætlað að elda mér hafragraut, snemma morguns. En þar sem ég var grútsyfjuð hallaði ég mér í stofusófann meðan suðan kom upp á grautnum og steinsofnaði.
Ég vaknaði við það að Bambus klóraði mig í kinnina og sá þá að íbúðin var full af reyk, því kviknað hafði í hafragrautspottinum.
Ég væri ekki til frásagnar nú, ef Bambusar hefði ekki notið við. Og Bambus varð svo frægur, að komast ekki bara í fréttirnar í sjónvarpinu fyrir frammistöðu sína á kattasýningunni, heldur líka á forsíðu DV, fyrir frækilega björgun úr lífsháska.
Köttur bjargaði lífi eiganda síns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 18.8.2008 kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
11.7.2008 | 13:12
Það er mikið að þeir bjóði ekki upp á mannakjöt,
því mér finnst það álíka viðbjóður að fólk leggji sér hunda til munns eins og mannakjöt.
það er líka óásættanlegt hverning farið er með hundana sem slátrað er. Þeir eru múlbundnir og síðan hrúgað saman í þröng búr, sem þeir eru fluttir í til slátrunar, þar sem þeir eru skotnir í hausinn.
Flestir hundar vita til hvers byssur eru notaðar og eina mynd sá ég á netinu af múlbundnum hundi sem horfði bænaraugum á slátrarann sem miðaði byssunni á höfuð hans. Það var auðséð á þvi augnaráði að dýrið vissi hvað beið þess.
Ætli það fólk sem étur hunda, hafi nokkurn tíma átt hund sem vin og félaga, eða hvað?
Eða kannski finnst þessu fólki bara í góðu lagi að éta sinn besta vin.
Ekkert hundakjöt á boðstólnum í Peking | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 12.7.2008 kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
1.7.2008 | 00:11
Ég er svona að velta því fyrir mér, hvort íslenska menntakerfið...
myndi ekki hækka í áliti hjá OECD, ef það tileinkaði sér slíkan skilning sem þessi æðrulausi prófdómari virðist hafa á því, sem nemendur, yfirleitt allir með tölu, hafa endalausan og óþrjótandi áhuga á. Og hafa alltaf haft.
Fuck, er einfaldlega lykilorð hjá unglingum. Þeir brúka það, þegar þeim sjálfum langar til að 'fucka´ einhvern, eða einhverja, eða þá til þess, að aðrir 'fucki' þá.
Strákarnir fá útrás fyrir reiði og Ödipusarduld sína þegar þeir segja öðrum strákum, að 'fucka' mömmu sinni.
Svo er einnig til í dæminu, að kalla vini sína 'fucking good friends.´ Matur er líka oft 'fucking good´ 'Fuck you, er einnig vinsælt að nota sem tákn um, undrun eða gleðihróp þegar vinir hittast og svo má lengi telja.
Sem sagt, kynhvötin tröllríður ungu kynslóðinni, nú sem fyrr. Það er bara málið að virkja hana á jákvæðan hátt og þá mun upprísa fullnægjandi menntakerfi hér á landi, sem mun geta af sér góðan ávöxt. Og það sem mest er um vert, vonandi gott orðspor hjá OECD.
Mynd úr kynfræðslubókinni 'Um stelpur og stráka'. Myndskreytingar, Guðný Svava Strandberg.
Fékk einkunn fyrir tveggja blótsyrða ritgerð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.6.2008 | 00:36
Í ljóssporum daga
Í ljósvari vængstýfðra daga
liggur vegalaus engill
á húmhimni aftans, vikna
hvíthærð ský
hjúpuð hálfrökkri nætur
hvíslar sorgin
ósögðum orðum.
Guðný Svava Strandberg
Réttað yfir Fritzl fyrir árslok | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 26.6.2008 kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson