Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

Ætli það sé eitthvað stutt þarna á milli hjá henni?

Eða var hún að glápa á hana? Æ mér datt þetta bara svona í hug.
mbl.is Nærbuxnaslys kært
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er morgunljóst að ísbirnir munu alveg örugglega deyja út...

miklu fyrr en reiknað hefur verið með, 

þar sem það

var ekki tekið með í reikninginn að þeir

myndu taka

upp á því að glepjast til Íslands

 

         Í Paradís hvítabjarnanna. 

 

scan0001_276842 Ísbirnir

Allur réttur áskilin höfundi FÍT 


mbl.is Ísbjörninn að Hrauni dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagkvæm ást

The local news station was interviewing an 80-year-old lady because she had just gotten married -- for the fourth time.

The interviewer asked her questions about her life, about what it felt like to be marrying again at 80, and then about her new husband's
occupation.

"He's a funeral director," she answered.

"Interesting," the newsman thought.

He then asked her if she wouldn't mind telling him a little about her first three husbands and what they did for a living.

She paused for a few moments, needing time to reflect on all those years. After a short time, a smile came to her face and she answered proudly, explaining that she'd first married a banker when she was in her early 20's, then a circus ringmaster when in her 40's, later on a preacher when in her 60's, and now in her 80's, a funeral director.

The interviewer looked at her, quite astonished, and asked why she had married four men with such diverse careers.
She smiled and explained, "I married one for the money, two for the show, three to get ready, and four to go."


mbl.is Ást til Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú varst

Þú varst stormur
sem geisaði um nótt.
Þú varst hvirfilbyls
hringiðu dans.
Þú varst skýfall
með ástríðuþrótt.

- Þú varst ástin
í líkingu manns.


mbl.is Hvirfilbylur veldur usla í Colorado
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hyldýpið

Augu þín
eru djúp myrk vötn
sálarfley þitt sokkið
tvær hendur halda
í von
sem ennþá
- flýtur.


mbl.is Um 20 fíklar látist frá börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náði kettlingnum undan bústaðnum með gúllasdós

Þegar ég las þessa frétt skaut upp gamalli minningu í huga mér. Þegar ég var 12 ára dvaldi ég með foreldrum mínum og systkinum í sumarbústað við Hreðavatn eitt sumar.  Dag einn kom faðir okkar heim í bústað,  með kettling sem hann hafði tekið hálfvilltan frá móður sinni í vöruskemmu í Borgarnesi.

Þetta var ósköp sætur kettlingur, svartur og hvítur en frekar mannfælinn og þegar við fórum með hann út til þess að leika við hann, slapp hann frá okkur og stökk beint strik, undir sumarbústaðinn.
Við  krakkarnir vorum óhuggandi og margreyndum að lokka hann til okkar, en ekkert gekk allan daginn.
Kisi litli sat sem fastast undir bústaðnum.  Við vorum orðin viss um, að næðist hann ekki myndi hann leggjast út í hrauninu í kringum Hreðavatn og verða að villiketti. 

En þar sem við vorum þrautgóð á raunastund datt okkur í hug að lokka kattarómyndina til okkar með mat. Kettlingurinn hlyti að vera orðinn svangur eftir að vera búinn að dúsa heilan dag undir húsinu.
Ég fékk  dós með  lyktsterku  gúllasi  hjá  mömmu og lagðist síðan niður í grasið við opið undir bústaðinn og kallaði á kettlinginn. Ég sá að hann var þarna ennþá því  ég sá ég glitta í augun á honum, svo ég skreið aðeins inn undir bústaðinn. Þó hryllti mig við því að skríða þarna í moldinni þar sem örugglega væri allt fullt af pöddum og köngulóm og  kannski rottum líka?

En ég lét mig hafa það,  því að  ég varð að ná kettlingnum. Kisi litli hörfaði eftir því sem ég kom nær, en ég var nú komin inn undir miðjan bústaðinn og þar var aðeins meira rými. Tók ég þá til bragðs að henda gúllasdósinni í átt að kettlingnum sem stóðst ekki mátið og byrjaði að háma í sig matinn.

En þá voru örlög hans líka ráðinn,  því einhvern veginn lyfti ég mér upp á hnén og spyrnti við fótum og bókstaflega henti mér í loftinu á kettlinginn, eins og rándýr sem stekkur á bráð. Ég miðaði höndunum á hálsinn á honum og náði góðu taki og negldi hann fastann við jörðina.Höggið var svo mikið,  að litli líkaminn  lyftist frá jörðu þar sem ég keyrði hausinn á honum niður í moldina. 

Ég var heppin að kettlingurinn meiddist ekki neitt enda ætlaði ég mér það aldrei, ætlaði aðeins að ná þessum litla,  hálfvillta þrjóskubolta.

 

1cid_Krússlukettllingu small Ég bar svo kettlinginn inn í bústaðinn og klappaði honum og strauk í bak og fyrir. Kisi litli virtist gera sér grein fyrir því að leikurinn væri tapaður því hann lá kyrr eins og lítið ljós í höndum mér.

Fjölskyldan, sérstaklega systkini mín voru ósköp fegin að fá kettlinginn óhultan til baka, því ekki hefði verið gæfulegt að missa hann frá sér.

Kettlingurinn lauk við að éta upp úr gúllasdósinni þegar inn var komið.  Ég held að það hafi runnið upp fyrir honum, að  líklega væri betra fyrir hann að búa hjá þessum ókunnugu mannverum,  sem gáfu honum að éta og leyfðu honum að kúra á ullarteppi inni í hlýjunni, heldur en að húka í kuldanum undir  híbýlum þeirra. 

En eftir þessa óskemmtilegu reynslu var kisi litli ætíð bundinn með snæri við staur, þegar hann fór út að viðra sig, fyrir utan bústaðinn,  eins og væri  hann hundur. 


mbl.is Meintur innbrotsþjófur reyndist kattaeigandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bévítis herforingjastjórnin í Mjanmar

sem vill ekki að hjálp berist nauðstöddu fólki. Ég fékk tölvupóst frá Unicef í gær þar sem ég var beðin um að leggja fram minn skerf til hjálpar sem ég og gerði. En nú hefur herforingjastórnin gert öll hjálpargögn upptæk. Hvað er að þessum karlandsk....?  Ég vona samt að úr rætist og þeir létti banninu af svo nauðstatt fólkið fái einherja hjálp.
mbl.is SÞ stöðva flutning hjálpargagna til Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veistu það, - sonur minn?

Augu þín eru köld og full tortryggni, - sonur minn.

Veistu, að ég vildi aldrei gefa þér brjóst
og að ég vildi ekki hafa vögguna þína inni hjá mér
og að amma þín gekk þér fyrst í móðurstað?

Veistu það, - sonur minn?

Veistu, að ég grét mig í svefn á hverju kvöldi
og bað til Guðs að ég yrði þér betri móðir á morgun,
að ég hrópaði á Hann,
'hvað er að mér!' 'Hvers vegna er ég svona?'

Veistu, hve sektarkenndin nagar mig
og hversu sárt það er að þú viljir ekki tala við mig
og að ég fái ekki að umgangast barnabörnin mín?

Veistu það, - sonur minn?

Veistu, að ég er enn þá bara átta ára
og ég sit enn út´í horninu.
Lítil stúlka í hnipri,
skelfingu lostin,
heimurinn að hrynja.

Á veggnum, stór svartur skuggi
með útréttar vondar hendur.

Veistu það, - sonur minn?


Sýniárátta eða sönn ást?

Ég verð nú að viðurkenna það, að djúpt undir niðri hef ég aldrei skilið af hverju flestallir samkynhneigðir sem taka virkan þátt í gleðigöngunni,  á prömmunum, á Gay Pride þurfa endilega að vera hálfnaktir.

Ég hef ekkert á móti samkynhneigðum og fólk sem ég tel til vina minna er margt samkynhneigt eða bisexual, en er virkilega þörf á að sýna svona mikið af skrokknum á sér í þessari gleðigöngu?
Ekki elskum við bara með líkamanum, heldur sálinni líka.

Mér finnst samt gaman að horfa á gönguna þó að öll þessi hálfnekt hafi vakið upp þessa spurningu í huga mér. 


mbl.is Telur gleðigöngu samkynhneigðra sýniáráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband