4.2.2008 | 02:02
Bolluveislan og 'Skín við sólu jökulskalli' þrykk og olía
Ég bauð krökkunum mínum í bollukaffi í dag. Ég var reyndar búin að lofa pönnukökum líka og ég skammast mín fyrir að segja það, að þegar til kom nennti ég ekki að baka þær. Krakkarnir voru hálf spældir, sérstaklega tengdasonurinn,
það lak af honum andlitið,
þegar ég sagði honum, að það yrðu engar pönnukökur eftir allt saman.
Bollurnar og mjólk með, yrðu að duga. Annars held ég að þau hafi öll farið í hálfgerða fýlu því enginn borðaði nema eina bollu.
'Letin í mér alltaf og ómerkilegheitin. lokka þau hingað með loforði um pönnsur og standa svo ekki við loforðið.
Annars er þetta svo sem mér líkt, en æ ég er alltaf svo þreytt eitthvað.'
Svo fékk ég rosamóral og útskýrði fyrir þeim að ég hefði ætlað að vera búin að baka pönnukökurnar löngu áður en þau komu og hita þær svo upp. Það væri alltaf best, en ég hefði gleymt því og nú væri ómögulegt að standa bullsveitt yfir bakstrinum þegar þau væru komin, enda væri ég nýkomin úr baði.
þau fengju örugglega pönnukökur næst, þegar ég myndi eftir að baka þær fyrirfram, lofaði ég svo upp í ermina á mér.
Ég var svo að prófa myndavélina sem sonur minn ætlar að lána mér því mín myndavél er ómöguleg. allavega kann ég ekkert á hana og hún virkar bara alls ekki.
Ég tók eina mynd af dóttur minni. Svo þegar ég leit á myndina skildi ég ekkert í því
að risastór bleik blaðra huldi megnið af myndinni. Krakkarnir sprungu úr hlátri þegar ég sagði í
undrunartón.
'Það er einhver bleik blaðra á myndinni'!!
'Hvað getur þetta verið'??
'þetta er þumalputtinn á þér', sagði sonur minn þurrlega, vitandi það, að ég er nú eins og ég er.
'Mikið andskoti er ég vitlaus maður. Hver skyldi trúa því að ég hafi lært ljósmyndun og framköllun á einni önn í Myndlista og handíðaskólanum á sínum tíma. En svona fer þegar aldurinn færist yfir mann. Ójá og já.'
Við sátum þarna og spjölluðum þegar dóttir mín sagði allt í einu. 'Rosalega er fín myndin af fálkanum framan á Fréttablaðinu, þar sem hann er að éta fíl.'
'Éta fíl'! Hrópaði ég, 'vá maður, hvernig í fjáranum gat hann ráðið niðurlögum heils fíls'?
'Mamma', sagði dóttir mín rólega og leit á mig eldsnöggu viðvörunar augnaráði. 'Hann er ekki að éta fíl, heldur fýl.'
'Já, svoleiðis, það hlaut að vera', sagði ég og mér varð allt í einu svo ofboðslega heitt í framan að ég rauk út á svalir og opnaði gluggann.
Restin af bolluveislunni gekk þrautalaust fyrir sig og ég tók fullt af ljósmyndum af ,myndunum mínum. Ég var líka mjög stolt af því að aldrei þessu vant var allt mjög hreint og fínt hjá mér. Enda hafði ég tekið til á örskotsstundu þ. e. a. s. hent mesta ruslinu inn í skápana og meira að segja sprayjað húsgagnabóni út í loftið til að fá góða lykt.
Svo þegar ég ætlaði að bæta aðeins við anganina og sprayja meira fann ég ekki helvítis brúsann. En skítt með það, þetta hlaut að duga.
Loks kvöddu krakkarnir með virktum og þökkuðu fyrir mjólkina og meðlætið með kossi.
Ég var ekki lengi að rífa mig úr öllum fötunum þegar þau voru farin og klæða mig í heimagallann. síðar silkináttbuxur sem ég held mikið uppá og bláa blússu sem er öll út í málningarslettum. Mér líður bara einfaldlega best í þessum fötum, þegar ég er svona ein með sjálfi mér og köttunum mínum.
Svo tók ég mjólkina af borðinu og ætlaði að setja hana inn í ísskáp svo hún súrnaði ekki. Það fyrsta sem blasti við augum mínum, þegar ég opnaði ísskápinn, var húsgagnabóns úðabrúsinn sem stóð í efstu hillunni þar sem mjólkin er vön að vera.
Set hér inn eina af myndunum mínum.
Hún heitir 'Skín við sólu jökulskalli'
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.2.2008 | 02:24
Þrjú andlit Evu (Hugrof) Mixed media
Hugrof er röskun sem lýsir sér með því að einstaklingur upplifir mikla truflun á sjálfi sínu, minni eða meðvitund. Það felur í sér orsakir sálrænna erfiðleika, sem tengjast einhverjum hliðum á sjálfi einstaklingsins. Þrjár gerðir eru: 1. Óminni (amnesia). 2. Minnistap (fugue), og 3. Margklofinn persónuleiki (multiple personality disorder).
Þessi mynd mín er gerð með kvikmyndina Þrjú andlit Evu í huga, sem var sýnd hér á landi fyrir tugum ára við góða aðsókn og mikið umtal. Kvikmyndin fjallaði um líf konu sem hafði þrjá persónuleika, sem henni gekk illa að samræma hvor öðrum. Þetta var typisk Hollýwood kvikmynd þar sem heilbrigðasti persónuleiki sjúklingsins sigrar að lokum.
En í raun átti persónan í myndinni sér til raunverulega fyrrimynd. Það var kona sem við skulum kalla Önnu. Anna var með 32 persónuleika og saga hennar endaði ekki eins vel og í sögu persónunnar Evu, í kvikmyndinni.
Oft klofnar persónuleiki manna við það að þeir verða fyrir miklum áföllum í lífinu, oftast nær í bernsku.
Í dag eru til lyf og einnig samtalsmeðferðir fyrir hendi, sem gera þessum sjúklingum kleyft að lifa þokkalega góðu lífi. En fyrr á öldum nutu þeir vægast sagt ekki velvildar og voru oft álitnir andsettir. Þar af leiðandi urðu til margar óhugnanlegar sögur um þá sem þjáðust af klofnum persónuleika.
Ein frægasta sagan um tvíklofinn persónuleika er þó tvímælalaust, sagan af Dr. Jekyll og Mr.Hyde.
Oft hefur geðklofa verið ruglað saman við tvískiptan eða margskiptan persónuleika. En hér er um tvo ólíka sjúkóma að ræða. Þar sem geðklofi einkennist af ranghugmyndum, ofsóknarkennd og á stundum mikilmennskubrjálæði. Sem betur fer geta geðklofa sjúklingar nú til dags flestir lifað góðu lífi með hjálp lyfja og samtalsmeðferða og geta allflestir stundað vinnu svo lengi sem þeir taka lyfin sín.
Það er mikilvægt að gæta vel að geðheilsunni með því að hugsa vel um sjálfan sig. Því enginn veit sína ævina fyrr en öll er og geðsjúkdómar gera oft ekki boð á undan sér.
Geðorð Geðræktar eru byggð á því sem einkennir farsælt fólk og eru þannig ábendingar til þeirra sem sækjast eftir velgengni og vellíðan í lífinu. Geðorðunum hefur verið dreift víða um land á undanförnum árum á veggspjöldum og póstkortum. Sumarið 2002 skrifaði Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, þáverandi verkefnisstjóri Geðræktar, neðantaldar greinar í Morgunblaðið um einstök geðorð undir merkjum Heilsunnar í brennidepli.
Geðorðin tíu
1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
4. Lærðu af mistökum þínum 5.
Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu 7.
Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína
10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 02:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
2.2.2008 | 04:32
Eins og sært dýr svarthvít ljósmynd af vatnslitamynd
Eins og sært dýr
leitar inn í skóginn
til að deyja
flýr vitund mín
veruleikann
og vefur sjálfa sig örmum
handan þessa heims
þar sem ennþá
er von.
29.1.2008 | 18:45
Af salmonellu og sígarettum
Ég gef nú ekki mikið fyrir þessa nóróveiru, sem veldur einhverri nauðaómerkilegri gubbupest og skitu. Nei, ó, nei, ég er nú forframaðri en svo, því ég hef fengið alvöru salmonellusýkingu og það inniliggjandi á sjúkrahúsi.
Það var ljóta andskotans uppákoman. Hitinn rauk upp í 41 stig og ég eyddi svo miklum tíma á klósettinu að það lá við að ég dveldi þar viðstöðulaust nótt sem nýtan dag í fimm sólarhringa, samfleytt, með bullandi niðurgang.
Við lágum þarna tvær dömur á stofunni, nær dauða en lífi af ólgandi salmonellu. En það eina sem komst að í hausnum á okkar aðþrengdu og innantómu skrokkum, þegar smáhlé varð á klósettrápinu, var hugsunin um unaðslega langan og góðan smók.
Við höfðum enga trú á því að okkur yrði hleypt út af stofunni til að reykja, svo nú voru góð ráð dýr. Ættum við að opna gluggana upp á gátt og reykja bara í rúminu eins og dræsur? Spurði ég vongóð. En stofufélaga mínum leist ekkert á þá hugmynd. Ertu vitlaus manneskja, við gætum drepist úr lungnabólgu, með svona rosalegan hita, svaraði hún hneyksluð. Nú við erum hvort sem er hálfdauðar, tautaði ég í barm mér, hundfúl. Jú, ekki gat hún neitað því.
Okey, það skiptir kannski ekki máli út af hverju, við geispum golunni, en það verður allt bandbrjálað ef það kemst upp um okkur, bætti hún
Því varð það úr að við hringdum bjöllunni til þess að bera upp þá frómu ósk, að fá að reykja inni á sjúkrastofunni, með galopna gluggana, auðvitað. Við vorum vongóðar um að ganga ekki bónleiðar til búðar, því við vorum bara tvær sem lágum þarna inni og báðar þessir líka forhertu stromparnir og svo ofboðslega veikar að okkar hinsta ósk hlyti að verða uppfyllt.
En heraginn sem ríkir á sjúkrahúsum lætur ekki nauðaómerkilega sjúklinga snúa uppá sig. Því var okkur hent út af deildinni með retturnar okkar og vísað á dyr, sem lágu út í norðangarrann.
Þar máttum við svo húka skjálfandi á beinunum, með eins háan hita í kroppnum og ríkir í Dead Valley í Amríku, eingöngu standandi á löppunum vegna einnar sígarettu.
![]() |
Nóróveiran leggur Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.1.2008 | 02:50
Hjarnið lá yfir hrauninu eins og hrímhvít blúndusæng
Ég sit hérna með Tító minn í kjöltunni við tölvuna og blogga. Úti er allt á kafi í snjó og spáð er miklu frosti í Reykjavík á næstunni. Maður verður þá bara að búa sig vel svo kuldaboli bíti mann ekki alltof fast.
Það er enn einu sinni búið að breyta tímanum á sýningunni minni, af því að fyrir misskilning var tvíbókað í sýningarplássið. Ég fæ þá ekki húsið fyrr en í fyrsta lagi 14. apríl. En það er bara betra. Farið að vora og fleira fólk á ferli í bænum.
Ég get þá slappað betur af við að klára myndirnar mínar svo þær verði frambærilegar. Og gefið Tító og Gosa meiri tíma. Burstað þá og leikið við þá. Þeir voru eiginlega lagstir í andleg áföll vegna þess að ég skipti mér of lítið af þeim. Alltaf að mála og svoleiðis.
Ég var meira að segja farin að halda að Tító ætti ekki langt eftir ólifað. Hann lá alltaf í bælinu sínu og kom varla þó að ég kallaði á hann. Hann hefur líka horast þó nokkuð.
Svo í dag eftir að ég vissi að ég hefði nógan tíma fram að sýningunni tók ég mér ærlegt tak og dekraði við vini mína í bak og fyrir. Burstaði þá og lék við þá og hélt á þeim í fanginu til þess að leyfa þeim að kíkja út um gluggann á snjókornin sem flögruðu hjá eins og hvítu fiðrildin.
Það var eins og við manninn mælt að Tító hresstist allur við og hafði mjög gaman af að leika sér að pípuhreinsaranum sem ég dinglaði fyrir framan nefið á honum og allt í kringum hann. Það var eins og hann gengi í endurnýjun æsku sinnar 63 ára gamall kötturinn.
Og ég áttaði mig á því að í fánýtum eltingaleik mínum við glæstar vonir um framabraut, hafði ég gleymt mínum bestu vinum, sem ekki einu sinni geta séð af mér þegar ég fer á klósettið.
Ég ætla svo sannarlega að láta mér þetta að kenningu verða framvegis.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
28.1.2008 | 00:27
Sem gimsteinar í kórónu landsins
Við dóttir mín brugðum okkur í bæinn á laugardaginn. Kíktum fyrst inn í flottu hönnunarbúðinni baka til í elsta húsi Reykjavíkur við Aðalstræti. Skórnir sem mig langaði svo í og kostuðu einar litlar 35 þúsund krónur voru seldir. Ekki svo að það skipti neinu mál, ég hefði aldrei haft efni á að kaupa þá hvort sem er Svo hefði ég heldur aldrei tímt að ganga í þeim, heldur sett þá upp á hillu sem stofuskraut.
Þar sem við erum þarna að skoða vörurnar, kemur ein afgreiðslustúlkan sem við höfðum talað mest við til okkar og segir. 'Fyrirgefðu, en ég get ekki annað en dáðst að þessari kápu sem þú ert í, má ég spyrja hvar þú fékkst hana'? Ég áttaði mig í snarheitum á því að stúlkan átti ekki við mig, því ég var bara í gömlu leðurúlpunni minni. Það var dóttir mín sem var þessa heiðurs aðnjótandi að hljóta aðdáun afgreiðslustúlkunnar, enda kom upp úr dúrnum að hún var í kápu eftir einhvern frægan íslenskan fatahönnuð.
Ég hafði ekki hugmynd um að stelpan væri svona fín í tauinu þennan dag, hélt að hún væri bara í venjulegri mosagrænni 'popplín' stuttkápu. En popplín kápur voru mjög eftirsóttar þegar ég var ung og falleg.
Svo skelltum við okkur í Geysis húsið til þess að skoða sýningaraðstöðuna sem ég fæ á vegum Art-Iceland. Mér leist ekkert á þetta, það var dimmt og drungalegt þarna inni, enda er þetta veitingarstaður. Og það var bara einn ljóskastari sem lýstu upp stærstu myndina en hinar voru allar hjúpaðar hálfrökkri. Stóra upplýsta myndin var líka seld, en ekki sá ég fleiri seldar myndir.
Ég kallaði í framreiðslustúlkuna og spurði hana um eigandann, en hann var ekki við. Ég sagði við stúlkuna að ég væri að fara að sýna þarna á staðnum í mars og mér litist illa á ljósleysið.
Stúlkan var hin almennilegasta og lét mig hafa miða með gemsanúmeri eigandans og sagði að ég gæti hringt í hann á mánudaginn. Ég vona bara til guðs að ég fái leyfi til að settar varði upp fleiri kastarar á myndirnar mínar.
Dimman þarna inni hafði svo þau áhrif á mig að ég er búin að liggja í svartsýniskasti í bælinu í allan dag. En ég kláraði þó að mála eina stóra mynd seint í gærkvöldi af snjóflóði.
Ég er svona að pæla í að setja þá mynd á upplýsta staðinn í sýningarplássinu, ef svo illa fer að ég fæ ekki fleiri kastara. En ég krossa bara fingurna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.1.2008 | 23:45
Stórmál
Aðalmálið er
að hafa eitthvað
til málanna að leggja
og það er mitt hjartans mál
að ekki verði mikið mál
að leysa vandamál
varðandi málefni
og stefnumál
flokksins
eða máls málanna
sem er bundið mál
því tók ég til máls
um mál málanna
meðal málsmetandi manna
gerður var góður rómur
að máli mínu
enda er ég rómuð fyrir
að vera vel máli farin
og hafa sannfærandi málróm
kvisast hefur út orðrómur um það
að málið sé í höfn
enda er það málið
er það mál manna
að ég hafi alfarið tekið málin
í mínar hendur
og þar með leyst málið
- sem er mjög gott mál
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Næsta skref yrði svo auðvitað að færa þessa gloríu upp metorðastigann þannig að það verði einnig mjög brýnt og algjörlega bráðnauðsynlegt að þrír forsætisráðherrar sitji í einu á sama valdastóli. Síðast en ekki síst má svo nefna að flott væri að geta státað af tveimur til þremur forsetum trónandi saman á toppi heldrimanna pýramýdans.
En hver á svo að borga? Laun t.d. og auðvitað fatakostnaðinn? Kannski Framsókn?
![]() |
Þrír þiggja laun borgarstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.1.2008 | 17:24
Uss, ég er fyrir löngu síðan....
búin að skrifa mína minningargrein. Best að hafa vaðið fyrir neðan sig þó að maður sé ekki frægur eins og Britney. Það er líka handhægt fyrir ættingjana að ég sé hafi drifið í þessu sjálf og þannig get ég líka verið viss um að aðalminningargreinin verði ekki full af einhverri bölvaðri vitleysu, eins og t.d.
'Hún bjó manni sínum fagurt heimili ' Eða þá. 'Henni féll aldrei verk úr hendi.'
Ég sem tilkynnti mínum fyrrverandi það, um leið og við kynntumst, að ég ætlaði mér það ekki að ævistarfi, að verða húsmóðir.
Enda þótt ég hafi verið neydd út í það, því hann var aldrei heima, alltaf að burðast við að vinna einhvern andskotann, úti á landi. Svo þegar hann kom í bæinn var eins og það væru komin jól og jólasveinninn væri sestur upp á heimilinu í tvo daga til þess að láta stjana í kringum sig. Börnin alveg bandbrjáluð úr spenningi og allt heimilið á háa Céinu.
Fussum svei og ég sem hafði verið svo undurfögur skosk aðalsmær í fyrra lífi, einhvers staðar í Hálöndunum. Auðvitað sprakk allt heila klabbið með miklum hvelli í háa loft, enda ekki við öðru að búast þegar ung og fögur greifynja og stígvélaþræll hennar taka saman.
Já, minningargreinin mín verður bara hrein og bein skýrsla um mína einstöku ævi og ekkert nema skraufþurrar staðreyndir. Ekkert, 'Allt eins og blómstrið eina', þar, eða svoleiðis sko.
![]() |
Minningargreinin um Britney tilbúin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
20.1.2008 | 09:42
Ég vona að þeir verði heimaskítsmát með þetta bull
Hvernig í ósköpunum stendur á þeirri fáránlegu hugmynd að fara að grafa Bobby Fischer á Þingvöllum? Við hlið 'listaskáldsins góða', ef það er þá örugglega hann? Mér skilst að í kirkjugarðinum þar sem Jónas var fyrst jarðsettur og seinna grafinn upp aftur, hafi líki verið plantað ofan á lík í árhundruði og að það hafi enginn verið kvæt sjúr á því, hvers bein, voru Jónasar, nema þá kannski annar fót- leggurinn hans, brotni?
Það mál fannst mér vera skandall, en að jarðsetja, 'útlægan´ Ameríkana á Þingvöllum, jafnvel þó hann hafi verið kominn með íslenskan ríkisborgararétt, já og líka þó að hann hafi verið heimsmeistari í skák, finnst mér vera sýnu verri skandall.
Við eigum ekkert í Bobby Fischer, ekki einu sinni fótlegg af honum, hvað þá meir.
Hann telfdi hérna skák, fyrir ca. 'hundrað árum' og þess vegna varð hann auðvitað 'Íslandsvinurinn góði.' Og þegar hann kom sér í vandræði í sinni eiginn heimabyggð vorum við Íslendingar svo góðir við hann á móti, að bjóða honum að verða bara alvöru Íslendingur, sjálfur.
Einvígi aldarinnar og allt það, en að hann eigi heima á Þingvöllum, þegar hann er dauður , er í mínum augum ekkert annað en misskilin íslensk þjóðremba í einni sinni lúmskustu mynd.
Því þetta er ekkert annað en auglýsingabrellla fyrir Ísland, of course, nákæmlega eins og ríkisborgararéttur manngreysins var.
Hugsið ykkur nú bara, að gædinn muni geta sagt gapandi túrhestunum á Þingvöllum, andaktugur frá því, að þarna í kirkjugarðinum liggi þeir hlið við hlið Íslendingarnir og sómarjómi þjóðarinnar, Jónas Hallgrímsson, höfuðskáld Íslands og Bobby Fischer, höfuðverkur Bandaríkjanna.
Hvernig væri nú að slappa aðeins af og spyrja kærustuna hans Bobbys, hvar hún vilji láta útför hans fara fram?
'Drottinn gef þeim dauðu ró, en hinum líkn er lifa.'
![]() |
Fischer grafinn á Þingvöllum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
-
katrinsnaeholm
-
zordis
-
katlaa
-
jonaa
-
halkatla
-
ormurormur
-
martasmarta
-
steina
-
gudnyanna
-
zoti
-
ragjo
-
diesel
-
estersv
-
alit
-
toshiki
-
kaffi
-
svartfugl
-
jenni-1001
-
laufabraud
-
stormsker
-
svanurg
-
guru
-
ingo
-
lindagisla
-
bjorkv
-
prakkarinn
-
agny
-
bergruniris
-
raggibjarna
-
maple123
-
saethorhelgi
-
vglilja
-
johannbj
-
partners
-
vitinn
-
zeriaph
-
gudrunmagnea
-
birtabeib
-
iador
-
gudrunfanney1
-
ibb
-
kolgrimur
-
skjolid
-
bene
-
coke
-
hux
-
nonniblogg
-
heringi
-
hjolaferd
-
amason
-
joiragnars
-
steinibriem
-
rafdrottinn
-
siggith
-
vefritid
-
ljosmyndarinn
-
poppoli
-
perlaoghvolparnir
-
vitale
-
skordalsbrynja
-
lindalea
-
bidda
-
manisvans
-
scorpio
-
haddih
-
gattin
-
korntop
-
brahim
-
klarak
-
laugatun
-
konur
-
panama
-
sigurfang
-
joklamus
-
valdimarjohannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar