Leita í fréttum mbl.is

Þrjú andlit Evu (Hugrof) Mixed media

 

 

scan0003 þrjú andlit Evu 1 small

 

Hugrof er röskun sem lýsir sér með því að einstaklingur upplifir mikla truflun á sjálfi sínu, minni eða meðvitund. Það felur í sér orsakir sálrænna erfiðleika, sem tengjast einhverjum hliðum á sjálfi einstaklingsins. Þrjár gerðir eru: 1. Óminni (amnesia). 2. Minnistap (fugue), og 3. Margklofinn persónuleiki (multiple personality disorder).

Þessi mynd mín er gerð með kvikmyndina Þrjú andlit Evu í huga,  sem var sýnd hér á landi fyrir tugum ára við  góða aðsókn og mikið umtal. Kvikmyndin fjallaði um líf konu sem hafði þrjá persónuleika, sem henni gekk illa að samræma hvor öðrum. Þetta var typisk Hollýwood kvikmynd þar sem heilbrigðasti persónuleiki sjúklingsins sigrar að lokum.

En í raun átti persónan í myndinni sér til raunverulega fyrrimynd. Það var kona sem við skulum kalla Önnu. Anna var með 32 persónuleika og saga hennar endaði ekki eins vel og í sögu persónunnar  Evu, í kvikmyndinni.

Oft klofnar persónuleiki manna við það að þeir verða fyrir miklum áföllum í lífinu, oftast nær í bernsku.
Í dag eru til lyf og einnig samtalsmeðferðir fyrir hendi, sem gera þessum sjúklingum kleyft að lifa þokkalega góðu lífi. En fyrr á  öldum nutu þeir vægast sagt  ekki velvildar og voru  oft  álitnir  andsettir. Þar af leiðandi urðu til margar óhugnanlegar sögur um þá sem þjáðust af klofnum persónuleika.
Ein frægasta sagan um tvíklofinn persónuleika er þó tvímælalaust, sagan af  Dr. Jekyll og Mr.Hyde.

Oft hefur geðklofa verið ruglað saman við tvískiptan eða margskiptan persónuleika. En hér er um tvo ólíka sjúkóma að ræða. Þar sem geðklofi einkennist af ranghugmyndum, ofsóknarkennd og á stundum mikilmennskubrjálæði. Sem betur fer geta geðklofa sjúklingar nú til dags flestir lifað góðu lífi með hjálp lyfja og samtalsmeðferða og geta allflestir stundað vinnu svo lengi sem þeir taka lyfin sín.

 

Það er mikilvægt að gæta vel að geðheilsunni með því að hugsa vel um sjálfan sig. Því enginn veit sína ævina fyrr en öll er og geðsjúkdómar gera oft ekki boð á undan sér.

 

Geðorð Geðræktar eru byggð á því sem einkennir farsælt fólk og eru þannig ábendingar til þeirra sem sækjast eftir velgengni og vellíðan í lífinu. Geðorðunum hefur verið dreift víða um land á undanförnum árum á veggspjöldum og póstkortum. Sumarið 2002 skrifaði Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, þáverandi verkefnisstjóri Geðræktar, neðantaldar greinar í Morgunblaðið um einstök geðorð undir merkjum Heilsunnar í brennidepli.

 

             Geðorðin tíu
 

1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara

2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um

3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir

4. Lærðu af mistökum þínum 5.

Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina

6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu 7.

Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig

8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína

10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Komdu sæl Guðrún Svava.

Ég er búinn að vera að hugsa um þessa mynd daginn út og inn þessa dagana svo allt í einu kemur þú með þessa fínu grein.Ég var svo hugfanginn að myndefninu á sínum tíma og ekki skemmdi fyrir að hún var byggð á sönnum atburðum.

Mih langaði svo að sjá þessa mynd þar sem að hún er stórmerkileg og ættu sem flestir að sjá hana.Mér finndist að ruv, ætti að sýna hana. Annars veist þú hvar er hægt að nálgast hana.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 04:30

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl og blessuð frænka. Góð grein hjá þér og ekki er myndin síðri.

kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 3.2.2008 kl. 06:56

3 Smámynd: www.zordis.com

Ég sá þessa mynd sem lítil stúlka og hún festist í minni mínu.  Ég sá þessa mynd til sölu á dvd síðasta sumar og bara varð að kaupa hana.  Gott horf en virkilega dapurt ástand þegar hugurinn fer í einangruð hlutverk klofans.

Mæli með þessari mynd!

www.zordis.com, 3.2.2008 kl. 11:08

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sæll Þórarinn, takk fyrir innlitið. Zordís bloggvinkona segir hér í kommenti að hún hafi keypt myndina á DVD diski. En hún býr á Spáni og ég veit ekki hvort hún fæst hér. Kannski væri best að leita að henni á stórum videó leigum. Já, mé finnst líka að ruv ætti að sýna þessa mynd og taka til sýninga fleiri góðar gamlar myndir.

Svava frá Strandbergi , 3.2.2008 kl. 13:31

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Myndin er mögnuð ( þin mynd) var alveg búin að sjá um hvað þú værir að fjalla áður en ég las textann. Mjög sterk.  Kveðja á kisulinga.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 16:21

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir Ásdís, Tító og Gosi biðja að heilsa Bóthildi baðdrottingu.

Svava frá Strandbergi , 3.2.2008 kl. 17:46

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég sá þessa mynd nokkrum sinnum sem ung stúlka og hún er greypt í minni mitt. Takk fyrir pistilinn.

Jóna Á. Gísladóttir, 3.2.2008 kl. 19:03

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mín goðorð.

1. Ég hugsa aldrei neitt. Það er langléttast.

2. Ónótast út í aumingja Mala.

3. Ég hef aldrei getað lært neitt.

4. Geri aldrei mistök.

5. Ligg alltaf eins og skata.

6. Er

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.2.2008 kl. 19:15

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

6. Þetta fór af stað óklárað.

7. Skil aldrei neitt.

8. Tek bara þátt í spretthlaupum.

9. Er gjörsamlega hæfileikalaus.

10. Nú er þetta loksins klárað.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.2.2008 kl. 19:18

10 Smámynd: halkatla

mig langar svo að sjá þessa mynd, hefurðu annars lesið Sybil? hún er um það sama.

halkatla, 3.2.2008 kl. 19:33

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk sömuleiðis Jóna. Já, það er satt þessi mynd er sem greypt í minni manns eins og þú segir.

Jæja Nimbus allsherjargoði, Þín goðorð eru sjálfum þér lík eins og vera ber. Vantar ekki húmorinn frekar en venjulega. Annars til hamingju með viðtalið í Fréttablaðinu á laugardaginn. það mætti halda að þú værir barasta 'very importan person' .

Anna Karen, mig langar líka að sjá þessa mynd aftur Leikkonan sem fór með aðalhlutverkið er eiginkona Paul Newmanns til áratuga, Joanne Woodward heitir hún.
Nimbus, þú ert svo fróður um videómyndir, veist þú hvort maður getur fengið þessa mynd á einhverrri  videóleigunni?

Nei, Anna Karen, ég hef ekki lesið Sybil, en það væri gaman að lesa hana. Hvað heitir höfundurinn? 

Svava frá Strandbergi , 3.2.2008 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband