Leita í fréttum mbl.is

Stórmál

Aðalmálið er
að hafa eitthvað
til málanna að leggja

og það er mitt hjartans mál
að ekki verði mikið mál
að leysa vandamál
varðandi málefni
og stefnumál
flokksins

eða máls málanna
sem er bundið mál

því tók ég til máls
um mál málanna
meðal málsmetandi manna

gerður var góður rómur
að máli mínu
enda er ég rómuð fyrir
að vera vel máli farin
og hafa sannfærandi málróm

kvisast hefur út orðrómur um það
að málið sé í höfn
enda er það málið

er það mál manna
að ég hafi alfarið tekið málin
í mínar hendur

og þar með leyst málið

- sem er mjög gott mál


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Að drepa á máli málanna!  Góð, og þú ert vissulega vel máli farin tala nú ekki um með pensil í hönd!

Knús inn í helgina!

www.zordis.com, 26.1.2008 kl. 10:31

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þakka fyrir mig.  

Marta B Helgadóttir, 26.1.2008 kl. 12:46

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 14:39

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð að vanda Svava mín  eigðu góða helgi.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 15:29

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er mála sannast að þú ert gjörsamlega málóð kona góð! Það er samt hið besta mál.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.1.2008 kl. 19:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband