Leita í fréttum mbl.is

Hjarnið lá yfir hrauninu eins og hrímhvít blúndusæng

Ég sit hérna með Tító minn í kjöltunni við tölvuna og blogga. Úti er allt á kafi í snjó og spáð er miklu frosti í Reykjavík á næstunni. Maður verður þá bara að búa sig vel svo kuldaboli bíti mann ekki alltof fast.

Það er enn einu sinni búið að breyta tímanum á sýningunni minni, af því að fyrir misskilning var tvíbókað í sýningarplássið. Ég fæ þá ekki húsið fyrr en í fyrsta lagi 14. apríl. En það er bara betra. Farið að vora og fleira fólk á ferli í bænum.

Ég get þá slappað betur af við að klára myndirnar mínar svo þær verði frambærilegar. Og gefið Tító og Gosa meiri tíma. Burstað þá og leikið við þá. Þeir voru eiginlega lagstir í andleg áföll vegna þess að ég skipti mér of lítið af þeim. Alltaf að mála og svoleiðis.
Ég var meira að segja farin að halda að Tító ætti ekki langt eftir ólifað. Hann lá alltaf í bælinu sínu og kom varla þó að ég kallaði á hann.  Hann hefur líka horast þó nokkuð.
Svo í dag eftir að ég vissi að ég hefði nógan tíma fram að sýningunni tók ég mér ærlegt tak og dekraði við vini mína í bak og fyrir. Burstaði þá og lék við þá og hélt á þeim í fanginu til þess að leyfa þeim að kíkja út um gluggann á snjókornin sem flögruðu hjá eins og hvítu fiðrildin.

Það var eins og við manninn mælt að  Tító hresstist allur við og hafði mjög gaman af að leika sér að pípuhreinsaranum sem ég dinglaði fyrir framan nefið á honum og allt í kringum hann. Það var eins og hann gengi í endurnýjun æsku sinnar 63 ára gamall kötturinn.

Og ég áttaði mig á því að í fánýtum eltingaleik mínum við glæstar vonir um framabraut,  hafði ég gleymt mínum bestu vinum, sem ekki einu sinni geta séð af mér þegar ég fer á klósettið.  

Ég ætla svo sannarlega að láta mér þetta að kenningu verða framvegis. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Og ég öfunda kvöldsvæft fólk eins og þig Hallgerður. Ég get aldrei drifið mig í rúmið og á þess vegna erfitt með að vakna á morgnannna.  Sýningin verður í fyrsta lagi 14. apríl eða e.t.v. einni eða tveim vikum seinna.

Svava frá Strandbergi , 29.1.2008 kl. 09:39

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ekki er þessi nýjasta mynd síðri en hinar. Í hvaða stærðum eru þær yfirleitt hjá þér??   Haltu áfram að bera góð við kisulinga, þeir eiga það skilið.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.1.2008 kl. 16:09

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jú auðvitað er skyldumæting hjá öllum úr Eyjum, Hallgerður. Ég býð ykkur Eylendingum og bloggvinum á bloggsíðunni minni.

Ásdís, stærstu myndirnar eru 100 sinnum 70 cm. fyrir utan karton og ramma. Þær verða allar með hvítt karton í kring og í gleri. Svo stærðin getur með því farið uppí  128 sinnum 99 cm. En svo eru margar aðrar stærðir fyrir neðan það og sumar myndirnar eru svo ponsu pínulitlar að þær minna helst á frímerki í XL stærð. Já, kisulingarnir eiga svo sannarlega skilið gott atlæti og vinahót, þessir bestu vinir manns.

Svava frá Strandbergi , 29.1.2008 kl. 16:34

4 Smámynd: www.zordis.com

Stórglæsilegar myndirnar þínar.  Gengur þér vel að undirbúa þig fyrir sýninguna? 

Ég er nátthrafn og finst mornarnir yndislegir.  Ég þarf á fætur klukkan 05.00 í fyrramálið en það er vinnan sem kallar!

www.zordis.com, 29.1.2008 kl. 20:05

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Zordís mín. Já það gengur eins og maður segir. Hvernig gengur þér að selja flottu flísarnar þínar?

Svava frá Strandbergi , 29.1.2008 kl. 22:21

6 Smámynd: www.zordis.com

Bara vel .... en mikill vill meira sem þýðir ekki að þakklætið kúri í hjartastað!

www.zordis.com, 30.1.2008 kl. 17:20

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

'Þakklætið kúri í hjartastað'. Einn gullmolinn enn af þínum vörum. Það verður ekki af þér skafið að þú ert skáld Zordís mín.

Svava frá Strandbergi , 31.1.2008 kl. 02:15

8 Smámynd: halkatla

ég vil senda hinum yndislega Titó mínar bestu kveðjur og dætra minna, Kassí og Karí

halkatla, 1.2.2008 kl. 11:52

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir kveðjuna til Títós Anna Karen. Tító veitir ekki af góðum kveðjum því nú er hann veikari enn nokkru sinni fyrr. Ég er alvarlega farin að ihuga hversu mikið er hægt að leggja á þetta blessaða dýr af þjáningum. Hvort ég eigi kannski að látta þetta enda hjá honum. En fyrst vil ég vera viss um að ég sé að gera rétt. því fer Tító í blóðprufu og myndatökur í dag.Fór líka til læknis í gær og í fyrradag.

Sé svo til hvað kemur út úr rannskókninni hvort það sé forsvaranlegt að láta Tító lifa lengur.

Svava frá Strandbergi , 1.2.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband