Leita í fréttum mbl.is

Hélt ég væri að drepast

Ég er búin að vera lasin undanfarið, síðan ég vaknaði upp einn morgun með svo rosalegan verk fyrir brjóstinu að ég hélt ég væri að drepast. Sem betur fer var síminn á náttborðinu hjá mér og ég hringdi strax í 112.


Svo þegar sjúkratæknarnir  komu gat ég ekki hreyft mig til þess að opna útidyrnar . Þeir hringdu þá í mig og sögðust ætla að kalla á lögregluna til þess að brjóta rúðu í útidyrunum svo þeir kæmust inn. En löggan var  þá svo klók að hún fór bak við húsið og þá voru bakdyrnar sem betur fer opnar.
Þetta var lán í óláni því enginn var heima í allri blokkinni nema ég. Svo sem betur fer hafði ég svo gleymt að læsa dyrunum að íbúðinni minni.


Herbergið mitt fylltist því fljótlega af rauðklæddum mönnum sem flettu utan af mér blússunni  svo ég lá þarna hálfnakin og tóku svo hjartalínurit, gáfu mér morfín og súrefni og hvað eina.
Tító var öskureiður yfir þessum aðförum og ætlaði að verja mig fyrir köllunum með því að liggja utan um hálsinn á mér, en hann var rekinn fram á gang með harðri hendi þar sem hann æddi fram og til baka eins og ljón í búri . Hann minnti víst einna helst á áhyggjufullan tilvonandi föður. En Gosi var svo hræddur að hann faldi sig greyið. 

Svo var keyrt með blikkandi ljósum niður á  bráðamóttöku. þar var ég rannsökuð í bak og fyrir og gefið meira morfín og súrefni. Mér var farið að líða þrusuvel og vissi orðið hvorki í þennan heim né annan. Ég var þarna í eilífðartíma en ekki gátu læknarnir sagt með vissu hvort þetta væri hjartað mitt sem væri að bila, en sögðust þó ekki geta svarið fyrir það.

Svo var ég bara útskrifuð til þess að spítalinn þyrfti ekki að borga fyrir  allt heila klabbið og mér verður sendur reikningurinn. Nú svo er ég búin að fá boð um að mæta í áreynslupróf og magaspeglun. Ég sofna alltaf út frá þessum fjárans verk og vakna við hann á morgnana. Ég vona bara  til Guðs að þetta sé eitthvað í mallanum mínum, en ekki elsku hjartað mitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir

Svava frá Strandbergi , 13.3.2008 kl. 14:23

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, ekki gott að heyra. Þeir hefðu nú séð á línuriti og blóðprufum ef hjartað væri í mestri hættu, trúlega er þetta frá maganum eins og þú segir, ég hef meiri trú á því svona miða við lýsingar þínar, kannast svo vel við hjartað og það umhverfi enda verið hjartveit frá fæðingu og er enn.  Þú lofar okkur að fylgjast með heilsunni elskuleg.  Tító hefur náttl. bara verið yndislegur á þeirri ri stundu sem allir "vondu" kallarnir voru að atast í þér Knús á ykkur.  Blow A KissBlow A Kiss

Ásdís Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 14:47

3 Smámynd: www.zordis.com

þetta hefur verið agaleg stund að geta sig hvergi hreyft!  Vonandi að þér líði betur og að þetta sé ekki neitt alvarlegt!  Knús á þig og farðu varlega!

www.zordis.com, 13.3.2008 kl. 15:06

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, Ásdís og Zordís mín. Já, þetta hlýtur að vera frá maganum, ég hef áður tvisvar fengið magasár, að vísu mjög, mjög langt síðan eða þegar ég var unglingur. Ég veit heldur ekki til þess, að hjartveiki sé í mínum ættum. En þetta var andstyggilegur verkur!  Mér finnst skárra að liggja með hátt undir höfðinu. Ekki er það gott Ásdís mín að þú sért hjartaveil, farðu vel með þig.
Já, Tító ætlaði sko að passa uppá að vondu kallarnir tækju mig ekki frá honum, en fékk svo ekki við neitt ráðið og horfði á mig borna í burtu, aumingja kallinn.

Svava frá Strandbergi , 13.3.2008 kl. 18:04

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið rosalegt er að heyra þetta Guðný mín þetta lýsi sér eins og hjartaverkur. En þeir að senda þig heim strax ég er svo hissa á því ég fékk svona bara í bakið og var ælandi ég var send strax upp á Lansan og þá kom í ljós að ég varð strax að fara í hjartaþræðingu. Ef þú finnur svona aftur þábið ég  þig elsku ´Guðný mín að hringja strax í  Læknir batakveðjur til þín

Kristín Katla Árnadóttir, 13.3.2008 kl. 18:15

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Svava mín.  Einhvern veginn hafði ég á tilfinningunni, að ekki væri allt í lagi með þig.  Því miður hefur grunur minn reynst réttur. Ég get ósköp lítið gert, nema biðja þér betri heilsu og krafta til að takast á við þetta sem hrjáir þig.

En ég sendi þér mínar bestu baráttu kveðjur og ég skal hugsa jákvætt til þín og biðja fyrir þér Svava mín það get ég gert.  Kveðja til þín frá mér honum frænda þínum.

Þorkell Sigurjónsson, 13.3.2008 kl. 18:39

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Katla mín fyrir kveðjuna, gott að þú fékkst hjálp.

Keli minn. Þú finnur oft ýmislegt á þér eins og ég. þakka þér fyrir góða kveðju kæri frændi. 

Svava frá Strandbergi , 13.3.2008 kl. 18:46

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

sendi þér ljós kæra guðný,

Blessi þig í nóttina

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 20:56

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Góðan bata og góða heilsu, kæra nafna.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.3.2008 kl. 21:36

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, kæra Steina og nafna.

Svava frá Strandbergi , 14.3.2008 kl. 00:03

11 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Æ, elsku Guðný, ég vona að þér sé farið að líða betur. Það er gott að eiga svona lífverði að eins og hann Tító þinn

Sendi þér ljós...

Bestu batakveðjur  

Ragnhildur Jónsdóttir, 14.3.2008 kl. 10:10

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, Ragnhildur mín.

Svava frá Strandbergi , 14.3.2008 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband