Leita í fréttum mbl.is

La Fontainsagan?

Engisprettan söng og dansaði allt sumarið, en safnaði engum birgðum til vetrarins. Svo reyndi hún að fá lánaðan mat hjá maur.  ´Hvað varstu að gera í sumar?' sagði maurinn.  'Ég var að dansa og syngja, 'svaraði hún.  'Jæja, haltu þá bara áfram að dansa,' sagði maurinn.
mbl.is Nýr gjaldmiðill innan 3 ára?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 12.3.2008 kl. 18:30

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Satt að segja Svava er ég í vafa hvort ég vildi frekar vera sprettan eða maurinn. Kannski er ég í raun eins og maurinn, en dáist  samt að sprettunni.   Kveðja til þín Svava mín.

Þorkell Sigurjónsson, 12.3.2008 kl. 21:55

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

það stökk nú á mig risastór engispretta í sumar í partýi hjá mér, þegar ég var á Krít í sumar, Keli. Bloggvinkona mín hún Gerður asnabóndi, sem ég var að heimsækja til Krítar, Heiða Skessa, ferðafélagi og Siggi bróðir horfðu agndofa á þegar ég tók sprettinn með engisprettunni. Ég held að ég hafi aldrei á ævi minni orðið eins hrædd, ef frá er talið þegar beinagrindin kom öskrandi í loftinu á móti mér í safni Madame Tussaide í Kaupmannahöfn. Gerður sagði að það hefði verið álitamál hvor stökk hærra í engisprettudansinum ég eða engisprettan. Já, þess vegna vildi ég heldur vera maur.

Svava frá Strandbergi , 12.3.2008 kl. 22:46

4 Smámynd: Agný

Ég hugsa að ég hefði tekið á sprett með engisprettunni eins og þú..að vísu vonandi í aðra átt en hún..Ég hef að visu lent í því að eðla hafði ákveðið að leggja undir ssig sólbekkinn minn niður á strönd á meðan ég var að að busla..Tók ekki eftir græna kvikindinu fyrr en ég var komin með hendina á hana og nærri búin að hlamma mér á hana....Ég veit ekki hvor okkar varð hræddari ég eða hún en hún þaut í burtu þegar ég öskraði svo heyrðist víst um alla ströndina miðað við viðbrögð nærstaddrra..Ég stökk upp á bakið á karlinum..en hans viðbrögð voru ekki eins snögg og eðlunnar... En þetta eðlu grey er víst sauð meinlaust en við vorum bara aðeins of nálægt klettum.sem sé í raun á hennar yfirráða svæði..En mikið var hlegið að mér fyir aumingjadóminn..og glott næstu daga... Þó svo þetta sé nú ekki það vandræðlegastaa sem ég hef lent í á sólarströnd...en það má bíða betri tíma að opinbera það...

Agný, 12.3.2008 kl. 23:24

5 Smámynd: www.zordis.com

Ekki gott að segja hvor ég vildi vera en ætli engisprettan væri ekki ofar á vinsældarlistanum!

Bestu kveðjur inn í helgina!

www.zordis.com, 13.3.2008 kl. 08:28

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Agný, ha,ha,ha, ég sé þig í anda uppi á bakinu á manninum. En fyrst við erum að tala um vandræðaleg atvik á sólarströnd lenti ég í einu meiri hátttar hallærislegu. það var þegar ég bjó í suður Californiu og fór eitt sinn niður á strönd í New Port beach. Ég var náhvít enda svo til nýkomin til landsins. svo ég kunni ekki vð að fara í sundföt innan um alla þessa 'brúningja'. og ætlaði mér alls ekki í sjóinn því þá myndi allt make upið fara til andskotans. Svo ég stóð í fjöruborðinu og dáðist að öldunum íklædd bol og stuttum skokk sem ég hafði nýlega saumað mér og fannst ég bara vera svaka kúl. Veit ég þá ekki fyrri til en risaholskeflu alda steyptist yfir mig. Mér brá ekki lítið og öskraði upp yfir mig, skíthrædd og rennandi blaut frá toppi til táar. Fötin klístruð við mig og hárið sem var í tagli samanklesst og make upið farið til fjandans. Fólkið á ströndinni sem hafði fylgst með mér hló alveg ofboðslega í eilífðartíma að mér fannst. Ég fór aldrei aftur á þessa strönd.

Svava frá Strandbergi , 13.3.2008 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband