30.11.2007 | 20:35
Mig langar svo á deit með dauðum djákna, eða bara einhverjum...
Djákni á deiti
Inni í holu brjósti
mínu
hef ég dúkað borð fyrir þig
Garún, Garún -fyrir þig.
Rauðvín í glösum
þar sem rosabaugur skín
sérðu ekki hvítan blett
í hnakka mínum
Garún, Garún?
Þar sem rosabaugur skín.
Það er einhver óeirð í mér. Mig langar að fara eitthvað út að skemmta mér, dansa og svoleiðis, þó ég verði nú örugglega hölt eftir kvöldið. Ég hef ekki farið á skemmtistað í óratíma. Er alltaf svo blönk. Fer bara í bíó og á myndlistarsýningar.
Ætla að kíkja á tvær opnanir á morgun. þá fyrri hjá honum Berg Thorberg kaffimálara bloggvini mínum. Hann verður að sýna í Art-Iceland, þar sem meiningin er að ég sýni sjálf í febrúarlok og hin opnunin er hjá Katrínu bloggvinkonu minni sem opnar sýningu í Uppsölum á Hótel Reykjavík.
Það verður örugglega gaman að kíkja til þeirra.
Annars er ég búin að vera með einhverja ólukku í maganum undanfarið, hreina og beina ælupest bara. Ég hef verið eitthvað vangæf í meltingarfærunum síðastliðna mánuði. Þegar ég er komin upp í rúm á kvöldin og er að sofna, hrekk ég oft upp við svo mikinn verk undir bringspölunum.
Það er svo sárt að það er eins og mér sé gefið rosalegt högg undir bringspalirnar svo ég æpi oft upp yfir mig. Stundum æpi ég uppúr svefninum þegar ég fæ þessi högg
Ég hef löngum verið léleg í maganum. Hef tvisvar fengið alvarleg magasár og eyddi í bæði skiptin tveimur vetrum á sjúkrahúsum. Síðan hef ég stanslaust verið með magabólgur og er orðin hundleið á þessu. Svo kannski maður hafi ekki svo mikið að gera við að fara á deit eða ball svona yfirleitt.
Annars skellti ég mér í sund um daginn en synti samt ekki neitt. Gerði bara sundæfingarnar mínar eins og í leiðslu og lét mig svo fljóta á bakinu og ímyndaði mér að ég svifi þyngdarlaus um úti í geimnum. Ég slappaði svo vel af að bara blá nefbroddurinn stóð uppúr vatninu og ég var komin í sæluvímu. En svo hrökk ég óþyrmilega útúr þessu ástandi þegar nebbakúlan fór óvart á bólakaf og vatnið fossaði inní nasirnar á mér og ofan í lungu.
Ég hóstaði einhver ósköp og fannst ég vera að drukkna. Þetta var ekki beint glæsilegt. Satt að segja held ég að ég hafi verið ákaflega hallærisleg að sjá. Eins og ég hef hingað til alltaf verið klár í því að láta mig fljóta svona á bakinu. En svo bregðast krosstré sem önnur tré.
Á sunnudaginn er meiningin að ömmubörnin Elísa Marie 6 ára og Daníel 5 ára komi og baki með mér piparkökur og ég þarf að kaupa matarlit, rauðan og grænan svo þau geti málað á kökurnar með lituðum glassúr. Við ætlum að hafa það kósý og spila jólalög á meðan við stöndum í bakstrinum.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 1.12.2007 kl. 04:18 | Facebook
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Ég er stálsleginn í maganum en ósköp lélegur í heilanum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.11.2007 kl. 20:59
Er heilinn í þér ekki farinn að visna, mig minnir að þú hafir einhvern tíma sagt það. Ég ætla að koma í heimsókn í næstu viku, ef þú verður þá viðræðuhæfur vegna heilabilunarinnar. En ég get þá allavega talað við Mala.
Svava frá Strandbergi , 30.11.2007 kl. 21:04
Góða skemmtun við baksturinn og góða helgi.
Svava frá Strandbergi , 30.11.2007 kl. 22:00
Malla málin ekki gód ... strjúktu hann í hringi, sólarátt og hugsaðu jákvæðar hugsanir. Ég fer með þér á báðar sýningarnar í huganum!
Ohhhh ... hvað það væri gaman að taka þátt í þessum göngutúrum á sýningarnar og sundlaugarflotinu. Þú þarft að fá þér eins og listsundlaugar stelpurnar en þær eru með svona nefloku (eru eins og litlar geimverur) þannig að vatnið fer ekki niður í lungu ....
knús á þig kæra .... og góða helgi!
www.zordis.com, 30.11.2007 kl. 22:09
ÉG ER VISIN VOND OG SLÖK
VILL MIG ENGINN LENGUR
VERÐ AÐ AXLA MÉR UM BÖK
ÞAÐ ER GÓÐUR FENGUR
ef þú skilur þetta líður þér betur en mér. Kveðja á þig og kisur.
Ásdís Sigurðardóttir, 30.11.2007 kl. 22:50
Ég verð þá að strjúka Mallakútinn minn í marga hringi, í sólarátt segirðu?
Ég var einmitt að hugsa um að fá mér klemmu á nefið, bara venjulega þvottaklemmu, fattaði ekkert með fínu klemmurnar. En ef ég set klemmu á nefið hvernig á ég þá að anda, með munninn í kafi og klemmu á nefinu? Hahaha þá kafna ég örugglega en drukkna ekki. Svo þetta er ekki svo góð hugmynd hjá okkur Zordís mín.
Ég er búin að senda myndina, en ég var því miður ekki nógu ánægð með prentunina. Veit ekki hvað þér finnst.
Ásdís ég skil tvo þriðju af vísunn, svo við erum svona álíka góðar eða slæmar. Það fer allt eftir því hvernig á það er litið.
Svava frá Strandbergi , 30.11.2007 kl. 23:16
Ekki líst mér á deit með dauðum djákna og alls ekki með því að "reyna" að drukkna í lauginni! Líst betur á málverkasýningaferðir. Kannski við sjáumst þá á morgun hjá Katrínu. Ég er að vonast til að komast þangað.
Það er nú ekki gott að vera svona í maganum. Vildi að ég gæti sent á þig galdur til að laga þetta en kann það ekki. Ég skal hins vegar senda þér góðar hugsanir, ljós og bænir. Annars eru nú læknarnir kannski skástir í þessu... og malandi kettir
Bestu kveðjur og góða helgi
Ragnhildur Jónsdóttir, 1.12.2007 kl. 01:39
Vonandi sjáumst við hjá Katrínu, Ragnhildur. Já kisur eru heilsubætandi. það hefur verið vísindalega rannsakað að það róar mann að strjúka ketti, maður slakar á og það hefur verið mælt að það hægir á hjartslættinum.
Svo eru kettir ótrúlega blíðar og góðar verur, allavega við eiganda sinn, en kannski ekki við mýs og fiðurfé. En það erum við ekki heldur við drepum sjálf mýs á ómannúðlegan hátt og skjótum fugla, veiðum þá í háfa eða ölum þá upp inni í rafmagnslýstum skemmum og slátrum þeim og étum þá svo.
Þakka þér fyrir góðar hugsanir, ljós og bænir. Sendi þér það sama.
Svava frá Strandbergi , 1.12.2007 kl. 01:50
Hummm, þessar sunddrottningar koma víst upp á yfirborðið með reglulegu millibili til að anda! Það er ólán að andast fyrir klaufaskap!
www.zordis.com, 1.12.2007 kl. 10:25
Hrump! Ég hef líka verið kölluð Hans-ína klaufi.
Svava frá Strandbergi , 1.12.2007 kl. 11:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.