Leita í fréttum mbl.is

Verðlaunagetraun. Hver málaði þessa mynd og hvers konar 'ismi' er þetta?

PICT0131 Getraun 1

 

Sá sem fyrst/ur kemur með svarið fær að velja sér mynd úr gallerí

albúminu á síðunni minni. Eftirprentun og verður hún prentuð

á góðan pappír í ca. A3 stærð. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hellismálverk eftir steinaldarmenn á Spáni ...

H. Þ. Magnússon (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 03:40

2 Smámynd: www.zordis.com

Totemismi og í flestum tilfellum raunsæji.  Ekki er vitað með vissu hvort hellis / steinlistamenn gerðu myndir sínar til skrauts en táknin eru lifandi enn þann dag í dag á mörgum svæðum Evrópu, myndirnar bjuggu yfir göldrum og táknuðu trúarlega arfleið.  Einna frægustu verk eru í Frakklandi meðal þekktari verka eru í Lascaux og Les tros fréres og í lendum Spánar sem dæmi í helli í Guadalajara en þetta eru svok. "mitogramas"  .  Þessi ismi þekkist og hefur verið iðkaður um allan heim en hér tek ég bara fyrir Evrópuna þar sem Ítalía, þýskaland og england eru meðal sýningarstaða.

Hellislist hefur einnig annan isma Chamanismo en það er sá ismi þar sem galdramenn og seiðkarlar gerðu ristur í hella, bjuggu sig upp og var framkallaður "ritual" meðan á ristun stóð. 

Dualisminn var þegar myndlíkingar notuðust í listinni svo sem maðurinn var tákn hestsins og konan var tákn nauts. 

Spurning hvort hér ræðir Dualisma þar sem að á myndinni eru Canút sem ætti að vera tákn karlmanns og naut sem er tákn konunnar, eða Totemisma þar sem mistíkin er greinileg í myndinni.

Ég hætti mér ekki í að giska á listamanninn .... gæti verið franskur ef hér ræðir Dualisman.

Skemmtilegur leikur hjá þér kæra vinkona!

Ekki gott að geta sér til um hvort sé á ferðinni hér en vissulega er hér um hellisverk eða steinverk að ræða.  Erfitt að segja til um listamanninn .....

www.zordis.com, 10.11.2007 kl. 12:55

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þessu get ekki svarað Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 10.11.2007 kl. 14:28

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Til hamingju Zordís, þú komst með fullkomið svar sem greindi bæði frá því að þetta væri hellamálverk og hvers konar isma gæti hér verið um að ræða.

Ég vona að þú þiggir verðlaunin  þ.e. eftirprentun á einu verka minna í gallerísalbúminu mínu. Eftirprentunin verður ca. í stærð A4 á góðan pappír og ég mundi senda þér hana. Hafðu samband annaðhvort á svavag@mi.is eða svava45@simnet.is 

Svava frá Strandbergi , 10.11.2007 kl. 16:32

5 Smámynd: www.zordis.com

En gaman .... segi nú bara takk fyrir mig!  Ég er hrifin af mörgum verka þinna og er bara fegnust að það sé orðið opið hjá þér á ný! 

www.zordis.com, 12.11.2007 kl. 08:08

6 identicon

Spurt var: Hver málaði þessa mynd ...?

Í hinu „fullkomna“ svari sagði: Ég hætti mér ekki í að giska á listamanninn .... gæti verið franskur ef ...

H. Magnússon (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 14:59

7 Smámynd: www.zordis.com

Það örlar á einhverju hér ...

www.zordis.com, 12.11.2007 kl. 16:43

8 Smámynd: Gúrúinn

Æ, missti af þessu :(  af því að bloggið þitt var læst.

Þú verður að hafa svona getraun fljótt aftur og ekki endilega verðlaunanna vegna þótt þau séu svo sannarlega eftirsóknarverð. 

Gúrúinn, 12.11.2007 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband