Leita í fréttum mbl.is

þegar haustar að sækja mýsnar í hús

 

      Gildran

Þau sækja á hug minn
svörtu augun
er spegluðu ótta
og angist dauðans.

Svo þreytt var hún orðin
og þjökuð af hræðslu
þó reyndi hún að synda
því hún elskaði lífið
og óttaðist dauðann.

Ég var tólf ára telpa
sem trúði á hið góða.

- Í sveit þetta sumar.

Hún synti til dauða
þó svörtu augun
mig sárbændu um líf.
En ég mátti ekki hjálpa.

Þau sækja á hug minn svörtu augun
- Svörtu litlu músaraugun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Ég skal trúa því að þú hafir ekki mátt hjálpa!  Blessuð sé minning músarinnar .....  Kærleikur inn í daginn!

www.zordis.com, 12.11.2007 kl. 08:10

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis Zordís mín.

Svava frá Strandbergi , 12.11.2007 kl. 11:15

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þú ert ómissandi Svava mín. Byrja daginn ávallt með innliti til þín og brósa. Það er mér eins nauðsynlegt og að draga að mér andrúmsloftið.

Þorkell Sigurjónsson, 12.11.2007 kl. 12:34

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gott að kíkja á þig og lesa ljóðin Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.11.2007 kl. 13:55

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali sér um mýsnar heima hjá mér!

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.11.2007 kl. 16:43

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Keli, kæri frændi. þú ert svo líkur honum Sjonna frænda sáluga, pabba þínum á þessari mynd.  Mér fannst alltaf eins og Sjonni frændi,væri pabbi minn lika.

Svava frá Strandbergi , 12.11.2007 kl. 18:16

7 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 12.11.2007 kl. 18:25

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hummh, ég er viss um að Mali yrði bara logandi hræddur ef hann sæi Mús og kallaði á pabba sinn.

Mér var sögð kostuleg saga í dag. Kona nokkur kom til vinar síns, sem var mikill dýravinur og hafði hann nýlega fengið sér lítinn hvolp, Var konan með tvo kettlinga með sér sem dýravinurinn hafði beðið hana um að gefa sér til þess að halda hvolpinum félagsskap. Hvolpurinn varð hinsvegar logandi hræddur við kettlingana og gelti og urraði á þá. Þeir urðu þá líka gripnir mikilli skelfingu og þustu í óðagoti upp stigann sem lá upp á aðra hæð. En á miðri leið snarstoppuðu þeir því á efstu tröppunni birtist skyndilega mús sem kettlingunum fannst svo ógurleg ásýndum að þeir frusu af hræðslu í miðjum stiganum.
Dýravinurinn lét sér hvergi bregða  og  þegar  konan  fór  var  hvolpurinn  geltandi  fyrir neðan stigann, kettlingarnir skrækjandi í miðjum stiganum, en músin dinglaði sér hin rólegasta í efstu tröppunni.

Þegar konan hafði samband við vin sinn daginn eftir var hins vegar allt fallið í ljúfa löð og músin, kettlingarnir og hvolpurinn átu öll í bróðerni af sömu skálinni. 

Svava frá Strandbergi , 12.11.2007 kl. 18:40

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Krúttleg saga og fallegt ljóð, þú klikkar ekki. Kær kveðja til þín og kisanna

Ásdís Sigurðardóttir, 12.11.2007 kl. 22:09

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Kær kveðja til þín og frk. Bóthildar.

Svava frá Strandbergi , 13.11.2007 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband