Leita í fréttum mbl.is

Sól rís sól sest ' Góða nótt'

Sólarlag  small 0005

       
Góða nótt


Dagurinn kveður,

mánans bjarta brá

blikar í skýjasundi.

Lokkar í blænum,

leiftur augum frá,

loforð um endur fundi.


Góða nótt, góða nótt,

gamanið líður fljótt,

brosin þín bíða mín,

er birtan úr austri skín.



Dreymi þig sólskin og sumarfrið,

syngjandi fugla og lækjarnið.

Allt er hljótt,  ástin mín, góða nótt.

 

Ég held að þetta ljóð sé eftir Ása í bæ,sáluga, samlanda minn úr Eyjum, sem mér veittist sá heiður að kynnast aðeins í lifenda lífi. Hann var skyldur mér í móðurætt og eitt sinn er ég hitti hann og við bæði við skál, sagði hann að ég væri með nornaaugu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég var nú bara alveg viss um að þetta væru eftir þig, svo eitthvað líkt því sem þú mundir skrifa. Knús á kisur og þig.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.10.2007 kl. 00:15

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Fallegt og íslenskt...bæði mynd og ljóð.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 08:46

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góðan  dag þetta er fallegt ljóð.

Kristín Katla Árnadóttir, 10.10.2007 kl. 09:49

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Gaman að segja frá því Svava, að nokkrum sinnum lenti ég með Ása þar sem rjátlað var við stút og ávallt nefndi hann að við værum frændur og komnir frá galdramönnum úr Skaftafellssýslu og nefndi þá  hann Ögmund forfaðir okkar í því sambandi.  Þannig að mig undrar ekki ummæli Ása um augun í þér Svava mín.

Þorkell Sigurjónsson, 10.10.2007 kl. 14:05

5 Smámynd: www.zordis.com

Norna augu, en sætt!  Myndin er mjög falleg og ljóðið hefði allt eins getað verið þitt!

Kærleikur um allan heim, til þín, mín og ykkar hinna.

www.zordis.com, 10.10.2007 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband