Leita í fréttum mbl.is

Sumarið er gengið í garð og þrír mánuðir í þjóðhátíð

Ég hef verið að fylgjast með býflugnadrottningu hér utan við húsið í nokkra daga. Hún er eins stór og kólibrífugl og ég held að  hún sé örugglega að leita sér að hentugum stað fyrir búið sitt.
Ég horfði á hana út um opinn gluggann síðdegis þar sem hún sveimaði um garðinn, augljóslega í rannsóknarleiðangri. Hún var svo feit og falleg og mikið mega krútt.
Ég vona bara að hún finni sér hentugan bústað til að verpa í og fjölga býflugnakyninu.

Það hefur líka verið mikið af þröstum undanfarið hér í garðinum, að leita sér að æti og mér sýnist þeir vera búnir að para sig.
Þegar sumar og sól gengur í garð þá tekur lífið og ástin völdin og þá langar mig á Þjóðhátíð.

Á Þjóðhátíð svífur ástin yfir vötnunum eða réttara sagt Daltjörninni, því allir eru svo ofboðslega rómantískir á Þjóðhátíð, að þeir geta vart litið framan í nokkra manneskju án þess að verða yfir sig ástfangnir. 

Á Þjóðhátíð upplifa allir íbúar og gestir dalsins, hina dularfullu töfra ástarinnar og vináttunnar sem ræður ríkjum í þessari ljósumprýddu  undraveröld í  svo örfáa, en þó svo ógleymanlega daga, sem geymast í minningunni eins og helgidómur, innst í hjartastað.

Þjóðhátíð í Eyjum er einstök og þó ég hafi víða farið og margt séð þá hef ég aldrei upplifað neitt sem kemst í hálfkvisti við mína heittelskuðu Þjóðhátíð.

 

Logandi bál 

Ást mín er logandi bál eins og brennan á þjóðhátíð í Eyjum.

 

Guðný Svava Strandberg. 

 

Ágústnótt 
 

Þú undurhlýja ágústnótt
ég ennþá um það dreymi
er inn í tjald
hann kom um kvöld
og kyssti mig í leyni.

þó liðin séu ár og öld
heil eilífð um það bil
þeim kossi
og hvarmaljósum tveim
gleymt kann ég ei né vil.

Því leiðir skildu á lífsins braut
hans lá um hafsins strauma
en ég sat heima og bað og beið
í bríma fornra drauma.

 

Guðný Svava Strandberg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Dýrin eru yndisleg, feitar bíflugur eða kúrulegir kettir!  Á þjóðhátíð væri gaman að fara þó ekki nema bara á sunnudeginum.

Flott ljóðin þín, seinna finnst mér æði!  Rós og rómantík ..... 

www.zordis.com, 2.5.2008 kl. 14:53

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

við erum eitthvað á sömu bylgjulengd þessa dagana Ég var einmitt að skipuleggja tjaldkaup til að fara með í útilegu um verslunarmannahelgina að vísu fer ég í Vatnaskóg það er algjört æði, en minningar um þjóhátið í eyjum eru allta ljúfar.

Guðrún Sæmundsdóttir, 2.5.2008 kl. 21:48

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Guðrún og Zordís, við erum allar á sömu bylgjulengd inn við beinið.

Svava frá Strandbergi , 2.5.2008 kl. 22:13

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til þín Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 2.5.2008 kl. 22:57

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis Katla mín.

Svava frá Strandbergi , 2.5.2008 kl. 23:21

6 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Þjóðhátið er alltaf yndisleg! Á margar góðar þjóðhátiðarminningar

Hef verið á öllum þjóðhátíðum í mínu lífi nema  1973. Fór meira að segja með son minn 10 daga gamlan í dalinn "90!!! Byrjaði með mínum manni í júlí "77

sambandið innsiglað á þjóðhátið í tjaldinu hjá foreldrum hans og tvær tilvonandi svilkonur liggjandi í götunni fyrir utan að fylgjast með hehehehe

En fallegt ljóð hjá þér...... yndislegur köttur algjör bjúti.....ég á eitt fress...eina tík.. nokkra fiska...nóg af dýrum í bili..

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 3.5.2008 kl. 23:31

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ja há, Hjördís, sambandið innsliglað í tjaldinu já. Það minnir mig á það að  hún dóttir mín kom undir á þjóðhátíð  í ágúst ´77.

Ég á tvo fressa, Tító og Gosa, en ég hef áður átt þrisvar sinnum hund og 9 páfagauka. Fyrst voru það gaukshjón sem fjölguðu sér upp í 7 stykki og svo tvisvar sinnum sitt hvor gaukurinn. Svo hef ég átt gullfiska lika. 

Svava frá Strandbergi , 3.5.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband