Leita í fréttum mbl.is

Nornin

Óla hrökk upp með andfælum, hún hafði sofnað út frá sjónvarpinu að venju. Hún var ein í stofunni. Jónsi löngu farinn í háttinn án þess að hafa fyrir því að vekja hana. Hún var sársvöng enda í enn einum megrunarkúrnum og nú æpti magi hennar á eitthvað sætt, helst súkkulaði, hún var sjúk í súkkulaði. Hún varð að fá súkkulaði strax! Skítt með þennan vonlausa megrunarkúr, hugsaði hún ergileg.

Hún nennti ekki út í sjoppu svo henni datt í hug að vekja Jónsa eins og venjulega. Hann var ekki óvanur því að sendast fyrir hana þegar sætindalöngunin náði tökum á henni, en svo áttaði hún sig á því að komið var fram yfir miðnætti og löngu búið að loka helvítis sjoppunni á horninu.
Hún gæti náttúrulega pantað leigubíl og sent bílstjórann í einhverja næturbúllu eftir súkkulaði. Hún hafði gert það nokkrum sinnum, en nú lagði hún ekki í það, því stúlkan á stöðinni hafði verið svo dónaleg við hana síðast þegar hún hringdi. Hún hafði spurt hana í hæðnistón hvort leigubílstjórinn ætti virkilega bara að kaupa eitt súkkulaðistykki.

Óla hafði fokreiðst. Hvern fjandann var þessi glyðra að skipta sér af því hvað leigubílstjórarnir keyptu fyrir kúnnana? Það kom henni ekki nokkurn skapaðan hlut við. Hún hafði hellt sér yfir þessa óforskömmuðu stúlkukind og skellt svo á hana og nú þorði hún ekki fyrir sitt litla líf að hringja aftur.

Óla ranglaði fram í eldhús og leitaði í öllum skúffum og skápum að súkkulaði en þar var ekkert að finna. Það var ekki einu sinni til kakómalt eða smá súkkulaðbúðingur hvað þá meira. Hún var orðin ösku þreifandi ill út í Jónsa. Hún hafði vonað innst inni að hann hefði keypt súkkulaði handa henni. Hann gerði það stundum án þess að hún bæði hann um það, sérstaklega þegar hún var í megrun, svo fékk hann alltaf óbótaskammir þegar hún var búin að gleypa í sig góðgætið.
Þú vilt bara að ég sé feit sagði hún ætíð við hann eftir á ásamt ýmsu öðru miður fallegu og brast svo ævinlega í grát.

Jónsi vissi ekki lengur hvað sneri upp eða niður þegar kona hans átti í hlut og reyndi því alltaf að hegða sér eins og í spilamennsku og sagði oftast pass.

Óla heyrði eittvað þrusk fyrir aftan sig og sperrti eyrun. Þetta var auðvitað Jónsi að koma fram úr, til þess að fá sér nætursnarl. það voru fastir liðir eins og venjulega.

;Nei ertu vakandi elskan? Tafsaði Jónsi þvoglumæltur þegar andlit hans birtist fyrir hornið á ísskápnum. Ólu fannst þetta svo heimskulega spurt að henni datt ekki einu sinni til hugar að ansa honum.
;Ég er svo svangur;, muldraði Jónsi. ;Það eru nú fleiri', hreytti Óla, afundin út úr sér.
Jónsi hélt áfram. 'Það er svo undarlegt hvað ég verð alltaf matlystugur af þessum svefnpillum'
'Ég vakna undantekningarlaust eftir svona klukkutíma eða svo, svo glorhungraður að ég verð bara að fá mér eitthvað að éta; , tuldraði hann. Óla horfði á bónda sinn. Hann var ekki beint fyrir augað núna. Bara á nærbuxunum einum fata sem pokuðu  einhvern veginn utan um hann rétt fyrir neðan ístruna. Bakið bogið eftir tugi ára erfiðisvinnu og æðahnútar á fótleggjunum og til að kóróna allt saman var hann vita tannlaus sem gerði það að verkum að nefið virtist enn stærra en venjulega.

Jónsi opnaði ísskápinn og beygði sig niður til að ná í mjólkina og Ólu langaði allt í einu til þess að sparka í rassgatið á honum Eitt þrumuskot og hlaupa svo eins og andskotinn í burtu, en hún sat á sér og hálfskammaðist sín. Var hún virkilega svona vond manneskja? Hugsaði hún skelfd.
;Ég er líka að drepast úr hungri;, mælti hún lágum rómi. Ha! Sagði Jónsi með hausinn á kafi inni í ísskápnum. 'Mig dreplangar svo í súkkulaði', æpti Óla. ;Hvað er þetta manneskja? ;Það er óþarfi að öskra svona. Þú vekur alla í húsinu með þessum látum´, svaraði Jónsi snöggur upp á lagið.
Af hverju keyptirðu ekkert súkkulaði handa mér?' Vældi Óla ásakandi um leið og Jónsi teygði sig eftir matarkexinu. Hu! Mér datt það ekki í hug', ansaði Jónsi. Þú spikfitnar af því', bætti hann svo við. Þú átt bara að fá þér mjólk og kex eins og ég, sagði hann rogginn um leið og hann snerist á hæl til að labba með bitann sinn upp í rúm.

Ólu langaði mest til að myrða bónda sinn með köldu blóði. Að hann skyldi segja þetta. Hann sem sjálfur var alltof feitur. Honum væri mátulegt að renna á rassgatið með helvítis mjólkina hugsaði hún í heift sinni.
Í sama bili glopraði Jónsi glasinu út úr höndum sér svo það skall í gólfið og innihaldið myndaði stóran poll fyrir framan ísskápinn.
Jónsa varð svo mikið um að honum skrikaði fótur í bleytunni. Hann æpti upp yfir sig um leið og hann missti jafnvægið og matarkexið og lenti á óæðri endanum í miðjum mjólkurpollinum.

Óla starði á Jónsa í forundran þar sem hann sat á gólfinu rennblautur eins og hundur af sundi dreginn, með kexið á floti í pollinum við hliðina á sér. Svo fór hún að hlægja. Hún hló tryllingslega. Benti á eiginmann sinn og hló. Þetta var gott á þig, gat hún loks stunið upp á milli hláturrokanna.
Svo hélt hún áfram að hlægja einkennilega holum hlátri.  Andlitsdrættir hennar máðust út í rauðleitri þokumóðu og umbreyttust síðan í ófrýnilega grettu, svo rétt grillti í illúðlegar gular glyrnurnar.

Guðný Svava Strandberg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

assgoti var þetta skemmtileg saga. Takk fyrir mig

Jóna Á. Gísladóttir, 11.6.2008 kl. 15:54

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir Jóna.

Svava frá Strandbergi , 11.6.2008 kl. 18:05

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað er assgat?

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 21:21

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, hérna! Nú sé ég á myndunum að við Svava erum skyld!

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 21:23

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hvaða assgat, Siggi? Meinarðu ekki assgot- i?

Já, brósi minn, margt er líkt með skyldum. 

Svava frá Strandbergi , 11.6.2008 kl. 22:42

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

En börnin okkar, sem eru með okkur á myndunum, eru  samt ekkert lík, þó þau séu systkinabörn.

Svava frá Strandbergi , 11.6.2008 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband