Leita í fréttum mbl.is

Tveir viðburðaríkir dagar í röð

Í gær sló ég blettinn við blokkina og tók það um fimm klukkutíma. Grasið var orðið svo loðið meðan ég var í Danmörku að sláttuvélin var alltaf að drepa á sér. Þurfti ég að sæta færis þegar karlkyns mannvera átti leið framhjá og biðja um hjálp til að starta vélinni aftur og aftur og aftur... Svo þurfti ég að slá kantana á beðunum með sláttuorfi og líka grasið meðfram allri girðingunni.
En mikið assgoti var bletturinn fallegur þegar ég var búin að slá hann

Trén sem ég keypti eru orðin ansi stór, sérstaklega aspirnar. Það hafði brotnað ein grein á reynitrénu og rétt lafði hún við tréð á nokkrum tægjum.
Ég hjúkraði trénu, setti vatnsheldan plástur utan um greinina og margvafði svo grisju utan um allt saman svo greinin héldist uppi.
Ég hafði gert svipað áður þegar birkikvisturinn brotnaði á einum stað og það brot greri vel.

Birkikvisturinn skartaði meira að segja fallegum hvítum blómum það sumarið. Fjölæru blómin prýða garðinn  einnig mikið, túlípanar, hjartablóm, Himalajablágresi. burnirót, silfursóley, fjólur, valmúar og fl. og fl. Ég get verið reglulega stolt af garðinum sem ég hannaði og keypti allt í, ein, nema hengigullregnið, sem húsfélagið keypti. Það var meira að segja sagt á síðasta húsfundi að garðurinn væri okkar sómi.

Svo tók ég til í allri íbúðinn, öllum skápum meira að segja líka og gaf öndunum brauð, Já, gaf öndunum  brauð, sagði ég. Það eru andahjón sem halda sig hérna við blokkina og ég traktera þau á heilu brauðsneiðunum trekk i trekk.
Þegar ég var búin að gefa þeim þrjár brauðsneiðar sem þau úðuðu í sig fór ég inn í stofu og hélt áfram að taka til. En eftir smástund heyrði ég ákaft, bra, bra, fyrir utan gluggann. Stóðu þá ekki andahjónin staðföstu rétt við blettinn og störðu upp í svalagluggann til mín í von um meira góðgæti. En þegar ég var tilbúin með meiri birgðir og ætlaði að kasta til þeirra hófu þau sig til flugs og hurfu fyrir hornið á næstu blokk, skammirnar þær arna.

Seinna um daginn þegar ég leit út um gluggann sá ég að svört og hvít læða sem ég kannast aðeins við, af því hún er skotin í Gosa,  var að gæða sér á brauðinu á blettinum, að því er virtist með bestu lyst. Í miðjum klíðum var hún ónáðum með háu gargi í starra sem þóttist hafa allan rétt til þessa lostætis og skammaði hann kisu með mikilli frekju, sitjandi bísperrtur á einum af  girðingarstaurunum. 

Kisa lúskraðist í burtu og faldi sig inni i runnaþykkni, greinilega í veiðihug. Svo þegar starrinn settist  hjá brauðmolunum rauk hún undan runnanum og ætlaði sér auljóslega eftir allt saman starrann sjálfan í matinn en ekki brauðdraslið, en starragreyið slapp með skrekkinn, sem betur fer.
Þá hafði kisa þóst hafa áhuga á brauðinu til þess að espa upp fuglana með þessari óvenjulegu hegðun sinni og ætlað sér allan tímann að sæta færis í runnunum til þess að veiða þá.
Kettir eru sko klókir finnst mér og það finnst örugglega fleirum held ég líka.

Þegar ég kom inn frá því að slá blettinn um kl. hálf tíu um kvöldið hringdi sonur minn í mig og óskaði mér til hamingju með að hafa eignast enn eitt  barnabarnið , sem fæddist klukkan hálftíu um morguninn. 14 marka strák og allan kafloðinn!! Sagði hann?? Ég vona bara að hann hafi aðeins átt við höfuðhárið á barninu!
Þetta er fimmta barnabarnið mitt og svo er dóttir mín og tengdasonur eftir þegar þau eru búin að prufa það að búa í útlöndum, eða svo segja þau.

Í mögun vaknaði ég hálf átta og kláraði að taka til og brá mér svo í búðir og keypti mér æðisleg náttföt, eldrauð og flott. Ég skrapp líka aðeins í vínbúð og keypti smábjór. þar hitti ég fyrrverandi nemanda minn, sem er snillingur í myndlist og skutlaði hann mér heim í grenjandi rigningunni. Á leiðinni fræddi hann mig um leyndardóma ásatrúarnnar,  en hann er eldheitur heiðingi og bætti Þórs nafninu við nafnið  sitt, þegar hann gekk í ásatrúarsöfnuðinn. Svo er hann lika algjört séní í kollinum að öllu öðru leyti eins og allrir sannir snillingar auðvitað eru 

Ég montaði mig af garðinum við hann og hann kom út úr jeppanum sínum þegar heim til mín var komið til þess að skoða dýrðina. Ég smellti kossi á kinnina á honum með þakklæti fyrir bíltúrinn og hann klappaði mér vinalega á bakið í staðinn og ók svo á brott með  bjórbirgðir sínar, heim til sín,  til þess að horfa á einhvern andskotans fótboltaleik!! 

Í kvöld fór ég svo á kaffihús með vini mínum frá Danmerkurferðinni. Við fórum fyrst á Kaffi Viktor, en þar sem þar var varla nokkur sála færðum við okkur yfir á Café Paris.
Við fengum okkur Sviss Mocca, algjört nammi, namm og síðan sinn hvorn bjórinn og skáluðum fyrir velheppnaðri Danmerkurferð og kjöftuðum um stærðfræði, (en hann er algjör stærðfræðigúru), heimspeki og ljóðlist. Svo ætluðum við að færa okkur yfir á annan bar þar sem vinahópur hans heldur vanalega til, en ákváðum á síðustu stundu að fara að dúlla okkur heim.
Við ákváðum áður en við kvöddumst að fara svo fljótlega í bíó og sjá Beðmál í borginni.

Tító liggur íi fanginu á mér núna á meðan ég blogga og við erum orðin grútsyfjuð. Gosi er löngu sofnaður frammi í stofu, en Tító fer náttúrulega ekki uppí rúm fyrr en ég,  hún mamma hans, drattast með barnið i  bólið. Góða nótt öll og sofið rótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Ú la la allt að gerast.....

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 8.6.2008 kl. 02:35

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta er fjölskrúðugt hjá þér .....! Að slá í 5 tíma; þú ert hreystimenni. Ég væri dauð eftir svona 2.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.6.2008 kl. 10:19

3 Smámynd: www.zordis.com

Af lýsingunni að dæma þá ertu búin að galdra fram eitt stk. skrúðgarð!

Til hamingju með litla "loðna" drenginn, yndislegt að fá svona nýbökuð krútt í heiminn.  Frænka mín er í heimsókn með væna kúlu sem gaman er að strjúka.

Kettir eru sniðugir

www.zordis.com, 8.6.2008 kl. 10:33

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Dugleg ertu stelpa. Heilmikið sem þú afrekað. Vona að heilsan sé góð í dag eftir allt þetta.  Innilega til hamingju með loðna barnið, fáum við myndir fljótlega??  Hafðu það gott mín kæra og kveðja á kisurnar 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.6.2008 kl. 11:47

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

til þín

Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2008 kl. 15:04

6 Smámynd: Linda Samsonar Gísladóttir

Skemmtileg færsla.

Til hamingju með barnabarnið!

Og blómin.....og framtakssemina.

Góður dagur hjá þér. 

Linda Samsonar Gísladóttir, 8.6.2008 kl. 16:07

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk allar fyrir hamingjuóskirnar með barnabarnið. Ég fór að sjá hann í dag og hann er auðvitað fallegasta barn sem ég hef séð hingað til.

Ég skildi strax þegar ég sá hann hvað pabbi hans átti við með því að barnið væri kafloðið, því hann er með svo mikið svart hár, meira að segja með barta og mjög þykkar dökkkar augnabrýr.
Hann er þó, Guði sé lof,  ekki með skegg ennþá blessað barnið, en það kemur kannski seinna.
Pabbi hans var strax kominn með nafn á drenginn og kallaði hann Viktor Darra.

Svava frá Strandbergi , 8.6.2008 kl. 18:58

8 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl og blessuð kæra frænka og til hamingju með barnabarnið og auðvitað er ég montinn af nýjum frænda mínum.  Sama má segja um mig Svava mín, að dagar  vikunnar hafi verið mér viðburðarríkir og erfiðir. 2. júní dó konan mín hún Elísabet og 4. júní eignaðist tengdadóttir mín og sonur litla dóttir. Í gær fór svo fram jarðarför konu minnar frá Landakirkju.  Þannig að við eigum það sameiginlegt, að margt hafi í vikunni gerst. En svona er lífið Svava mín, dauði og nýtt líf.  Sendi þér mínar innilegustu kveðjur.  

Þorkell Sigurjónsson, 8.6.2008 kl. 19:26

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Elsku Keli frændi. Þakka þér fyrir hamingjuóskirnar.

Ég samhryggist þér innilega vegna andláts Elísabetar. Ég vissi að hún væri veik, en ekki að það væri svona alvarlegt. Á sama hátt samgleðst ég þér með fæðingu sonardótturinnar. Er hún dóttir Sigurjóns og konu hans?

Hvernig líður Karli, er hann eitthvað að jafna sig eftir missi konu sinnar? Já, það er satt að eitt sinn verða allir menn að deyja, en við munum vonandi lifa áfram í börnum okkar og barnabörnum.

Ef litli sonarsonur minn verður látinn heita Viktor, eins og pabbi hans var að tala um, verður hann nafni Vitta frænda, bróður þíns.

Kærar kveðjur til þín.

Svava frá Strandbergi , 8.6.2008 kl. 21:08

10 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þakka þér innilega Svava mín. Jú rétt er það Sigurjónsdóttir er hún. Karl er allur að koma til finnst mér, sem betur fer. Það er ekkert venjulegt hvað hann hefur gengið í gegn um. Var búinn að dreyma fyrir þessum tveimur dauðsföllum.  Greini þér frá því seinna meir. Viktor er frábært nafn og sé alltaf eftir að hafa ekki látið yngri son minn, Ólaf Helga heita Viktors nafninu. Það er svo fjarskalega fagurt í mínum huga. Þess vegna yrði það fræbært að fá frænda sem bæri Viktors nafnið.  Dóttir mín er hérna hjá mér Sigríður Þóranna og báðar dætur hennar, Azíta og Anna Guðrún. Er helst á því, að ég fari með þeim til Svíþjóðar, þegar þær fara og þá reyni ég örugglega að koma við hjá þér Svava mín.  Kveðja. 

Þorkell Sigurjónsson, 8.6.2008 kl. 21:35

11 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Gleymdi að segja þér, að það eru myndir af nýja afa barninu á bloggsíðunni minni. Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 8.6.2008 kl. 21:39

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég ætla að kíkja á afaprinsessuna á síðunni þinni. Hlakka til að sjá þig, áður en þú ferð út.

Svava frá Strandbergi , 8.6.2008 kl. 21:44

13 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er alveg yndisleg færsla hjá þér. takk fyrir að leifa mér að koma inn í ferðalagið þitt svo lifandi og yndislegt !

blessi þig í kvöldið, fagur fiskur í sjó !

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.6.2008 kl. 19:33

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, Steina. Blessi þig líka inn í kvöldið.

...með rauða kúlu á maganum

brettist upp á halanum... 

Guðný Svava 

Svava frá Strandbergi , 9.6.2008 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband