22.2.2008 | 20:35
Þetta kemur ekkert lauslæti við
Stúlkan er bara svona frjó og vafalaust fær hún ekki leyfi til þess að nota neinar getnaðarvarnir, í landi þar sem flestir eru kaþólskir.
En ungar stúlkur sofa hjá nú til dags og kaþólikkar ættu að sjá sóma sinn í því að leyfa getnaðarvarnir, því ekki er auðvelt að vera 7 barna móðir aðeins 16 ára gömul.
Móðir mín eignaðist reyndar þríbura, sem fæddust þrem mánuðum fyrir tímann. Því var trúað í þá daga að börn sem fæddust svona löngu fyrir tímann, gætu ekki lifað, þess vegna var ekkert hlúð að þríburunum. Þeir voru bara lagðir naktir á rúmdýnu, ekki svo mikið sem vafið handklæði utan um þá. Mömmu var ekki einu sinni leyft að sjá börnin , en heyrði þau gráta í u.þ.b. klukkutíma, svo hljóðnuðu þau smám saman.
Síðan þegar læknirinn og ljósmóðirin voru farin læddist hún fram til þess að skoða börnin sín, þó hún ætti að liggja í rúminu í 10 daga samkvæmt hefðinni í gamla daga.
Þríburarnir voru fullsköpuð börn með neglur meira að segja. I dag hefði allt verið gert, til þess að halda þessum börnum á lífi. Aumingja mamma mín að hafa þurft að þola þetta.
Síðan eignaðist mamma mig ári seinna og tveimur árum eftir það fæddi hún tvíbura, tveimur mánuðum fyrir tímann.
En mamma var séð þá, því hún skrökvaði því að hún væri gengin átta mánuði með, því annars hefðu ófæddu börnin hennar, farið sömu leið og þríburarnir, þar sem því var haldið fram í þá daga að börn yrðu að vera að minnsta kosti búin að vera átta mánuði í móðurkviði þegar þau fæddust til þess að hafa einhverja möguleika á að geta lifað.
Ég sjálf á tvo drengi og eina stúlku. Strákarnir eiga báðir börn og ég er orðin fjórföld amma og það fimmta er á leiðinn hjá tengdadóttur minni.
En dóttir mín á ekkert barn ennþá. Ekkert af barnabörnunum eru tví eða þríburar, þar sem fjölburafæðingar erfast í kvenlegg og hlaupa yfir einn ættlið.
Dóttir mín getur því átt von á því að eignast tví eða þríbura samkvæmt því að fjölburafæðingar erfast frá ömmu til dótturdóttur, enda hefur dóttir mín oft talað um þetta og er hálf nervus yfir þessu.
En sem betur fer er hún vel menntuð og orðin þroskaðri en þessi 16 ára argentínska stúlka.
Svo á hún góðan kærasta. Hún mun því vafalaust geta séð vel fyrir börnunum sínum hvort sem hún eignast tví eða þríbura, eða ekki.
Unglingsstúlka eignast aftur þríbura | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Almáttugur minn, ég fæ tár í augun að lesa þetta, ósköp hefur mamma þín þurft að líða þegar þetta gerðist, á varla til orð. Man eftir sögu af mann sem er nú látinn í hárri elli, hann var mikill fyrirburi 6 mán. og 5 merkur ca. hann var bara settur í skókassa og undir rúm meðan mömmu hans var sinnt, hún var nær dáin við fæðinguna. Töluvert löng síðar var kíkt í kassann og þá lifði barnið, hann var með stærri og myndarlegri mönnum sem ég man eftir úr æsku minni. Nei, þú þarft nefnilega ekki að hafa samfarir oftar en þrisvar til að eiga þessu 7 börn fyrst það voru 2 x 3 börn, aumingja stúlkubarnið
Ásdís Sigurðardóttir, 22.2.2008 kl. 20:41
Alveg hrikaleg upplifun móður þinnar! Það er með ólíkindum hvað tæknin leyfir okkur í dag og hvað hugur okkar hefur mikið að segja!
Mikið er þessi stúlka ung og komin með 7 börn! púff .....
www.zordis.com, 22.2.2008 kl. 21:32
Ég er annar af þessum tvíburum. Við vorum reyndar fætt næstum því tveimur og hálfum mánuðum fyrir tímann. Ef mamma hefði ekki verið svona klók værir þú háttvirti athugasemdalesari ekki að lesa þessi orð!
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.2.2008 kl. 21:33
Gleymdi að taka það fram að hinn tvíburinn er sá sem er með mér á myndinni!
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.2.2008 kl. 21:34
Kommon Sigurður, er kisulúsin tvíburinn þinn .... ?
www.zordis.com, 22.2.2008 kl. 22:25
Andlega séð.
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.2.2008 kl. 22:42
Sigurður, þú ert nú álíka skondin og systir þín, þið eruð greinilega af góðum komin. Mali er flottur.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.2.2008 kl. 23:16
Úff þetta er hræðilegt að lesa.
Bryndís R (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 09:13
blessuð unga stúlka, er algjörlega sammála þér um það sem þú skrifa. hræðilegt að heyra um hana mömmu þína, það hlýtur að vera erfitt fyrir hana að mifa með þessa minningu vitandi það sem meður veit í dag.
Bless til þín á fallegum laugardegi.
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 14:51
Mamma er dáin Steina, en það er satt hjá þér að það tók mikið á hana að lifa þessa hræðilegu lífsreynslu og oft talaði hún um þríburana sína. það átti ekki eð leyfa það að jarða þá, en þeir fengu að vera í sama leiði og eins árs frænka þeirra sem dó úr lungnabólgu um sama leyti því penisillinið var ekki komið þá. Nafn frænkunnar er á legsteiniinum og svo þríburanna.
Svava frá Strandbergi , 23.2.2008 kl. 15:52
Mikið er hræðilegt að lesa þetta Guðný mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 23.2.2008 kl. 16:13
kveðjur inn í nóttina!
Sigurður það er rétt við erum andlega tengd svo mörgu. Kisur eru yndislegar það er eitt sem er víst!
www.zordis.com, 24.2.2008 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.