Leita í fréttum mbl.is

'Álfadans'

DSC00016 Vetrardýrð small

'Í tungsljósi á ís yfir Tungufljót ég reið,
teygða ég þar hestins á snarpasta skeið;
en viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.

Hart greip hann sprettinn og sparði ei afl,
spegilhált var svellið og stæltur var skafl.
En viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.

Allt í einu fældist og frýsaði hátt
fákurinn og öfuga snerist í átt.
Því viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.

Gat ég að líta, hvar álfa fimur fans
fetaði út í vatnið og sté þar í dans.
Já, viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.


Hver um annan kyrpingur kænlega hljóp,
köldum geislum stafaði fölvan á hóp,
svo viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.

Annarleg sveif mér þá löngun í lund,
lysti mig að sækja þann kynlega fund;
en viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.

En ei fékk ég hestinum otað úr stað,
og lof sé Guði fyrir, hann bannaði það,
því viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.

Því þar sem álfar frömdu sinn feiknstafaleik,
feigðarhylur gein þar, og spöngin var veik,
svo viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.'

 

Grímur Thomsen 1820-1896


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Geðgt flott mynd :)

gerður rósa gunnarsdóttir, 26.2.2008 kl. 08:43

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Gerður, sérð þú einhverja mynd? Ég sé engar myndir lengur, blokkeraði þær út og kann ekki að setja þær inn. Kan du venligst hjælpe mig?

Svava frá Strandbergi , 26.2.2008 kl. 10:00

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þið eru báðar kolgeðgt! Og ég er asni!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.2.2008 kl. 10:26

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Falleg mynd.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.2.2008 kl. 11:36

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Asnaleg sveif mér þá löngun í hund
lysti mig að klæðast sem kynlegasta sprund....

Botinið þið nú!

Svava frá Strandbergi , 26.2.2008 kl. 12:33

6 Smámynd: www.zordis.com

Ég sé myndirnar!

að botna;

púff þú segir nokkuð.

Asnalegri löngun hafði í Nóa Kropp

höfuðprúð með fjaðrir og brakandi Popp

www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 13:52

7 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Falleg mynd.

Bestu kvedjur fra London.

Jenni.

Jens Sigurjónsson, 26.2.2008 kl. 14:47

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Okey Zordís, vísan okkar er þá svona. Bæti einu orði inn í hjá mér.

Asnaleg sveif þá að mér löngun í hund.

Lysti mig að klæðast sem kynlegasta sprund.

Asnalegri löngun hafði í Nóa kropp.

Höfuðprúð með fjaðrir og brakandi popp. 

Það eru tveir stuðlar þarna í fyrstu línu. Asna l eg og l öngun

og einn höfuðstafur í annari línu L ysti.

Svo eru hjá þér tveir stuðlar í þriðju línu A snalegri og l öngun

En þá vanta L í fjórðu línu sem höfuðstaf.  

Svo hvernig væri  þá, að breyta Höfuðprúð í Lagðprúð ?

þá verður vísan svona með því að bæta einu orði sem er 'þó´inn í þinn part 

 Asnaleg sveif þá að mér löngun í hund.

Lysti mig að klæðast sem kynlegasta sprund.

Asnalegri löngun þó hafði í Nóa kropp.

Lagðprúð með fjaðrir og brakandi popp! 

'

Þetta er algjör tímamótakveðskapur hjá okkur. Við ættum að senda þetta í ljóðasamkeppni! 

Svava frá Strandbergi , 26.2.2008 kl. 15:51

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Stuðullin í þriðju línu er Asna l egri, en ekki A snalegri.

Svava frá Strandbergi , 26.2.2008 kl. 15:54

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Guðný mín..er þetta ný mynd hjá þér..mér finnst hún líka geðgt flott...en ég botna ekkert í þessum botnum!!!

Hlakka til að sjá sýninguna þína..hvenær átti hún aftur að vera..í apríl??'

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.2.2008 kl. 18:55

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, Katrín mín, þetta er nýleg mynd. Takk fyrir að segja að hún sé geðgt flott. Botnarnir já, humm, þeir eru geðgt líka  finnst mér, eða þessi eini sem er kominn frá Zordísi. Við Zordís erum báðar svo botnlaust geðgt.

Jamm, sýningin verður einhvern tímann í apríl. Ég er geðgt nervös yfir henni. 

Svava frá Strandbergi , 26.2.2008 kl. 19:03

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rosalega er ég farin að hlakka til sýningarinnar ykkar, ætla að fara að spara

Ásdís Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 19:56

13 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Það verður meiriháttar að sjá sýninguna. Hvenær verður hún? Mér finnst myndirnar þínar alveg frábærar  eða ... geðgt flottar

Ragnhildur Jónsdóttir, 2.3.2008 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband