Leita í fréttum mbl.is

Hamfarir á svölunum eina ferðina enn!

Ég hringdi í 112 í gærkvöldi af því ég sá að tvöfaldi glugginn á svölunum var við það að fjúka upp og ég og kettirnir vorum vægast sagt, mjög óróleg.  það var með herkjum að ég fengi aðstoð.  Löggudóninn sagði með ískaldri, norðangarra röddu, að það væri ekki í  verkahring lögreglunnar að gera við bilaða glugga. Helvítis löggan alltaf!  Ég varð alveg öskuþreifandi ill og tjáði honum, að ég hefði ekki getað lokað fjárans glugganum almennilega, síðan hann fauk upp í  fyrsta sinni. Þá hefði mér verið neitað um hjálp og ég hefði þurft að standa í stórræðum ein og  sjálf, kerlingarskarið, við það að þvinga aftur gluggann, með einum kústi og tveim moppum, í grenjandi rigningu og ofsaroki. Og ég hefði fengið lungnabólgu í kjölfarið. Nú væri ég með byrjandi blöðrubólgu og byði ekki í það að þurfa að standa í þessu helvítis veseni enn á ný.
Ég væri bara veik, gargaði ég á lögguandskotann og ég gæti hreinlega drepist ef ég þyrfti að taka mér sturtu aftur í ísköldu og rennandi blautu ofsaveðri.
'Nú ég skal sjá hvað ég get gert, tautaði löggufjandinn hinum megin á línunni og lagði svo á.

Svo leið og beið, en loks birtist einn ungur og rauðgallaður björgunarsveitarmaður. Hann var brosandi og sætur og ekkert nema almennilegheitin. Munur en lögguhelvítið! Björgunarsveitargæinn var ekki lengi að meta ástandið þegar hann sá gluggann svigna til og frá í vindhviðunum. Hann dró upp símann og kallaði í snarheitum á hjálp. Það endaði með því að  það þurfti ekki færri en þrjá unga og hörkumyndarlega  björgunarsveitarmenn  til þess að loka glugganum almennilega og notuðu þeir bæði límband,  einn kúst og tvær moppur til verksins. Þeir sögðu mér að glugginn hefði verið það sem kallað er kviklæstur. Það lá við og mig langaði helvíti mikið til þess, að kyssa þá alla í bak og fyrir, fyrir hjálpina, en lét duga að þakka þeim bara kærlega fyrir, í orðum. 'Það var nú lítið mál, til þess erum við', svöruðu þeir glaðlega um leið og þeir fóru út úr dyrunum.  Ég skal svo sannarlega styðja björgunarsveitirnar hér eftir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég lenti í ótrúlegu samtali við lögreglumann í Hafnarfirði um daginn þegar ég lenti í kafsnjó og brjáluðu veðri á beygjuljósi sem var bilað, á Reykjavíkurveginum. Ég birti það samtal einn daginn þegar ég er í stuði. Gott var að svalagluggaævintýri þitt endaði vel.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.2.2008 kl. 12:38

2 Smámynd: www.zordis.com

Meira gluggaólánið .... þú varst heppinn að fá sætu strákana í heimsókn.  Þú hefðir átt að smella kossi á alla!

Laugardagsknús!

www.zordis.com, 9.2.2008 kl. 13:54

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, Guðný  Anna, mér finnst löggan oft svo ótrúlega ruddaleg við almenna borgara, sem þeir eru þó í þjónustu hjá. Og það erum við sem borgum launin þeirra. Það mætti halda að margir lögreglumenn séu með valda og mikilmennsku brjálæði.

Zordís mín, ég er nú hrædd um að þeim hefði nú brugðið strákunum ef ég hefði rokið á þá og kysst þá alla. Annað mál ef ég væri ung stúlka. þeir hefðu jafnvel getað tekið kossunum sem kynferðislegu áreiti.

Svava frá Strandbergi , 9.2.2008 kl. 14:43

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, Tryggvi, það er nýjasta bragðið hjá einmana konum.

Svava frá Strandbergi , 9.2.2008 kl. 14:45

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að fá svona glaðlynda unglinga í heimsókn.  Vona að ekkert fjúki í kvöld.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 20:51

6 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég þurfti að kalla á hjálp í síðasta ofviðri, en þar aftur var löggan mjög almennileg, kannski af því að þakkanturinn var að fjúka og hefði getað valdið öðrum ómældu tjóni.  En ég segi það sama að björgunarsveitina ætla ég að styrkja, hef reyndar alltaf gert það í gegnum árið.

Ester Sveinbjarnardóttir, 9.2.2008 kl. 22:17

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ótrúlegt veður !

gott að þú fékkst hjálp !

Bless á laugardagskvöldi 

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 22:53

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

það er nú gott að þetta endaði vel. Ekki amalegt að fá fullt af ungum myndarlegum mönnum í heimsókn.

Jóna Á. Gísladóttir, 10.2.2008 kl. 00:40

9 Smámynd: Bjarni Magnússon

Hjálparsveitirnar eru alveg magnað fyrirbæri. Þessar rauðklæddu hvunndagshetjur fara út á hvaða tíma sem er, í hvaða veðri sem er til þess að aðstoða samborgara sína. Það er eiginlega hneyksli að það þurfi að fjármagna svona samtök með flugeldasölu og betli. Mér finnst að ríkið eigi að fjármagna þetta frá a-ö. Hvort ætli sé nú mikilvægara að eiga öflugar hjálparsveitir eða glæsilegt sendiráð í Berlín?

Sammála þér með lögguna. Þeirra hlutverk á fyrst og fremst að vera að þjónusta borgara.   

Bjarni Magnússon, 10.2.2008 kl. 00:47

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gaman að fá svona unglinga í heimsókn. Kveðja til þín Guðný mín

Kristín Katla Árnadóttir, 10.2.2008 kl. 09:42

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já,Bjarni, sendiráðið í Berlín var nú eitt hneykslið sem almannafé þurfti að borga.

Svava frá Strandbergi , 10.2.2008 kl. 11:42

12 Smámynd: halkatla

dóninn! gott að þú lést ekki bjóða þér þetta með hrædda ketti og alles, það þarf að hugsa um þá. Takk fyrir að deila bjargvættasögunni með okkur, húnvar "aðlaðandi" hehe

halkatla, 10.2.2008 kl. 11:46

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þú finnur sannarlega til í stormum lífsins, eins og sagt er. Það er munur en lognmollan í mínu lífi alltaf hreint, í hæsta lagi Mali að mala.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.2.2008 kl. 01:44

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það er nú stundum stormasamt á bloggsíðunni þinni Nimbus. Eru ekki komin langt yfir hundrað komment á síðustu færslu um bloggstrækið? Ég þarf endilega að tékka á því hvort þú hefur bloggað nokkuð í dag.

Svava frá Strandbergi , 11.2.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband