Leita í fréttum mbl.is

'Harpan hljómar við himnasala ljós'

 

Þegar stjörnur braga á Himni og ég er einn staddur einhvers staðar á

mörkum hins raunverulegra.

 Himininn stirnir og Norðurljós dansa á mörkum þess sem er. Þá ligg ég úti

á hjarninu, uppnuminn frá

 hinu jarðneska og stari á þann Guðdómleika í undur þau sem sem enginn

mannlegur máttur fær

skýrt.

 

Höf. Valdemar Vilhjálmsson 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Falleg mynd, fer svo sérstaklega vel saman við ljóðið.  Hélt reyndar að ljóðið væri þitt! 

Hvernig gengur undirbúningurinn hjá þér fyrir sýninguna?

www.zordis.com, 11.2.2008 kl. 07:47

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já mjög falleg mynd og ljóð.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.2.2008 kl. 10:34

3 Smámynd: Agný

PASSAR VEL SAMAN OG TAKK FYRIR FALLEG SKRIF OG SKEMMTILEG ...ÉG ER LÖT VIÐ AÐ KVITTA EN LES OFTAR...

Agný, 13.2.2008 kl. 02:48

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir innlitið, Agný

Svava frá Strandbergi , 13.2.2008 kl. 12:28

5 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þú ert dugleg við myndlistina og er það gott mál. Vonandi rekur þú mig ekki út af síðunni þinni þrátt fyrir að líka kannski ekki alltaf það sem ég læt frá mér fara.  Ég er  svo skrítinn að halda, að blóð væri þykkara en svo, að ómerkileg skrif á blogginu gerðu blóð frændseminnar að vatni.   Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 13.2.2008 kl. 13:35

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég held að einmitt það hve þið Siggi eruð skyldir geri það að verkum að þið sættist nú Keli minn, fyrr eða síðar. En líklega  þurfið  þið að  sýna  hvor  öðrum extra  nærgætni  í samskiptum ykkar á milli, því skapið er stórt  í ykkur báðum frændunum. Mér reyndar líka, ef út í það er farið, því öll þrjú erum við runnin af sömu rót. Nei, Keli þú ert ekki útlægur af minni síðu, þetta er alfarið ykkar Sigga mál. En sá vægir sem vitið hefur meira.

Svava frá Strandbergi , 13.2.2008 kl. 20:09

7 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl Svava mín. Mér þykir vænt um þín orð, en því sárara að  frændi skuli segja mig "andstyggilegan" þrátt fyrir að hafa aðra sýn á málum en hann. En það er eins og þú segir Svava um nærgætni hún verður að vera til staðar, en nærgætni hefur ekki verið mín sterkasta hlið og þar í liggur m.a.  kannski minn vandi. En ég vona, að það álit mitt sé rétt, að blóð sé þykkara en vatn.  Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 13.2.2008 kl. 20:57

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hafðu það gott Keli minn.

Svava frá Strandbergi , 13.2.2008 kl. 23:53

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

fallegt !

kveðja frá lejre og Bless í bili

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 23:43

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Guðný, hvenær verður sýningin þín?

Marta B Helgadóttir, 16.2.2008 kl. 00:35

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég fæ húsið í fyrsta lagi 14. apríl, af því húsið var tvíbókað. Ég er bara ánægð með það að fá húsið seinna, því þá verður farið að vora og fleira fólk á ferli

Svava frá Strandbergi , 16.2.2008 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband