19.12.2007 | 23:58
Ég er með hríðir, því það er að fæðast þessi mynd eftir langvarandi verki
'Jöklar munu hverfa'
En ég á eftir að vinna mjög mikið í henni. þetta er stór mynd sem ég vona að seljist, en það er nú meiningin að reyna að selja eitthvað á komandi sýningu. Það er ennþá of mikið rautt í myndinni og ég á eftir að bæta við gulu og fjólubláu. Svo er himininn heilmikill höfuðverkur, því ég er ekki ennþá viss um hvernig ég á að hafa hann á litinn. En þetta kemur allt saman.
Svo eru víst að koma jól og ætli maður verði þá ekki að taka pásu í þessu málarastússi. Ekki svo að segja að mikið verði um að vera hjá mér á jólunum. Við verðum líklega ein í mat á aðfangadagskvöld, sonur minn og ég. Barnabörnin koma ekki einu sinni í kaffi hvað þá meir. Foreldrar þeirra eru svo stressaðir að mér skilst að þau ætli helst ekki að halda jól. Hún ófrísk að fjórða barninu, það elsta 6 ára og sonur minn búinn að vera í ströngum prófum.
Ég held að dóttir mín og tengdasonur ætli norður yfir jólin, til foreldra hans svo ekki koma þau heldur til mín yfir jólin.
En ég ætla nú að skreppa í kaffi til systur minnar á jóladag og hafa það huggulegt þar. En á gamlaárskvöld verður fjör, þá er mér og minni fjölskyldu og bróður mínum boðið í mat og áramótapartý til systur okkar, eins og venjulega.
Annars fór ég með Tító til dýralæknisins í dag, eina ferðina enn. Hann er bara fastagestur uppá Dýraspítala. Samt er ekki nema hálfur mánuður síðan hann fékk þriðja sterakúrinn í röð. En undanfarna daga hefur hann verið svo slappur, með ógleði og kastað upp og sofið mikið.
Gosi hefur auðvitað notfært sér ástand Títós og legið í leyni fyrir honum við svaladyrnar þegar hann ætlar á kattaklósettið og stokkið svo á hann. Skrýtin þessi dýr að níðast á veikum vinum sínum. Það er sagt að náttúran sé svona grimm, enda hefur maður svo sem séð myndir af Tjörninni þar sem margir fuglar ráðast í einu á veikburða önd.
En ég hélt að gæludýr sem er dekrað við af mönnum, ættu að vera búin að losa sig við þetta 'óeðli' Það var tekinn blóðprufa úr Tító og ég fæ að vita á morgun hvernig ástatt er með veiku nýrun hans. Svo fékk hann líka kröftuga sprautu til að hressa hann aðeins við.
Sprautan virkaði svo vel að síðan hann kom heim hefur hann hvað eftir annað farið uppá Gosa og riðlast á honum eins og honum sé borgað fyrir það. Hann er að hefna harma sinna og sýna að hann sé ennþá húsbóndinn á heimilinu.
Ég má þakka fyrir að vera ekki í læðulíki þegar hann lætur svona greddulega. En svei mér þá, mér þykir svo vænt um Tító, að ég væri svo sem alveg til í að bregða yfir mig læðuhamnum, ef það gæti vakið gleði hans. Verst að ég lét gelda hann hér um árið. Allavega verða þetta gleðileg jól ef hann Tító minn fær að lifa þau.
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 20.12.2007 kl. 00:18 | Facebook
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 195794
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Af mbl.is
Viðskipti
- Ellert nýr fjármálastjóri Merkjaklappar
- Adani ákærður fyrir mútur og svik
- Félagsbústaðir tapa án matsbreytinga
- Dana tekur yfir markaðsmál Lauf Cycles
- Kerecis-hjón fjárfesta í leiguflugi
- Vextir lækki um 175-200 punkta
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
Athugasemdir
Zad verdur gaman ad fylgjast med hvernig zessari jöklamynd midar! Mér finst brimrótid vera mjög töff hjá zér ....
Vona ad Tító fái gledilega og verkjalaus jól njóttu hátídarinnar og finndu fridinn!
www.zordis.com, 20.12.2007 kl. 08:05
Ég er 100% viss um það Guðný mín að þú selur myndina. Verst þetta með hann Tító Æi vonandi að hann verði verkjalaus já það er svo skrítið með dýrin að ráðast á önnur veik dýr. Eigðu góðan dag.
Kristín Katla Árnadóttir, 20.12.2007 kl. 13:35
Elsku Tító, erfitt að vera hann þessa dagana. Ég er sko alveg viss um að þú selur myndir á sýningunni, þetta verður spennandi, gaman að geta látið sig hlakka til einhvers á nýju ári. Kær kveðja á kisur
Ásdís Sigurðardóttir, 20.12.2007 kl. 18:36
Takk allar, fyrir góðar kveðjur. Knús
Svava frá Strandbergi , 20.12.2007 kl. 23:32
Góðar stundir um hátíðarnar
Marta B Helgadóttir, 21.12.2007 kl. 00:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.