Leita í fréttum mbl.is

Skopparajól Saga handa börnum

Ég er á síðasta snúningi
fyrir þessi andsk.. jól
æpti skopparakringlan
um leið og hún skoppaðist
út um gluggann.
Asnalegt, muldraði asninn
sem asnast hafði
til þess að glápa á eftir
henni niður til Andskotans.

Hún hefur andast,
sagði hann með
öndina í hálsinum
við öndina sem stóð á öndinni
af andnauð og andarteppu.

Andstyggilegt, andvörpuðu þau
andagtug í kór
- andartaki seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 4.11.2007 kl. 10:27

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

  aumingja öndin, var hún svo ekki étin??

Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2007 kl. 13:23

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Andaktug segi ég " .... andsvíti er þetta gott..."

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 4.11.2007 kl. 15:30

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 4.11.2007 kl. 20:29

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Aumingja, andsvítans öndin var fyllt og steikt og borin fram með appelsínusóus. En asnakjálkinn slapp fyrir horn.

Alheimsljós til þín Steina. 

Svava frá Strandbergi , 4.11.2007 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband