Leita í fréttum mbl.is

Ég er líka með nækvæð viðhorf til Mjólkursamsölunnar

síðan ég fór á fund þeirra fyrir nokkrum árum og sýndi þeim teikningar af íslensku jólasveinunum og lagði til að Mjólkursamsalan skyldi myndskreyta mjólkurfernur fyrir jólin með þeim félögum. Ég sat langan fund, þar sem ég meðal annars lagði einnig til að þjóðlegur fróðleikur eða einhverjar jólasveinavísur yrðu líka á fernunum. 

Markaðsfræðingurinn sem var einn af þeim sem sat fundinn með mér og sem er reyndar náskyldur föður barnanna minna var voða líklegur við mig meðan á fundinum stóð og tók vel í allt sem ég sagði. 

En svo leið og beið, margir mánuðir liðu og svar til mín dróst á langinn, en látið var í veðri vaka að verið væri að hugsa málið. Það næsta sem ég svo vissi um þetta mál var svo frétt í fjölmiðlum um það að Mjólkursamsalan ætlaði að setja íslensku jólasveinana á mjólkurfernur fyrir jólin.

Ég hafði samband við formann Félags íslenskra teiknara og sagði honum mínar farir ekki sléttar. Formaðurinn ráðlagði mér að skrifa Mjólkursamsölunni ábyrgðarbréf þar sem ég færi að minnsta kosti fram á höfundarréttarlaun fyrir hugmynd mína. Sagði formaðurinn að hann hefði brennt sig  á svona svipuðum vinnubrögðum og ég varð fyrir og hann léti væntanlega viðskiptavini sína ætíð skrifa undir plagg áður en hann sýndi þeim hugmyndir sínar og teikningar, þar sem þeir hétu því að láta ekki aðra útfæra hans hugmyndir. 

Ég sendi ábyrgðarbréfið en fékk í hausinn, til baka bréf frá lögfræðingi Mjólkursamsölunnar þar sem m.a. sagði að öllum væri frjálst að sækja í íslenskan sagnasjóð.
Sagði þar ennfremur þá fyrst eftir allan þennan tíma, að þeir vildu ekki nota mínar myndir á fernurnar.

Þeir höfðu sem sagt dregið mig á asnaeyrunum allan þennan tíma. 

Þetta var í annað sinn sem hugmynd frá mér var notuð án míns samþykkis og í það skiptið var dæmið enn grófara. Því þá var tekin fígúra sem ég hafði teiknað og sem birst hafði bæði á bolum og plöttum og henni breytt örlítið og hún síðan notuð sem lukkudýr á ákveðinni barnasíðu í dagblaði einu. Ég kærði það mál, en af því fígúran var svona 30% öðruvísi útfærð var málið talið tapað fyrirfram.

Svona var nú það. 


mbl.is Mjólkursamsalan fagnar úrskurði héraðsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Því miður hefur verið traðkað á hugverkum alltof margra íslenskra hugvitsmanna/kvenna hérlendis. óþolandi ástand

Guðrún Sæmundsdóttir, 18.10.2007 kl. 22:08

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Guðrún, það er því miður satt.

Svava frá Strandbergi , 18.10.2007 kl. 22:12

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Argasti dónaskapur og ekkert annað.  (vondurkall)

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 22:19

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Ásdís og Ægir, það hefur lengi loðað við að hugmyndir teiknara séu notaðar í leyfisleysi.

Svava frá Strandbergi , 18.10.2007 kl. 22:25

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Mér var sagt frá því að bakari sem var fyrstur með hugmyndirna að beyglum fór til Búnaðarbankans með hugmyndirnar. Allt reiknað út, með markaðsrannsóknum, kostnaðaráætlunum og hvaða vél skyldi kaupa, verð o.s.frv.  . Stjórn Búnaðarbankans sat á pappírunum um langa hríð en skilaði svo þar sem þeir sögðu þetta ekki henta og ætluðu ekki að lána í verkiefnið. Það næsta sem gerðist nokkrum mánuðum síðar var að Samsölubrauð settu beyglur á markaðinn og hið furðulega var að þeir gerðu allt á sama hátt og hafði verið lagt til í skýrslunum sem Búnaðarbankastjórnin hafði haft um margra vikna skeið "í athugun" . Það bendir allt til að samvinnuapparatið hafi afhent alla pappírana sem bakarinn hafði látið vinna dýrum dómum úr eigin veski, til eins apparatsins enn í sama flokki.  

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 18.10.2007 kl. 22:39

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta er mjög svipað dæmi, Predikari.

Svava frá Strandbergi , 18.10.2007 kl. 22:44

7 Smámynd: halkatla

þetta er náttúrulega fáránlegt! hvernig getur fólk verið svona óheiðarlegt? enþað er því miður hellingur um það, þótt manni komi það alltaf jafn mikið á óvart. Þetta er mjög ljótt að heyra.

Ég sendi þér og dýrunum þínum hinsvegar bestu kveðjur, mundu síðan að þakka fyrir að vera svona skapandi og skemmtilegur einstaklingur (og að þurfa ekki að stela frá öðrum til þess )

halkatla, 24.10.2007 kl. 22:17

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Æ Marta mín, þakka þér fyrir þessi orð. Tító og Gosi biðja líka að heilsa Kassöndru.

Svava frá Strandbergi , 24.10.2007 kl. 23:55

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Fyrirgefðu Anna Karen að ég skyldi segja Marta mín, auðvitað átti ég vð þig.

Svava frá Strandbergi , 25.10.2007 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband