Leita í fréttum mbl.is

Fyrirsæta á fallanda fæti

Ja hérna! það er ekki amalegt að hafa fetað sömu slóð og frekjudollan hún Naomi Campell.
Mig óraði ekki fyrir því þegar ég spankúleraði um sviðið á Hótel Sögu sem model hér forðum tíð, sýndi flotti föt og pósaði fyrir framan myndavélarnar að ég 18 árum seinna púlaði sem óbreytt skúringakelling á því sama sviði.
 Svona getur nú tilveran verið fallvölt og þetta var svo sannarlega hátt fall að detta úr bróderuðum söðli sýningarstúlkunnar og niður í svaðið á útsporuðu dansgólfinu sem ég þurfti að skrúbba daglega þar til ég var rekin með skömm.

Síðan hefur leið mín stöðugt legið niður á við í lífinu.
mbl.is Naomi mætt í skúringarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nei, nei Guðmundur minn ég var bara að djóka en reyndar er ég frekar löt við að skúra heima hjá mér líka.

Svava frá Strandbergi , 20.3.2007 kl. 02:20

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Í mínum augum er sýningarstúlka að sýna kjóla eða hvað annað svona nokkurskonar show/leikur, skúringakona er nokkuð sem margir treysta sér ekki í, erfið vinna, ekki þrifaleg oft á tíðum og ekki metin að verðleikum eins og það starf á skilið. Eins og Guðmundur kemur að þá hefur þú svo sannarlega sýnt að á bakvið gólftuskuna býr snillingu. OG HANANÚ.

Sigfús Sigurþórsson., 20.3.2007 kl. 07:59

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það er nú alveg spurning hvað snýr upp og hvað snýr niður í þessari veröld. Sumt sem sýnist snúa upp getur verið á hraðri leið niður og það sem lítur út fyrir að vera niðri getur samt verið í hæstu hæðum.  Myndirnar þínar eru í hæstu hæðum í gæðum og útgeilsun. Og þá hlýtur það að vera frá .þér komið og þinni verund því þú ert sú sem leyfðir þeim a verða til og skildir hvernig þær vildu vera. Amen!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.3.2007 kl. 08:29

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

þú ert sko örugglega endalaust á uppleið frjó kona sem bæði málar og semur ljóð, fann enn eitt eftir þig í fórum mínum sem ég klippti úr mogganum, það er ljóðið Ást, svo falalegt finnst mér

Ásdís Sigurðardóttir, 20.3.2007 kl. 12:57

5 Smámynd: Gúrúinn

Þarna er nú reyndar leiðum að líkjast og ég trúi því ekki að þið séuð líkar á nokkurn hátt. En þannig er það nú oft, ef innrætið er ekki gott þá er fallið hátt og því hærra því maður kemst meira "áfram" í lífinu. Annars veðja ég á að þú ert hamingjusamari en Naómí og þú gleður mig mun meira...

Gúrúinn, 20.3.2007 kl. 14:38

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka ykkur öllum fyrir. Ég er eitthvað lítil i mér núna. Nýbúin að missa vinnuna hjá Fjölmennt, skóla fyrir geðfatlaða og heilaskaðaða, eftir að hafa kennt við skólann frá stofnun hans. En öllum kennurum og leiðbeinendum Fjölmenntar var sagt upp vegna fjárhagsvandræða. En vonandi fæ ég nýja vinnu því það er drepleiðinlegt að hafa ekkert fast við að vera. En plúsinn er þó að ég er virkari í því að mála. 'Ekkert er svo með öllu illt að ei boði gott.' 

Svava frá Strandbergi , 20.3.2007 kl. 17:40

7 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Æ, árans vesen var það :/ Kenndirðu þeim myndlist?

gerður rósa gunnarsdóttir, 20.3.2007 kl. 17:52

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já zoa og ekki bara myndlist heldur líka ensku, dönsku og íslensku á framhaldsskólastigi og svo ljóðagreiningu og bragfræði.

Svava frá Strandbergi , 20.3.2007 kl. 17:56

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er nú svo stór í mér núna að ég nenni ekki neitt að skúra! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.3.2007 kl. 19:21

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þú ert nú svo stórbrotinn í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur Sigurður minn. 

Svava frá Strandbergi , 20.3.2007 kl. 21:38

11 Smámynd: www.zordis.com

Eins gott að ég fór ekki þessa fyrirsætuleið í lífinu .... en batnandi fegurðardísum er best að lifa ....

www.zordis.com, 20.3.2007 kl. 23:13

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir það zordis mín. 

Svava frá Strandbergi , 20.3.2007 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband