Færsluflokkur: Bækur
16.1.2008 | 17:32
Heimþrá (Brot)
Þegar hrossin höfðu velt sér og kroppað um stund, tók Stjarna sig ein út úr og brokkaði niður að ánni. Hún stóð ekki mikið fyrir, þótt straumhörð væri, köld og hrokasund landanna milli. Brattabrekka tafði hana lítið , og hefur þó margur sporþungur klár tafist við hana. svitnað og runnið. Heimþráin bar hana fljótt yfir, strokið beggja skauta byr.
Hún stefndi mun sunnar en leiðin liggur í áttina til hrossafjöldans heima og gleðinnar í afréttarfrelsinu , - og fallega folaldið horfna - . Hátt hnegg kvað við, aðeins eitt - og hún rásaði þegjandi vestur eftir, yfir grjót og ása, mýrarflóa og fen.
Þorgils gjallandi
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.6.2007 | 01:03
Karlmenn
'Tími karlmannsins er liðinn. Karlmanninum hefur tekist gegnum aldirnar að gera sig að algerlega þekktri stærð. Konan er hins vegar enn á stigi hinnar óþekktu stærðar. Hún er algebra sköpunarverksins. Hún er X . Öll mikilmenni vilja verða konur leynt eða ljóst. Með ellinni kemur þetta greinilega fram hjá karlmönnum. Takið eftir hvað afburðamenn verða ævinlega kerlingarlegir með aldrinum. Rakið skeggið af mikilmennum nítjándualdarinnar og sjá : Þarna situr ljóslifandi ströng amma.'
Guðbergur Bergsson: TÓMAS JÓNSSON METSÖLUBÓK
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.5.2007 | 01:05
Gullkorn fyrir svefninn
'Ég: Óli hefurðu tekið eftir því hvað dúfurnar eru með litla hausa. Heldurðu að þær séu ekki með neinn heila?
Óli: Nei þær eru með vængi. Til hvers ættu þær að vera með heila?
Ég: Meinarðu að það sé betra að vera með vængi en heila?
Óli: Ég held að það væri best að vera með vængi á heilanum.
Einar Már Guðmundsson: VÆNGJASLÁTTUR Í ÞAKRENNUM.
Bækur | Breytt 20.5.2007 kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.5.2007 | 14:44
Jökulsporður Þrykk, blek og akrýl
Bækur | Breytt 7.5.2007 kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.3.2007 | 00:24
Ég er...
Ég er
rósin
sem blómgast að hausti
ég er
unglingsins
elliglöp
ölið sem alkinn
ei smakkar
og ástin
sem kann bara rök
ég er
marglytta
í fjörunnar sandi
ég er
fjúkandi bylur
í sól
ég er
saga sem löngu er liðin
ég er
álfur
sem kom út úr hól.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
12.3.2007 | 04:17
Álög
Á miðnætti í Huliðsheimum
er álagastund.
Allt verður kyrrt og rótt
og það er sem tíminn hverfi
inn í eitt óendanlega stutt
andartak
sem virðist líða hjá, áður
en það hefst.
Fossinn í gjánni fellur þegjandi
fram af bjargbrúninni
og áin streymir eftir farvegi sínum
hljóð eins og andardráttur
sofandi ungabarns.
Þyturinn í laufinu hægir á sér
og skógurinn er þögull
og þrunginn leyndardómum
sem leynast bak við sérhvert tré
fullir ólgandi ástarþrár.
Og innan þessa eilífðaraugnabliks
og án þess að nokkur verði þess var
er þessi töfrum slungna stund liðin hjá.
Og allt er sem fyrr - en samt öðruvísi.
Líkt og náttúran sjálf sé að dansa í skóginum
íklædd dimmbláum, draumfögrum kjól.
Bækur | Breytt s.d. kl. 04:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.3.2007 | 03:47
Manndómsbrekkan þrykk og blek
Bækur | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.3.2007 | 03:57
Ilmvatnið Prósaljóð
Ég hallaði mér út um opinn svefnherbergisgluggann og starði tómlega út í auðan húsagarðinn.
Ég var í þungu skapi. Enn ein ömurleg djammhelgin framundan því það var ekki venja að nokkur karlmaður liti tvisvar á mig þegar ég fór út að skemmta mér.
Ég myndi örugglega enda ævina sem ellidauð piparjúnka. Engin von um börn, hvað þá heldur barnabörn, að ekki sé minnst á syrgjandi eiginmann við mitt dánarbeð.
Ekki sála myndi fella tár þegar ég gæfi upp öndina og það yrði áreiðanlega ekki ein einasta minningargrein í Morgunblaðinu sem greindi frá minni gleðisnauðu ævi.
Það myndi jafnvel verða óframkvæmanlegt að lesa dánarfregnina, því ekki nokkur maður myndi hafa grænan grun um hver ég hefði eiginlega verið.
Líkast til yrði ég jörðuð á laun og presturinn eini maðurinn við jarðarförina.
Ég var djúpt sokkin í þessa ógnvekjandi framtíðarsýn og sá enga glætu framundan í lífi mínu.
En ég kom skyndilega til sjálfrar mín þegar ógurlegt öskur skar sundur myrkrið sem umlukti mig.
Mér varð ljóst á einu augabragði að nú væri ég loksins dauð og að þetta væri Andskotinn sjálfur sem með þessum hætti væri að bjóða mig velkomna til sín í Neðra.
Ég var sem lömuð af skelfingu en með ofurmannlegum kröftum tókst mér að hrista af mér doðruna og beina skelfdum sjónum mínum í þá átt sem óhljóðin bárust úr. Og mér til ævarandi sáluhjálpar komst ég að raun um að þessi ógnvekjandi hvæsandi öskur voru ekki runnin úr barka Myrkrahöfðingjans heldur stöfuðu þau frá dulitlu sjónarspili sem átti sér stað í garðinum fyrir utan gluggann minn.
Þarna á miðri grasflötinni var spikfeitur fressköttur að athafna sig blygðunarlaust við það að bíta breima læðu í hnakkadrambið, auðsjáanlega með ákveðna athöfn í huga.
Ég fylgdist grannt með áframhaldandi uppákomu og þegar hún stóð sem hæst sló niður í huga mér yfirnáttúrlegri hugljómum sem átti eftir að gjörbreyta öllu lífi mínu.
Ég áttaði mig á því í einni sjónhendingu að það myndi skipta sköpum fyrir mig þetta kvöld að bera ilmvatn á háls minn aftanverðan, áður en ég færi út á lífið.
Bækur | Breytt 6.3.2007 kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
8.2.2007 | 18:58
Þetta er ekkert nýmæli myndi Hrói Höttur segja
![]() |
Sokkabuxur fyrir karlmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
-
katrinsnaeholm
-
zordis
-
katlaa
-
jonaa
-
halkatla
-
ormurormur
-
martasmarta
-
steina
-
gudnyanna
-
zoti
-
ragjo
-
diesel
-
estersv
-
alit
-
toshiki
-
kaffi
-
svartfugl
-
jenni-1001
-
laufabraud
-
stormsker
-
svanurg
-
guru
-
ingo
-
lindagisla
-
bjorkv
-
prakkarinn
-
agny
-
bergruniris
-
raggibjarna
-
maple123
-
saethorhelgi
-
vglilja
-
johannbj
-
partners
-
vitinn
-
zeriaph
-
gudrunmagnea
-
birtabeib
-
iador
-
gudrunfanney1
-
ibb
-
kolgrimur
-
skjolid
-
bene
-
coke
-
hux
-
nonniblogg
-
heringi
-
hjolaferd
-
amason
-
joiragnars
-
steinibriem
-
rafdrottinn
-
siggith
-
vefritid
-
ljosmyndarinn
-
poppoli
-
perlaoghvolparnir
-
vitale
-
skordalsbrynja
-
lindalea
-
bidda
-
manisvans
-
scorpio
-
haddih
-
gattin
-
korntop
-
brahim
-
klarak
-
laugatun
-
konur
-
panama
-
sigurfang
-
joklamus
-
valdimarjohannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar