Leita í fréttum mbl.is

Þetta er ekkert nýmæli myndi Hrói Höttur segja

Ég veit ekki betur en að Hrói Höttur og allt hans lið hafi verið í sokkabuxum, að vísu voru þær grænar. En hver veit nema við eigum eftir að sjá karlana spranga um göturnar í lauf-grænum sokkabuxum. Ég er viss um að það verður næsta  'trendið.' Og þá er bara eftir að koma fjaðrahöttum í tísku líka og við munum sjá Hróana út um allar trissur. Vonandi samt ekki rænandi og ruplandi.
mbl.is Sokkabuxur fyrir karlmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér finnst þetta mjög sjarmerandi ímynd af Hrúnum. Mér finnst reyndar alveg að þeir mættu færa  sotla peninga (í stað þess að stela þeim beint)...frá auðjöfrunum til sjúkra, aldraðra, öryrkja og allra sem ekki eiga nægan aur. Veit að auðjöfrarnir myndu ekkert kippa sér upp við að vera svona góðir við fólkið í landinu okkar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.2.2007 kl. 19:32

2 identicon

pff, ég sé þetta nú annað slagið í íþróttafréttum.  Á víst að heita þjóðaríþrótt okkar en allir vita að það er handboltinn, ekki satt?

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 8.2.2007 kl. 19:34

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nei, nei enga málningu, miklu karlmennlegra að vera með yfirvaraskegg í staðinn.

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 00:08

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Fín hugmynd Katrín að þeir sem verða Hróar eigi að taka að sér að greiða úr misskiptingu auðs í landinu með því að færa eitthvað af aurum  frá þeim ríku til hinna fátæku. Verst að það sé engin Skírisskógur á landinu. Annars er þetta allt í lagi stærsti skógur landsins er víst í Reykavík.  

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 00:13

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Glímumenn eru í alltof víðum sokkabuxum. Þær poka alltaf svo púkalega á þeim.

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 00:15

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Heyrðu ég leita enn að ljóðinu þínu um Rósarsköpin. Þvældist í gegnum tengilinn ljóð á tíu þúsund tregavött fyrr í kvöld og var bara að koma til

baka. Takk svo kærlega fyrir öll innlitin og fallegu kveðjurnar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.2.2007 kl. 00:55

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Er alltaf að breta ljóðinu það gæti verið skýringing. En það heitir Óður til rósarinnar. Undir nafninu Svava Strandberg.

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 14:44

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Var einmitt að breyta því enn eina ferðina svo það verður ekki sýnilegt næstu daga. Svo ég birti það bara hér.

Óður til rósarinnar

Ó munúðar perla
ó mærust rós
ó helgasti munni
hinnar skærustu
meyjar.
Er ást sína umvefur
og ávöxtinn ber.

Sem er Frelsarinn, fæddur
á foldu hjá þér.

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 14:52

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta er á ljóð.is Katrín. Það er bara eitt ljóð eftir mig á thiuthusundtregawott og það heitir Stórmál Það ljóð birti ég nu einhverstaðar hér á blogginu mínu.

kv. Guðný Svava Strandberg

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 14:56

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Því hjá þér vil ég vera

í ljósinu bjarta

það veit ég svo vel

og þekki í mínu hjarta

á jörðinni bíð ég í myrkrinu svarta og segi við þig..

"Ég er ekki að kvarta...en mig langar svo heim"!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.2.2007 kl. 21:46

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Æðislegt ljóð

Svava frá Strandbergi , 9.2.2007 kl. 23:11

12 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Eftir að hafa horft á grínþættina í íþróttafréttum sem kallaðir eru glíma,  og  sjá þar fullorðna karlmenn í sokkabuxum og leðuróla mittisskýlum þá held   é að þessi hörmung verði aldrei annað en tískusýningavara, eða hafið þið séð eitthvað hjákátlegra en "þjóðaríþróttina", fyrst smá tangó og svo að henda dansfélagnum í gólfið.

Pétur Þór Jónsson, 15.2.2007 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband