Leita í fréttum mbl.is

Erla, góða Erla...

Ég leyfði mér á sínum tíma, að tileinka þetta ljóð, eftir Stefán frá Hvítadal og sem ég skrifaði niður, þessar fyrstu línur af, fyrir svo löngu síðan, dóttur minni, henni Erlu Ósk

 

scaErla góða Erla

 

Erla, góða Erla, ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð því kveldsett löngu er
kvæðið mitt er kveldljóð því kveldsett löngu er.

Úti þeysa álfar um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla, nú ertu þæg og góð.
Erla, hjartans Erla, nú ertu þæg og góð.

Æskan geymir elda og ævintýraþrótt.
Tekur mig með töfrum hin tunglskinsbjarta nótt.
Ertu sofnuð, Erla? Þú andar létt og rótt.
Ertu sofnuð, Erla? þú andar létt og rótt.

Hart er mannsins hjarta að hugsa mest um sig.
Kvöldið er svo koldimmt ég kenni’ í brjósti’ um mig.
Dýrlega þig dreymi og Drottinn blessi þig.
Dýrlega þig dreymi og Drottinn blessi þig.

 

                  Mamma 

 

Höfundur texta: Stefán frá Hvítadal


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er dásamleg elsku Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.7.2008 kl. 21:28

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Maðurinn minn heitinn tileinkaði Sólveigu Ósk dóttur okkar lagið með Björgga, þú ert ósk þú ert Óskin mín og hann var alltaf að syngja þetta fyrir hana.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 22:32

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er gjörsamlega laglaus, en minnist þess samt með angurvært og söknuði    að ég  söng  alltaf fyrir börnin mín  ef ég var í landi t.d. þetta fallega lag. 

Sigurður Þórðarson, 17.7.2008 kl. 22:41

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Katla

Ásdís, 'Þú ert' er líka fallegt og á vel við nafnið Ósk. Dóttir mín heitir Erla Ósk svo ég tileinkaði henni líka þetta lag.

Sigurður, ég er líka hálf laglaus og syng helst bara þegar ég held að enginn heyri til.  

Svava frá Strandbergi , 17.7.2008 kl. 23:42

5 Smámynd: www.zordis.com

Við sungum nana´s fyrir drenginn en það eru dæmigerðar spænskar vögguvísur!  Oooog svo söng ég oftast eitthvað sætt í eyrað í Írisi Höddu dóttur minni en hún hefur næmt tóneyra og lagviss þrátt fyrir breim móður sinnar.

Og ég syng ....

www.zordis.com, 17.7.2008 kl. 23:56

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Zordís!!     'þrátt fyrir breim móður sinnar'. Þú ert heimsmet í fyndni og færð mig svo oft til að brosa og nú skellihló ég. að því hvavð þú komst skemmtilega  að orði.

Og ég syng... líka, þó laglaus sé. 

Svava frá Strandbergi , 18.7.2008 kl. 00:04

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er svo fallegt ljóð,

sofðu nú sigrún og sofðu nú rótt, var vöggulagið hennar sigrúnar minnar sólar.

kærleikur til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.7.2008 kl. 18:03

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis, Steina mín.

Svava frá Strandbergi , 19.7.2008 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband