Leita í fréttum mbl.is

Kóparnir stundum fláðir lifandi?

Heyrt hef ég að í sumum tilvikum sé æðibunugangurinn á veiðimönnunum svo mikill að þeir gefi sér ekki tíma til þess að rota selkópana almennilega áður en þeir flá þá. Því meiri hraða sem þeir tileinka sér við drápin, því fleiri kópa komast þeir yfir að drepa og því fleiri skinn, því meiri gróða. Rotuðu selkóparnir deyja ekki við fláninguna að minnsta kosti ekki strax. Þeir rakna úr rotinu algerlega skinnlausir og sárkvaldir og dauðastríðið er víst langt og strangt.

En hverjir bera ábyrgð á þessum sadisma? Eru það veiðimennirnir, eða eftirspurnin sem skapar hann? Það er spurningin? Eftirspurn er eftir selskinni, því að hinn almenni borgari kaupir það. Selskinn er í tísku m.a. til þess að nota það í púða á nýju glæsilegu sófasettin okkar. Selskinn er einnig notað í fatnað, töskur og fleira. Það er eftirspurnin, eða við sjálf sem kaupum selskinnið, sem berum ábyrgðina á þessum miskunnarlausu og hrottafengnu drápum.

Þessi þjáning selkópanna er þess vegna ekki tilkomin sökum þess að við séum að drepast úr hungri og kjöt sjaldséð á borðum handa okkur og börnunum okkar. Og við þurfum því að flýta okkur sem mest við slátrun kópanna til þess að ná  sem mestu kjöti á sem stystum tíma.

Nei, þessi kvalafullu dauðastríð eru tilkomin vegna eins ómerkilegs fyrirbæris og tískunnar.
Tískan stjórnar einnig fleiri ógeðfelldum hlutum, hún stjórnar  heiminum með  harðri  hendi og allir sem vilja vera menn með mönnum, hlýða kalli hennar. 

En sem betur fer hafa margir hugsandi menn og konur skorið upp herör gegn því að ganga í feldum af dýrum. Og það ekki aðeins kópaskinnum heldur öllum dýraskinnum eða loðfeldum,  eins og til dæmis, refa og minkaskinnum. Enda er litlu skárri meðferðin á refum og minkum sem ræktaðir eru vegna loðfeldanna. Dýrin eru höfð í svo litlum búrum að þau geta vart snúið sér við í þeim svo þau verða brjáluð  af innilokunarkennd og æða stanslaust um í sínu örlitla rými sem þeim er skammtað til þess að lifa í sitt stutta líf. Hvar eru dýraverndunarsamtökin þá? Já, og hvar eru líka katta og hundavinir þá, sem eiga þessi náskyldu dýr sem gæludýr og vita hve mikla ást þau geta gefið? 

Hún var eftirminnileg auglýsingin sem ég sá í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum af tískusýningu. Sýningarstúlkurnar sprönguðu um pallinn á dýrindis loðfeldum og þegar þær höfðu gengið rampinn á enda stoppuðu þær fyrir framan áhorfendur sem horfðu  gapandi af aðdáun upp til þeirra. Stúlkurnar létu þá loðfeldina síga niður af öxlunum og sveifluðu þeim glæsilega á eftir sér svo blóðsletturnar skvettust af feldunum framan í andlitin á agndofa fólkinu í salnum.  

Öll þessi dýr, sem við látum drepa vegna hégómleika okkar, hafa sál og tilfinningar. Þau eru eins og Steina bloggvinkona mín sagði, litlu systkinin okkar hér á jörð. Og svona förum við með þessi systkini okkar. Sýnum þeim aðeins ótrúlega grimmd og hrottafengið miskunnarleysi.


mbl.is Selveiðum að ljúka við Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

En selhnallinum er samkvæmt ýmsum heimildum ekki alltaf beitt alveg á réttan hátt, leyfi ég mér að segja.

Svava frá Strandbergi , 12.4.2008 kl. 02:15

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða helgi Guðný mín

Kristín Katla Árnadóttir, 12.4.2008 kl. 11:15

3 Smámynd: www.zordis.com

Hrikalegt alveg.  Selkóparnir eru svo fallega saklausir, ótrúlegt að einhver geti lagt sig svo lágt.  En, eru líkamar skildir eftir í rotinu og bara skinnið hirt?

Alveg ömurlegt!

Elsku Guðný Svava nú er ég spennt vegna sýningarinnar þinnar. 

www.zordis.com, 12.4.2008 kl. 20:26

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, Zordís ég hef lesið um og séð dæmi þess í sjónvarpi. En sem betur fer held ég að þetta sé undantekning frá reglunni. Mér finnst samt að konur eigi ekki að klæðast loðfeldum, ekki karlar reyndar heldur.  Margar þekktar konur í Bandaríkjunum láta aldrei sjá sig í pelsum af nokkru tagi.

Já, sýningin mín verður opnuð sunnudaginn 20. apríl kl. 15,30 til 17.00. Hún stendur til 14. maí og er opin alla  daga frá  kl.11.30 fyrir hádegi til kl. 22.00. ég vildi óska að þú gætir komið. 

Svava frá Strandbergi , 13.4.2008 kl. 00:37

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þetta er nú meiri hryllingurinn að lesa..grey litlu skinnin eiga ekki séns gagnvart græðginni..

Ha hva hvað?  Sýningin á skólavörðustígnum?

Endilega segðu meir..og gangi þér bara vel að koma hennni upp. Veit að fólk er stundum í svolítið sérkennulegu ástandi svona rétt fyrir sýningu...redda öllu og gera allt og koma fyrir.

Velgengni til þín. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.4.2008 kl. 11:03

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Katrín, sýningin verður ekki á Skólavörðustígnum því Álfheiði var sagt upp húsnæðinu þar, svo hún var flutt í Geysis húsið Aðalstræti 2 inn á Bistro & Bar sem er þar í húsinu. Vonast til að sjá þig þar næstkomandi sunnudag.

Svava frá Strandbergi , 13.4.2008 kl. 23:53

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég mæti sko...frábær staður að sýna á Guðný mín. Krosslegg fingur og tæf fyrir þig og fallegu myndirnar þínar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.4.2008 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband