22.2.2008 | 01:59
Í tilefni af útlendingahatri
' Ró , ró og rambinn, Ísland fyrir Íslendinga. Látum þá dragnast áfram í láglyftum moldarkofum sínum og hryggi þeirra halda áfram að bogna í gaungum og baðstofukytrum, þar sem það kostar rothögg að rétta úr sér; kanski verða þeir ferfættir á endanum. Látum þá mæðast áfram brjóstsjúka af því að sofa í reykjarsvælu og moldardauni, sljóeyga, óframfærna og volaða, vegna þess að þeir þora eigi að láta sál sína hrífast.
Látum þá skemmta sér með því að hæða hver annan á bak, dreifa út lastmælgi , níðvísum og klámi hver um annan, og eiga það æðst áhugamála að komast hjá því að kaupa harmoníum í kirkjuskriflið sitt. Látum þá þamba áfram kaffi sitt, taka í nefið og tyggja skro, og forsóma að veita líkama sínum hina einföldustu hirðu, já að bursta á sér tennurnar, en forðumst að minna þá að að kaupa sér spegla , því þá gæti farið fyrir þeim eins og skoffíninu.
Eða er ekki Ísland fyrir Íslendinga? Látum þá velta sér í sóðaskapnum, svo framvegis sem þeir hafa gert í átta hundruð ár, eilíflega kvefaðir og sullaveikir, konurnar horaðar og útþvældar af striti og barneignum, krakkarnir kirtlaveikir, lúsugir og flámæltir, agaðir í vitundinni um að þeir séu kotúngar, með kala innrættan til hinna fáu manna sem voga sér að gánga keikir.'
Halldór Laxness
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Sé nú mikla skammsýni í því að andæva rasisma með að hæða land og þjóð með yfirlæti og fyrirlitningu versta rasista. Jafnvel þótt meistari Laxness geri það. Hann var að sönnu ekki óskeikull í mati sínu og malanda.
Hann gleymdi því gjarnan að hann var íslendingur sjálfur og aktaði einna helst eins og enskur lord, þótt hann lifði á sníkjum mest framan af æfi.
Jón Steinar Ragnarsson, 22.2.2008 kl. 02:57
Ég tel mig ekki vera að hæða land og þjóð, þó ég minnist þess að Íslendingar hafi átt sín erfiðu tímabil í sögu sinni og hafi þurft að þola mikla fátækt og niðurlægingu eins og margar þær þjóðir sem til okkar mæna í von um betra
líf. Mér finnst að okkur sér hollt að minnast þessa niðurlægingartímabil Íslendinga, til þess að lækka í okkur mesta rostann og yfirlætið.
Það gæti kannski orðið til þess að við sýnum öðrum þjóðum sem til okkar leita meiri skilning.
Annars var Laxness kommúnisti og ég veit ekki til þess, að hann hafi nokkru sinni, fengið inngögngu í neina lávarðadeild. Mér finnst þú sjálfur sýna skammsýni með því að andæva skrifum mínum með niðrandi orðum um mann sem ekki getur lengur borið hönd fyrir höfuð sér, þótt hann hefði eflaust átt hægt með að kveða þig í kútinn í kappræðum, væri hann enn á lífi.
Svava frá Strandbergi , 22.2.2008 kl. 10:00
Já, það er öllum hollt að líta til uppruna síns. Helgarkveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 22.2.2008 kl. 14:02
Sæl og blessuð. Ég sé ekki ástæðu til að tilkalla gengið NÓBELSKÁLD í þessa umræðu þar sem mér sýnist þú Svava mín halda vel á þínum spilum í andmælum á skrifum vinar míns, Jóns Steinars. Rétt er það Svava, að Laxness var lengst af kommi, en þegar elliglöp sóttu á hann snérist hann frá trúnni . Innilegar kveðjur til ykkar.
Þorkell Sigurjónsson, 22.2.2008 kl. 15:45
Góða helgi Guðný mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 22.2.2008 kl. 16:06
Adda bloggar, 22.2.2008 kl. 17:36
Takk Adda mín og sömuleiðis. Mikið er þetta flott kveðja hjá þér. Ég vildi óska að ég kynni að setja svona á bloggið.
Svava frá Strandbergi , 22.2.2008 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.