Leita í fréttum mbl.is

Þá er það ákveðið, einkasýning í febrúar.

Jæja þá! Nú er búið að samþykkja sýningu hjá mér í ArtIceland Skólavörðustíg 1a, einhvern tímann  í febrúar á næsta ári og það sem meira er eigandi gallerisins segist bjartsýn á að ég selji þessar myndir sem ég hef sýnt henni.

Nú er að hrökkva eða stökkva, ég verð að mála og mála eins og brjálaður listamaður fram að sýningunni, annað dugir ekki. Mig vantar bara svo prentliti. Ég fór uppí Hvítlist til þess að kaupa liti en af því ég hafði hent gömlu dósunum gátu þeir ekki fundið litina. Ég veit ekkert hvað ég á að gera, en kannski að sonur minn sem vinnur við silkiprentun geti hjálpað mér, ef ég bið hann vel.

Ég ætla að sýna bæði þrykk-og blek myndir og vatnslitamyndir á sýningunni. Álfheiður eigandinn sagð, að þó að það þætti vera betri heildarsvipur á sýningum sem uppistæðu af myndum með sömu tækni, væru þessar tvær tækni aðferðir svo keimlíkar hjá mér, að þetta ætti að koma vel út.

Hún var hrifin af öllum myndunum sem ég sýndi henni sem betur fer. Svo nú ég verð að láta hendur standa fram úr ermum. Og þið kæru bloggvinir verðið náttúrulega velkomnir á opnunina, allir með tölu, þegar þar að kemur, ef þið viljið gera mér þann heiður? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já hvort ég vil koma Elsku SVAVA mín..flott hjá þér. Hlakka mikið til að sjá sýninguna þína..og líka hina í Ágúst!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.10.2007 kl. 11:04

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Katrín min, vertu velkomin.

Svava frá Strandbergi , 13.10.2007 kl. 11:08

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þrátt fyrir að vera ekki bloggvinur Svava, reikna ég með að mér sé boðið, þó ekki væri fyrir annað en skyldleikann. Vonandi gengur þetta vel hjá þér Svava mín,  Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 13.10.2007 kl. 11:56

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með sýninguna  Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.10.2007 kl. 11:59

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jú Keli minn þér er auðvitað boðið líka, þó það nú væri.

Takk Kristín mín og Arna. 

Svava frá Strandbergi , 13.10.2007 kl. 13:21

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mig langar mikið til að koma á sýninguna þína.

Marta B Helgadóttir, 13.10.2007 kl. 13:48

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Vertu velkomin Marta mín.

Svava frá Strandbergi , 13.10.2007 kl. 14:27

8 identicon

Til hamingju Guðný Svava. Og til hamingju með reykbindindið.

Kv. frá s. afríku

Ása Hildur

Ása Hildur (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 14:51

9 Smámynd: www.zordis.com

Til lukku .... frábaert hjá zér!  Hef heyrt að Álfheiður taki nú ekki hvern sem er inn hjá sér!  Glæsilegt og ef ég verð á klakanum þá er sko ekki spurning að ég kem.

Góða helgi!

www.zordis.com, 13.10.2007 kl. 16:40

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Vona að þú komir Zorsís mín og góða helgi.

Svava frá Strandbergi , 13.10.2007 kl. 17:46

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

En spennandi. ÉG mæti sko örugglega. Er nú ekki hissa á því að hún hafi verið hrifin af myndunum þínum.  Gangi þér vel að mála.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.10.2007 kl. 19:48

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Ásdís mín. Ég sendi ekkert boðskort til ykkar bloggvinir. þið eruð sjálfboðin og komið bara á opnunina.

Svava frá Strandbergi , 14.10.2007 kl. 02:47

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Ása Hildur mín.Skemmtu þér vel í Afríku og passaðu þig á ljónunum og moskitóflugunum.

Svava frá Strandbergi , 14.10.2007 kl. 22:05

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Vá frábært. Innilega til hamingju með þetta Guðný  

Jóna Á. Gísladóttir, 14.10.2007 kl. 22:34

15 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Jóna mín. Það liggur við að ég krossleggi fingurna til þess að þetta gangi nú allt upp hjá mér. En það hlýtur að gera það með öllum þessum góðu óskum.

Svava frá Strandbergi , 14.10.2007 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband