Leita í fréttum mbl.is

Skemmtilegur eftirmiđdagur

140707 005 (1) 'Hafgúan' Olíu- prentlitaţrykk og olíulitir

 

                  

                   Eftirminnileg heimsókn

 

 

Katrín Karls vinkona mín og fyrrum samkennari hjá Fjölmennt kom hér í dag til ađ taka ljósmyndir af nokkrum stóru myndunum mínum. 

Katrín er listagóđur ljósmyndari fyrir utan ţađ ađ vera líka myndlistarkona og kennari og leirlistamađur og fl. Hún var međ stćrđarinnar myndavél á ţrífćti međ sér og ţađ voru miklar tilfćringar viđ myndatökuna.

Ég náđi í trönurnar inn í vinnustofu og stillti myndunum upp á ţćr frammi í stofu. Svo lagfćrđum viđ kastarann og drógum loks sófaborđiđ sem nćst myndunum og ţar  kom hún vélinni fyrir á fćtinum . Svo klifrađi hún sjálf upp á borđiđ og smellti af í gríđ og erg.

Ég var alveg á nálum og  dauđhrćdd um ađ hún myndi steypast á hausinn niđur af borđinu ţa´og ţegar.  En  Katrín stóđ ţarna  föstum fótum enda alvön ađ  klifra  upp  um fjöll  og  firnindi  til ţess ađ ná  góđum myndum.

Katrín er frábćr ljósmyndari og sýnir myndirnar sínar á flickr.com. Ţađ er linkur á síđunni minni á myndirnar hennar ţar.

Ég sá eitt sinn ljósmynd eftir hana, sem hún hafđi tekiđ nálćgt hraunyfirborđi, eđa ţađ hélt ég, ţar til hún upplýsti mig um ţađ ađ ţetta vćri nú bara steikarfeiti á pönnu.

Viđ spjölluđum heillengi og drukkum te eins og enskar hefđarfrúr á međan,  eftir ađ myndatökunni lauk og m.a. bar tilvist Guđs á góma og fleiri háheimspekileg efni.

Hommarnir Tító og Gosi voru vođa hrifnir af Katrínu og Tító flađrađi upp um hana eins og hundur, en Gosi var dálítiđ feiminn eins og venjulega.

Rétt áđur en hún fór tók hún myndir af ţeim félögunum ţar sem ţeir kúrđu sitt í hvoru lagi í sófasettinu og myndirnar eru vćgast sagt ţrumugóđar.

Ţađ er ekki amalegt ađ eiga svona vini. 140707 0189 small Tító






 

 

 

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Rosalega eru kisurnar flottar.  Gaman ađ eiga ţessar myndir.

Ásdís Sigurđardóttir, 20.9.2007 kl. 12:58

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Guđmundur minn.

já, ţađ er satt Ásdís, ţćr eru flottar kisurnar mínar. Ég ćtla ađ kaupa ramma utan um myndirnar og hafa ţćr inni í svefnherbergi.

Svava frá Strandbergi , 20.9.2007 kl. 14:35

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband