Leita í fréttum mbl.is

Lag gert við ljóðið mitt 'Í fjötrum.'

Það á eftir að vinna lagið meira og líklega verður það ekki birt hér á blogginu.

 

Í fjötrum

 


Í  haustgulu kvöldskini
gengu elskendurnir
að fossinum.

Komdu, sagði ´ann
og stökk  út á stein
í miðri ólgandi ánni.

Komdu, sagði ´ann aftur
biðjandi
og rétti út höndina.

Hann stendur enn
einn á hálum steini.                            
scan0008

Svellbólstruð áin.

Fossinn í fjötrum,
- ísköldum fjötrum.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fallegt, hvar verður það birt ??

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2007 kl. 09:43

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis Arna.

Ásdís ég veit það ekki ennþá. 

Svava frá Strandbergi , 26.8.2007 kl. 10:38

3 Smámynd: www.zordis.com

Æðislegt ljóð !!!

Þú lætur okkur vita hvar og hvenær það birtist!!!! 

www.zordis.com, 26.8.2007 kl. 10:49

4 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

flott ljóð

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 26.8.2007 kl. 11:29

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, já ég læt ykkur vita náttúrulega.

Svava frá Strandbergi , 26.8.2007 kl. 13:42

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gullfallegt ljóð guðný mín

Kristín Katla Árnadóttir, 26.8.2007 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband