Leita í fréttum mbl.is

Gamalt ljóð á nýjum belg

Stórmál e. Guðnýju Svövu Strandberg 8. júní, 2006 : í Almennt og Íslensk ljóð. 0 komment

Aðalmálið er
að hafa eitthvað
til málanna að leggja

og það er mitt hjartans mál
að ekki verði mikið mál
að leysa vandamál
varðandi málefni
og stefnumál
flokksins

eða máls málanna

sem er bundið mál

því tók ég til máls
um mál málanna
meðal málsmetandi manna


gerður var góður rómur að máli mínu
enda er ég rómuð fyrir
að vera vel máli farin
og hafa sannfærandi málróm

kvisast hefur út orðrómur um það
að málið sé í höfn

enda er það málið

er það mál manna
að ég hafi alfarið tekið málin í mínar hendur

og þar með leyst málið

- sem er mjög gott mál



Guðný Svava Strandberg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mál dagsins:  Orðin eru ávextir hugsananna, eins og frækorn jurtarinnar; þau geta bæði verið góð og ill, eftir því hvernig hugarfarið er, sem þau eru sprottin úr.  Páskakveðja.

Þorkell Sigurjónsson (IP-tala skráð) 6.4.2007 kl. 12:55

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er mjög gott hjá þér

Kristín Katla Árnadóttir, 6.4.2007 kl. 16:26

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Gleðilega páska til ykkar allra Keli minn. 

Svava frá Strandbergi , 6.4.2007 kl. 16:56

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Kristín

Svava frá Strandbergi , 6.4.2007 kl. 16:57

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

já, þetta er málið og ég er mjög gjörn að taka á mig mál annara og leysa svo málið.  kær kveðja og við sjáumst.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.4.2007 kl. 19:48

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nú eru komin háttumál og mál að linni þessu málavafstri og málæði öllu.
Góða nótt öllsömul.

Svava frá Strandbergi , 6.4.2007 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband