16.3.2007 | 23:58
Ba(r)nvæn sjúkrahús í Rússlandi
Á mannvonskan sér engin takmörk eða hvað? Fyrir stuttu var sagt frá því í fjölmiðlum að starfsfólk á öðru sjúkrahúsi í Rússlandi hefðu límt fyrir munninnn á ungabörnum til þess að þurfa ekki að hlusta á grátinn í þeim þar sem þau höfðu ekki tíma til að sinna þeim vegna mannfæðar.
Gráturinn er eina tjáningarleið ungbarna til þess að láta vita að þeim líði illa eða að þau þurfi að fá einhverja hlýju. Hvað verður eiginlega um þessi börn? Þau hljóta að missa allt traust til alls og allra og eigið sjálfstraust fyrst. þeim mun finnast þau einskis virði og eiga ekkert gott skilið þar sem komið er fram við þau eins og þau væru ekki til.
Börnin sem eru bundin við rúmið sitt er hægt að segja það sama um. Við þau er komið fram eins og skepnur sem eru bundnar á bása sína. Að líma fyrir munn ungbarna og binda þau niður! Er ekki næsta skref að skera tunguna úr börnunum þegar þau byrja að tala til þess að losna við að hlusta á kvartanir þeirra eða til þess að þurfa ekki að þola hávaða og læti þegar þau leika sér.
Fjötruðu börnin verða svo að öllum líkindum sett í búr þegar þau stækka ef svo heldur fram sem horfir.
Guð minn góður á hvaða leið er mannfólkið eiginlega? Allstaðar að berast hörmulegar fréttir af illskunni sem viðgegnst á þessarri jörð fyrir utan hin hefðbundnu mannsmorð í stríðum og hryðjuverkum, pyntingar í fangaklefum, sýru hellt á konur og þær brenndar, barnungum stúlkum og drengjum nauðgað og þau síðan drepin. 40 konur í Mexíkó myrtar og líffæri úr þeim seld, rán, dópsala, ungt fólk aðallega stúlkur seldar í vændi og fl.og fl.
Ísland er ekki undanskilið mannvonskunni því ekki er langt síðan að hryllilegir atburðir áttu sér stað í Breiðuvík, á Bjargi og fl.stöðum. Þar voru það börn og unglingar sem urðu fyrir barðinu á afbrigðilegum hvötum starfsfólksins.
Eða eru þetta kannski ekki afbrigðilegar hvatir hjá mannfólkinu að vera vont við börn og unglinga? Eða þá sem á einhvern hátt eru minnimáttar eins og átti sér stað í Byrgismálinu?
Er þetta ógeð kannski það sem innra býr og fær útrás þegar enginn sér til? það er ekki ólíklegt þar sem það er talið fullkomlega löglegt að myrða konur, börn og karlmenn í þeim óteljandi stríðum sem geisa á okkar ógæfusömu jörð.
Ég er að missa trúna á hið góða í mönnunum.
Starfsmenn rússnesks sjúkrahúss sakaðir um að binda börn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Bloggar, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði | Facebook
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Ekki ætla ég að afsaka gjörðir þær sem þú nefnir hér varðandi íslendinga, en Guð hjálpi mér ef ástandi hér er líkt við þann viðbjóð sem við erum að frétta af utan úr hinum stóra heimi, hvort eða hvenar ástandið hér veit ég ekki, en vona ekki. EKKI hætta að trúa á það góða í mannskeppnunni, það eru allta svörtu sauðirnir sem allt eyðileggja, hvort sem um kynlífsgrimd eða ÖÐRUVÍSI mannvonsku er að ræða.
Sigfús Sigurþórsson., 17.3.2007 kl. 00:13
És kil vel að þér blöskri mín kæra. Allt venjulegt fólk fær kaldanhroll niður bakið og ákaft vonleysi í hjarta að heyra um svona miskunarlausa grimmd og mannvonsku gagnvart varnarlausum börnum. En trúðu því að það er svo margt gott og fallegt fólk líka til sem er að láta milljón sinnum meira gott af sér leiða en nokkurn tímann sést í dagblöðum eða fréttum. Heimsmyndin sem okkur er sýn er mjög einhliða af grimmd og ömurlegheitum þessarar veraldar...á kostnað þess góða. Því miður því það mótar heimsmyndina okkar hinna og elur á óttanum og hörmungunum og vonleysinu. Eina leiðin er að fara sterklega með því góða sem maður trúir á og vinna þar sem hægt er í þá átt í stað þess að eyða orkunni í að velta sér uppúr voðaverkunum og ógninni. Setja þyngri lóð á vogarskálar hins góða og mannlega og vona að þau verði á endanum það sem ráði og vaki yfri þessari veröld. Maður spyr sig stundum...hvert hlutverk fjölmiðla sé í raun...og af hverju góðar fréttir og fréttir af framförum og góðum hlutum eigi ekki erindi til fólks??? Þjónar það einhverjum tilgangi?
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.3.2007 kl. 09:34
Ef til er eitthvað gott þá má maður vera öruggur um að það er til eitthvað vont á móti.
Ragnar Bjarnason, 17.3.2007 kl. 11:36
ATH.... Því fleirri sem tala um og fjalla um þetta mál og láta þetta fréttast því meiri umfjöllun og veitta athygli á þessi frétt eftir að fá...Sem þýðir það að við þjóðin getum haft áhrif þótt svo við sitjum ekki á stólum háttsettra einstaklinga..... Við getum komið þeim skilaboðum á frammfæri að við látum ekki hér við sitja heldur viljum og krefjumst aðgerða frá þeim háttsettu að þeir beiti þrýsting til þeirra yfirvalda um að þeir verði að bregðast skjótt við og beita nauðsynlegum aðgerðum til þess að stoppa þessa óþarfar grimmd á hendur ungabörnum. Það bindur enginn litil börn föst við rúm eins og einhverja flækingshunda hvort sem þau eru munaðarlaus eða ekki.. Siðlaust-mannvonska á mjög svo háu stigi... Hvað þá binda fyrir munn þeirra svo það bæli þau endanlega niður. Hvað ætli mörg munaðarlaus börn deyji á svona ömurlegann hátt á hverju ári á svona stað?? Það sem hægt er að stoppa, og það á svo mjög áhrifamikinn og snöggann hátt til frammbúðar á að STOPPA STRAX.
saeunn (IP-tala skráð) 17.3.2007 kl. 11:36
Við erum bæði góð og grimm. En það þýðir ekkert annað en að missa ekki trúna á hið góða - annars væri eins gott að drepa sig strax.
gerður rósa gunnarsdóttir, 17.3.2007 kl. 21:35
Já þú hefur rétt fyrir þér zoa. þú ert spök að viti þó þú sért asnaleg á myndinni. Ég sakna skrifa þinna svo farðu nú að blogga asninn þinn.
Svava frá Strandbergi , 17.3.2007 kl. 22:54
Andskotans asnar getið þið Zoa báðar verið. Að trúa á hið góða! Ég trúi nú bara á trunt trunt og tröllin í fjöllunum. Og ég er voða vondur!
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.3.2007 kl. 00:05
það vita nú allir að þú trúir bara á trunt trunt og tröllin í fjöllunum, Truntusólin þín.
Svava frá Strandbergi , 18.3.2007 kl. 05:24
Ég er samt vondust og vil ekki blogga :)
gerður rósa gunnarsdóttir, 18.3.2007 kl. 16:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.