18.11.2008 | 23:35
Akkúrat!! 'Trúverðuga áætlun' vilja Svíarnir. Bra hos Svenskerne!!
Þarna hafa Svíarnir aldeilis rétt fyrir sér. En við fáum bara enga trúverðuga áætlun meðan þessi gjörspillta stjórn er við völd. Þessi fámenna klíka sem saman stendur að mestu af stóreigna fólki sem þess utan hefur verið á fjári góðum launum við það að dunda sér við að rústa fjárhag heillar þjóðar. Og er enn á góðum launum við að koma ekki fram með neina trúverðuga áætlun um hvernig það hyggist taka til hendinni í efnahagsmálum landsins.
þetta fólk þarf að víkja hið snarasta og snúa sér að einhverju öðru sem það gæti hugsanlega unnið við stóráfallalaust og vonandi án þess að rústa algjörlega sínum nýja vinnustað.
Því það trúir engin þjóð í heimi á íslensku ríkisstjórnina lengur, né aðra íslenska ráðamenn. Það er hlegið að þeim. það vita það allir. Allir vita að íslenskir ráðamenn hafa hegðað sér eins og afglapar, enda eru þeir svo sannarlega AFGLAPAR með stórum stöfum.
En ætli einhver hafi samt ekki bjargað einhverju í gott skjól áður en áfallið reið yfir? Er ekki pukrað um það að stórar fúlgur fjár hafi verið fluttar úr landi og settar á örugga bankareikninga?
það þarf að stokka algjörlega upp í stjórnmálum landsins. Stofna nýja flokka þar sem allt annað fólk en sama gamla stóreigna valdaklíkan fær tækifæri til þess að sanna sig.
Nýtt fólk í nýja flokka, nýjan seðlabankastjóra og nýja ríkisstjórn, það er krafan sem þarf að uppfylla til þess að hið nýja Ísland rísi úr öskustó.
Íslensk stjórnvöld reið út í Svía | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Það sem þarf að gera er að losa okkur við þetta úrelta flokkakerfi.
Það er ekki ein einast leið fyrir jafn smáa þjóð of okkur Íslendinga að geta náð einhverjum árangri með þessu flokkakerfi vegna þess að þannig fáum við enga fagmenn inn. Það breytir engu hvaða flokkar verða stofnaðir, þeir eru allir byggðir upp á sama hátt, einhver gengur inn í flokkinn, skoðanir hans, mögulega stefnumál, hversu góður hann er að tala gerir það að verkum að vinsædir hans aukast, hann verður smám saman formaður flokksins og endar sem forsætisráðherra. Þessi leið bara virkar ekki.
Ég held þó því miður að skástu flokkarnir til að höndla þessi vandamál séu einmitt þeir sem við völd eru. Það sem ríkisstjórnin þarf núna að gera er að marka sér skýra áætlun til lengri tíma um hvernig við ætlum að ná okkur upp úr þessu, mögulega skipta út seðlabankastjórn og einstökum ráðherrum til að auka trúverðugleika erlendis og kynna svo þessa nýju stefnu fyrir vinum okkar þarna úti. Aðalvandamálið hjá stjórnvöldum í dag er að þeir eru ennþá að þreifa fyrir sér, þeir þurfa að fara að taka ákvarðanir.
Axel (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 01:12
það er klárt að fjármagnið er fyrir löngu farið úr landi, reyndar er auðvelt að hugsa sér að það kom aldrei inn í landið, ég er ekki tilbúin að borga fyrir 101 til dæmis, nei, það er og hefur alltaf verið krafa í eðlilegum lánastofnunum að fara fram á "jarðbundna" endurgreiðslu áætlun þegar maður tekur lán í Svíþjóð og ég held ekki að granni minn vilji axla mína draumaborgir þegar það heirist "púfffffhhhhssssshhhhiiiitttt" og draumaborgin og sjálfslygin hrynur
Sjóveikur, 19.11.2008 kl. 07:22
kæra guðný. ég heyri það sama hjá fólki hérna í danmörku, að það þurfi að hreinsa til á íslandi áður en sendir verði peningar.
KærleiksLjós til þín og Íslands
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 19.11.2008 kl. 08:27
Axel. ég held að stjórnvöld hafi nú þegar þreifað of mikið fyrir sér með of áþreifanlega háskalegum afleiðingum.
Já, Sjóveikur, fjármagnið er svo sannarlega löngu fariið úr landi.... Og Aldrei kemur það aftur því trúverðugleikinn dó. Tra la, la, la. la. la la, lalla og heimurinn að því hló!! Hann hló, hann hló, hann skelli, skellihló!!
Steina, já var það ekki?? Kærleiksljós til þín og Danmerkur sem ég elska í meinum.
Svava frá Strandbergi , 19.11.2008 kl. 10:06
Glæsileg færsla...
Björgvin Kristinsson, 20.11.2008 kl. 03:01
Takk Skúmur.
Svava frá Strandbergi , 20.11.2008 kl. 03:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.