9.5.2007 | 00:40
Ég ætla að svíkja græna litinn
Ég horfði á vefvarpið um fylgi flokkanna þar sem Elva Björk Sverrisdóttir stjórnmálafræðingur spáir í fylgi flokkana og hvers vegna t.d.Vinstri grænir séu að tapa fylgi.
Hún segir að ráða megi að margar vinstri sinnaðar konur sem stutt hafi VG séu að velta fyrir sér að kjósa Samfylkinguna. Líkleg skýring sé sú að þar sé kona í forystu.
Ég var undrandi þegar Elva sagði þessi orð því ég er einmitt ein af þeim konum sem er búin að vera að pæla í því undanfarið að svissa aftur yfir á Samfylkinguna úr Vinstri grænum og skammast mín ekkert fyrir það.
Já og ástæðan er einmitt sú sem Elva talar um, að í Samfylkingunni er kona við stjórn og mér finnst hreinlega tími til komin að við kjósum fyrstu forsætisráðfrú Íslands.
Jafnrétti kynjanna hefur ekki enn komist á í þessi tólf ár sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við stjórn og mér finnst einfaldlega miklu líklegra að Samfylkingin standi sig betur í þeim málum en allir aðrir flokkar til samans.
Þar kemur tvennt til, í flokknum sjálfum er jafnrétti á milli kynjanna og síðast en ekki síst er formaðurinn sjálfur, kona, Ingibjörg Sólrún sem stjórnaði Reykjavíkurborg á röggsaman hátt í sínu borgarstjóraembætti fyrir nú utan það að vinna það afrek að velta Sjálfstæðisflokknum úr áratuga valdasessi í borginni.
Það er kominn tími til að kjósa konu sem 'forsætisráðfrú' Íslands, já og í raun að titla hana sem forsætisráðfrú en ekki forsætisráðherra.
Mér er alvara með það þó ég sé ekki viss um að sú ósk mín nái fram að ganga. Hvers vegna ekki að slá tvær flugur í einu höggi kjósa konu í þetta virðulega embætti og afnema í leiðinni karltengda einokun á nafni embættisins?
Síðast en ekki síst var ég áður dyggur stuðningsmaður Samfylkingarinnar en villtist af leið. Nú er ég aftur komin á rétta braut.
Kosningamálin hafa dottið dauð niður" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.5.2007 kl. 20:46 | Facebook
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Ansi er Tító orðinn öldurmannlegur, öldurkattlegur ætlaði ég að segja.
Sigurður Þór Guðjónsson, 9.5.2007 kl. 00:53
Já það er satt Nimbus, Tító er orðinn öldurkattalegur, erum við tvö bara ekki góð saman? Tító er meira að segja fyrir löngu kominn með brúna ellibletti á fallega bleika nebbann sinn. Svo er hann líka heilsuveill, það sést nú alveg á honum að hann er líka veikur á myndinni.
Svava frá Strandbergi , 9.5.2007 kl. 01:12
Hvort að Ingibjörg sé verðugur leiðtogi næstu ríkisstjórnar ætla ég ekki að dæma um. Hinsvegar finnst mér hún ekki hafa sýnt sömu leiðtogahæfileika eins og þegar hún var í forsvari fyrir Reykjavíkurlistann. Það er samt von mín að það verði möguleiki á að mynda nýja ríkisstjórn allavega án Framsóknarvofunnar
Ævar Rafn Kjartansson, 9.5.2007 kl. 03:28
Hæ sá að þú varst að spyrja um þetta...prófið um hvar maður stendur á pólitíkinni.
Ég skil vel að kjósendur séu svolítið áttavilltir....VG eru eitthvað svo bannanadi í allar áttir og mér hugnast ekki forrræðishyggja. Og ekki Sóley.
http://xhvad.bifrost.is/
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.5.2007 kl. 07:39
Það er ekki hægt að fyrirgefa Samfylkinguni og Ingibjörgu það þegar hún sem borgarstjóri ákvað að Reykjavíkurborg gengist í ábyrgðir fyrir byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Vinstri grænir voru þeir einu sem höfðu vit á því að mótmæla þeim gjörningi. Það má svo deila um frammistöðu Samfylkingarinnar í R-lista samstarfinu. Þó ég hafi stutt framboðið fram á síðasta kjörtímabilið þá sýndi það sig best að stjórnunarhættir Samfylkingarinnar minntu helst á stjórnunarhætti Sjálfstæðismanna. Það var því mikil blessun þegar VG sá sitt vænsta og sleit því "samstarfi"
Það er því merkilegt að hlaupa frá Vinstri grænum bara af því kerling er ekki formaður flokksins. Ég vill minna á að Katrín Jakobsdóttir varaformaður er mun efnilegri stjórnmálakona en Ingibjörg.
Magnús Bergsson, 9.5.2007 kl. 08:54
Alveg renna augu mín í kross! Er sem sagt græni diskógallinn ekki lengur smart. Sá blái úr sér genginn og the oldies hættir við framboð. Vá, hvað ég er heppin að kjósa ekki neinn, hvorki menn, konur né málefni! Þið eruð eruð flott saman á myndinni. Hefðarfrúin og Titó koss í kross
www.zordis.com, 9.5.2007 kl. 09:11
Þetta er nokkuð sem ég er hræddur við, er fólk að láta stjórnast af einhverri sýndarmennsku? Er svona einfallt að stýra skúrunni? að láta allt landið stjórnast af því einu hvort um konu eð karl sé að ræða, ég fatta ekki svona lagað, hvað um málefnin?
Ég búin að sjá svon skrif, um að fólk ætli að kjósa vegna þess að það er kona!?!?!?!
Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 09:37
Sæl Svava. Enn og aftur veldur þú mér vonbrigðum frænka mín. Satt að segja hélt ég að okkar ætt væri staðfastari en það, sem nú virðist orðið hjá þér Svava mín. Hélt þér að segja, að við hefðum verið búin að sannmælast um VG? En svona er lífið, ekkert nema vonbrigði fyrir mig. En þú gleymir alveg einu og það er, að nú líður óðum að kosningu á nýjum forseta á Bessastaði þar vildi ég sjá hana Sollu þína. Frá mínum bæjardyrum séð er enginn flokkur nógu róttækur og vinstrisinnaður á Íslandi í dag ekki einu sinni VG, samt verð ég að láta þá mér duga. Það er nú svo. Baráttukveðja frá mér og þínu fólki sem fæddist í Fagurhóli , en bjó við kröpp kjör í Landakoti Vestmannaeyjum undir ofurvaldi íhaldsins.
Þorkell Sigurjónsson, 9.5.2007 kl. 11:10
Hæ Svava
Jæja, ég er búin að senda Katrínu Snæhólm og Zordis e-mail og biðja þær
um að verða blog-vinkonur mínar þar sem mig langar að kynnast þeim.
Því ég ætla að taka þátt í sýningunni í Ráðhúsinu. Vonandi ertu bín að
segja þeim það. Viltu segja mér hvernig ég kemst inn á bloggið hjá Sóu og
Elínu Björku svo ég komist í samband við þær líka. Þú ættir að íhuga að
velja bleikan lit. Kveðja Katrín Níelsdóttir
Katrín Níelsdóttir (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 18:06
Ég er alveg sammála Örnu.
Kristín Katla Árnadóttir, 9.5.2007 kl. 18:54
Já það er satt hjá Örnu að lýðræðið snýst um það að hver og einn fái að kjósa eftir sinni sannfæringu.
Svava frá Strandbergi , 9.5.2007 kl. 20:44
Hæ Katrín Níels! Þú kemst inná bloggið hjá zou með því að leita í bloggleit að Gerði Rósu Gunnarsdóttur og svo leitarðu að Elínu Björk Guðbrandsdóttur.
Takk fyrir síðast Katrín mín. Það var reglulega gaman að heimsækja þig og lillemanninn Níels með bollukinnarnar. Myndirnar þínar eru líka flottar sem og öll önnur þín verk.
Svava frá Strandbergi , 9.5.2007 kl. 20:48
Þetta eru fréttir. Farðu samt vel með þig þrátt fyrir nýja ákvörðun.
Ragnar Bjarnason, 9.5.2007 kl. 22:58
No komment.
Ásdís Sigurðardóttir, 9.5.2007 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.