15.3.2007 | 02:12
Hringurinn, tíminn, ljósið og rýmið
Tíminn er eins og hringur
og alheimsins ljósakrans
ég ferðast í nútíð og framtíð
í fótspor hins hugsandi manns.
Ég hef hugsað mikið um hringinn, tímann, ljósið og rýmið.
Allt er afstætt líka tíminn. Hann er ekki sá sami allstaðar.
Við getum sett okkur tímann fyrir sjónir sem hring þar sem nútíð, framtíð og fortíð flæða í endalausu hringstreymi rýmisins.
Ef við sem erum stödd í nútíðinni viljum ferðast um tímann aftur til fortíðar er auðveldasta leiðin til þess að ná takmarkinu, að halda áfram göngu okkar í hring, tíma og rúms út úr nútíðinni og ferðast fram á við inn í framtíðina.
Þaðan höldum við göngu okkar áfram í hringfarvegi tímans þar til við loks komum aftan að sjálfum okkur í fortíðinni.
Ljósið skærasta, á að öllum líkindum uppsprettu sína í miðju hringsins eða er e.t.v. hringurinn sjálfur, ljósið?
Hugsanlega er hringurinn ekki eini hringurinn sem geymir tíma, ljós og rúm innan hringferils síns heldur er hann aðeins einn af óteljandi hringafjöld með mismunandi tíma, rúmi og ljósi.
þess vegna getur hið skæra ljós ekki verið eina ljósið í alrými hringanna. Það má jafnvel vel vera að það sé aðeins örlítill neisti frá öðru meira ljósi og hið meira ljós sé þá einungis glóð frá 'hinu skærasta ljósi allra ljósa'.
Á hinn bóginn getur líka hæglega komið á daginn að hringarnir séu blekking ein og tími og rúm, ljós og hringir séu alls ekki til, nema þá sem draumur í ríki hins æðsta ljóss.
Meginflokkur: Ljóð | Aukaflokkar: Bloggar, Trúmál og siðferði, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:28 | Facebook
Eldri færslur
- Desember 2014
- Apríl 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Ágúst 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Tenglar
http:www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson, texti eftir Kerst
- http://
- Halldór Guðjónsson lagasmiður og Kerst textahöf. Flott lög eftir Halldór Guðjónsson og textar eftir Kerst
- http://
http://www.showcaseyourmusic.com/KerstGudjonsson
Lög eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Kerst
http://www.diadems.no/
Ragdoll kettir. En ég er búin að ákveða að fá mér svoleiðis kött þegar Tító minn er farinn. Þessi Xantos sem er í x gotinu verður væntanlegur forfaðir nýja kisans mín
- Ragdoll kettir Ég ætla að fá afkomanda Xantosar þegar Tító er farinn frá mér.
Tenglar
- http://
- Halldór Guðjónsson sem gerði lagið við ljóðið mitt ´ Huggun' og fleiri ljóð eftir mig Hann er góður
- Ljóð á Tíu þúsund tregawött Framúrstefnuleg ljóð
- Myndir Katrínar K. vinkonu Flottar ljósmyndir
- Myndir Rebekka Frábær og fræg
- Ljóð.is
- Allra veðra von
Bloggvinir
- katrinsnaeholm
- zordis
- katlaa
- jonaa
- halkatla
- ormurormur
- martasmarta
- steina
- gudnyanna
- zoti
- ragjo
- diesel
- estersv
- alit
- toshiki
- kaffi
- svartfugl
- jenni-1001
- laufabraud
- stormsker
- svanurg
- guru
- ingo
- lindagisla
- bjorkv
- prakkarinn
- agny
- bergruniris
- raggibjarna
- maple123
- saethorhelgi
- vglilja
- johannbj
- partners
- vitinn
- zeriaph
- gudrunmagnea
- birtabeib
- iador
- gudrunfanney1
- ibb
- kolgrimur
- skjolid
- bene
- coke
- hux
- nonniblogg
- heringi
- hjolaferd
- amason
- joiragnars
- steinibriem
- rafdrottinn
- siggith
- vefritid
- ljosmyndarinn
- poppoli
- perlaoghvolparnir
- vitale
- skordalsbrynja
- lindalea
- bidda
- manisvans
- scorpio
- haddih
- gattin
- korntop
- brahim
- klarak
- laugatun
- konur
- panama
- sigurfang
- joklamus
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Einmitt og akkúrat!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 02:22
Ljósið er hluti af gosi sjálfsins, í tíma eða rúmi þá fylgir ljósið okkur til enda. Myrkur sem faðmar okkur þar til við vöknum á ný!
www.zordis.com, 15.3.2007 kl. 08:27
Ekkert er sem sýnist og því skyldi nóttin ekki geta verið ljósríki draumanna á meðan dagurinn er dimmur sem nótt vegna gjörða mannanna.
Svava frá Strandbergi , 15.3.2007 kl. 09:32
Hmmmm...gaman að hugsa! Þó það sé kominn dagur
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 12:51
Nákvæmlega --Ekkert er sem sýnist --! Æðislegt hjá þér, gaman að vita af þér.Takk dúlla
Vilborg Eggertsdóttir, 15.3.2007 kl. 12:54
Takk sömuleiðis Vilborg. Áhugavert að lesa á síðunni þinni það sem þú skrifar um our 'wounded ego'.
Svava frá Strandbergi , 15.3.2007 kl. 13:59
Háfleygur og góð færsla Guðný, ég oft ekki hætishót í sumum orðum hjá þér, það er alveg ljóst að ég þarf að fara í skólann aftur, nei annars, það var allt gert sem hægt var á sínum tíma,,, virkilega gaman að lesa færslur þínar.
Sigfús Sigurþórsson., 15.3.2007 kl. 14:34
ég er eitthvað blind í dag, er að reyna að finna verðin á myndunum þínum og kannski líka stærð. Geturðu bent mér á það.
Ásdís Sigurðardóttir, 15.3.2007 kl. 14:48
Sæl Ásdís.
Ég veit ekki hvernig mynd þú ert að hugsa um en ef þú smellir á myndina af mér sérðu það verð sem ég tek fyrir portrett myndir, málaðar með vatnslitum eða teiknaðar, eftir ljósm. af fólki og dýrum. Þessar myndir eru á stærð við A3
Ég hef bara gefið upp verð á einni mynd sem ég mála eftir eigin höfði það er myndin 'Huldufólk á fjöllum' sem er á annarri síðu. Hún er innrömmuð og er myndin sjálf fyrir utan karton utan um hana og ramma, á stærð við A3 og er hún máluð með vatnslitum. Athugaðu að það sést ekki öll myndin á bloggsíðunni. Verðið á henni sérðu í einu kommentinu við myndina.
'Gljúfrið'vatnslitamynd sést ekki heldur öll á síðunni. Hún er á svipuðu verði og Huldufólkið en er aðeins stærri. Manndómsbrekkan er lítil mynd eða 30 sinnum 31 en virkar stærri með hvítu kartoni utan um og í ramma, en hún selst bara í rammanum. Sú mynd er aðeins ódýrari en hinar. Blómadýrðin og Díonýsus og Bakkynjurnar eru ekki til sölu fyrr en ég er búin að mála þær í olíu og þá verða þær nokkuð stórar og dýrar. Frummyndirnar af þeim á netinu sem eru í þrykki og bleki ætla ég að selja þegar ég er búin að mála eftir þeim í olíu og verða þær allmiklu ódýrari en olíumyndirnar.
Svo er ég með stærri myndir í vinnslu.
Annars er þér velkomið að senda frekari fyrirspurnir á svavag@mi.is
Svava frá Strandbergi , 15.3.2007 kl. 15:51
Hringur, ljós, tími, afstæðar hugmyndir, er þetta ekki það sem bærist í huga okkar allra þó svo sumir geri sér ekki alveg grein fyrir því hvert hugsanir þeirra leiða þá, hugur og heili eru svo merkileg fyrirbæri að það er gaman að reyna að setja sig útfyrir og reyna að horfa inn.
Pétur Þór Jónsson, 16.3.2007 kl. 00:40
ha?
nerdumdigitalis (IP-tala skráð) 16.3.2007 kl. 01:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.