Leita í fréttum mbl.is

Dimmuborgir eða Hljóðaklettar? Vatnslitir

scan0004 small

Ég veit ekki hvort ég á að kalla þessa mynd Dimmuborgir í aftansól eða Hljóðakletta í kvöldsól. Ég settist niður og málaði og þessi mynd kom á blaðið. Hún minnir mig bæði á Dimmuborgir og Hljóðakletta. Ég hef komið á báða staðina, að vísu með tuga ára millibili, en báðir finnst mér þeir eiga það sameiginlegt að vera bæði dularfullir og seiðandi. Það er stundum svona að það er eins og myndin ákveði sjálf afhverju hún verður þegar ég sest niður til að mála og oft birtist eitthvað allt annað á blaðinu en ég ætlaði mér í fyrstu.

Hvort nafnið finnst ykkur hæfa henni betur, kannski hvorugt? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Falleg mynd , ég mundi Kalla hana .Hljóðakletta.

Kristín Katla Árnadóttir, 2.6.2007 kl. 10:06

2 Smámynd: www.zordis.com

Ég ætla að styðja nafgiftina hljóðakletta!  Falleg litablanda!

www.zordis.com, 2.6.2007 kl. 10:52

3 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Enn ein glæsileg mynd frá þér.

Jens Sigurjónsson, 2.6.2007 kl. 11:59

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er í Dimmuborgum, veit ekki afhverju finnst það bara. Þekki báða staði vel.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.6.2007 kl. 14:34

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Ásdís, veistu mér finnst líka endilega að þetta séu frekar Dimmuborgir. Dimmuborgir eru líka svo dulúðugt nafn á mynd.

Svava frá Strandbergi , 2.6.2007 kl. 14:39

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Bæði eru þetta falleg nöfn á fallegri mynd.

Jóna Á. Gísladóttir, 2.6.2007 kl. 23:04

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir hjálpina, ætla að kalla hana Dimmuborgir.

Svava frá Strandbergi , 3.6.2007 kl. 01:01

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Mætti það ekki vera Hljóðuklettar?

Sigfús Sigurþórsson., 3.6.2007 kl. 02:00

9 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Mér kom í hug nafnið tröllaborgir.  Fannst ég sjá tröll í hverjum drætti.

Ester Sveinbjarnardóttir, 3.6.2007 kl. 02:21

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jú þetta eru allt ágætt nöfn Hljóðuklettar og Tröllaborgir eru flott nöfn líka.

Svava frá Strandbergi , 3.6.2007 kl. 02:24

11 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Hæ hæ takk fyrir flotta bloggsíðu Guðný Svava mín. Þetta er gullfalleg mynd hún minnti mig á Hljóðakletta frekar en Dimmuborgir.

Kveðja Ása Hildur

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 3.6.2007 kl. 11:17

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Ása mín, ég er orðin snarrugluð og veit ekkert hvað ég á að láta myndina heita. Hugsa að ég kalli hana bara  ' Það sem þú sérð'

Svava frá Strandbergi , 3.6.2007 kl. 19:32

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ertu hin eina sanna Ása Hildur sem ég þekkti þegar ég kenndi í Fjölmennt?

Svava frá Strandbergi , 3.6.2007 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband