Leita í fréttum mbl.is

þyngra en tárum taki

er að meðtaka svona frétt, en ég táraðist þó. En mér er spurn, hvar er móðirin?
Er hún kannski samsek föðurnum þar sem hún horfði á hann misnota dæturnar? Eða er hún e.t.v.svo gjörsamlega eyðilagt fórnarlamb mannsins síns og barnsföður að hún gat ekki meira og flýði þess vegna óbærilegar aðstæður?
Var ekki einu sinni fær um að taka telpurnar sínar með sér til þess að bjarga þeim frá sömu örlögum og hún sjálf hafði hlotið. Var svo skemmd að móðureðlið sem er eitt það sterkasta afl sem til er í veröldinni var dáið eins og sál hennar sjálfrar.

Það kom ekki fram í fréttinni hvað gert verður til þess að bjarga sálarheill þessarra tveggja ungu ógæfusömu telpna. Kannski skiptir það ekki máli héðan af. Líf þeirra var eyðilagt hvort eð er áður en það var í rauninni byrjað. 
Það er heldur ekki hægt að gera neitt það fyrir þessar telpur sem getur að fullu bætt þeim skaðann úr þessu. 

Það skiptir því í raun litlu máli fyrir þær hversu langa fangelsdóma þau ómenni hlutu sem léku sér að því að leggja líf þeirra í rúst.
En ég efast þó um að sú staðreynd sé ástæðan fyrir þessum vægu dómum.
Nei því miður er ástæðan sú sama og ætíð í svona málum, algjört skilnings og skeytingarleysi dómsvalda gagnvart morðum á sálum ungra barna og kvenna.

Þyngri refsidómar skipta fyrst og fremst máli að því leyti að þeir myndu ef að líkum lætur koma í veg fyrir tíðni svo hryllilegra afbrota sem þessarra og einnig verða sakamönnunum makleg málagjöld.


mbl.is Segir unga dóttur hafa tekið við starfi vændiskonu af móður sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ég ætla bara ekkert að lesa þessa frétt. Bara stinga höfðinu í sandinn.

gerður rósa gunnarsdóttir, 20.2.2007 kl. 19:04

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er ekki sammála þessum svartsýna tóni um algjöra eyðileggingu lífs. Thelma Ásdísarsdóttir hefur sýnt það og sannað að það er hægt að ná sér eftir ótrúlegustu hremmingar ef unnið er með málin. Við getum bara ekki lifað án þss að trúa því. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.2.2007 kl. 00:42

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ok. Sigurður,  það er rétt að ég er nokkuð svartsýn um þessar telpur þó vona ég auðvitað að þær geti unnið úr sínum málum með góðum stuðningi.

En mig langar að benda þér á að  Thelma Ásdísardóttir átti eða á móður sem þótti vænt um hana en ekki þessar telpur. 

Svava frá Strandbergi , 22.2.2007 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband