Leita í fréttum mbl.is

Við verðum víst að bíta í það súra epli að Ísland tilheyrir nú í raun þriðja heiminum

sem eitt allra minnsta þróunarríki sem til er í þessari vesælu veröld. Best væri að snúa  sér aftur til fyrri lifnaðarhátta Þó  í  aðeins breyttri mynd væri. Taka t.d.  þarfasta þjóninn inn á göturnar í staðinn fyrir bílana, nú eða nota bara reiðhjólin. Salta ket og bútungfisk niður í tunnur, súrsa slátur, fara til fjalla að tína fjallagrös. Og  niðri í fjöru má svo finna fínasta krækling og söl.

Við þurfum líka að endurnýta fötin okkar í stað þess að kaupa alltaf ný,  'venda' gömlu kápunum og frökkunum þegar þeir fara að slitna, breyta notuðu kjólunum í nýja með smábreytingum, byrja aftur að bæta sokkana okkar, í stað þess að henda þeim um leið og það kemur gat á þá og svo má lengi telja. Einnig má taka aftur upp bótatískuna með því að bæta slitin föt með skrautlegum bótum eins og tíðkaðist hér áður fyrr.

Við þurfum að herða sultarólina og nota peningana sem við eigum eftir, en ekki kortahelv.... Þó krónan sé orðin  lítils virði veit þá maður alla vega betur hvað haft er  í höndunum ef notaðir eru peningar í stað  bölvað plastsins.

Lærum svo af reynslunni og látum ekki glepjast af gylliboðum bankanna og annarra fyrritækja sem vildu endilega lána sem flestum 100% lán til þess við gætum keypt  allt það sem okkur var talið trú um að við þyrftum að eignast, til þess að geta verið hamingjusöm.
Kapítalisminn er genginn sér til húðar og hann dregur hana alblóðuga á eftir sér eins og Þorgeirsboli sjálfur, illræmdasti draugur Íslandssögunnar.
Það er komin tími til að kveða þennan draug niður í eitt skipti fyrir öll og það þó fyrr hefði verið.


mbl.is Ísland flautað úr leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Alveg er ég sammála öllu Svava þarna sem þú segir. Enda eru flestir að taka slátur líka núna sem er mikill sparnaður.

Aprílrós, 5.10.2008 kl. 01:56

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sammála þér Guðný, mér finnst líka billegt að kenna krónunni um lélega efnahagsstjórnun.

Sigurður Þórðarson, 5.10.2008 kl. 21:09

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

var einmitt að blogga um þessi mál !

takk, og hafðu fallegan dag.

Kærleikur til alls lífs og þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 12:25

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús og kærleikur til ykkar allra í kreppunni.

Svava frá Strandbergi , 7.10.2008 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband