Leita í fréttum mbl.is

Það kom í bakið á mér

að hafa gengið svona langa leið á Menningarnótt, eins og ég montaði mig svo mikið  af að hafa gert. Ég er búin að liggja eins og skataí í allan dag, til skiptis  með íssgel poka eða hitapoka,  við mjóhrygginn og dragnast um draghölt þess á milli. Ég tók tvær parkódín forte í dag, en bara eina í einu og komst í algjört rúss af þeim, enda tek ég þær ekki nema í neyð.
Ég hef ekkert komist út í búð í tvo daga svo ég hef bara lifað á brauði og tei. Það er líka svo langt að fara til að komast í verslun,  því öðlingarnir Jóhannes og Jón Ásgeir lögðu niður Bónus verslunina í hverfinu. Hún var bara í tveggja mínútna göngufæri frá húsinu sem ég bý í. Nú þarf maður að fara alla leið upp í Hólagarð til þess að versla
Þegar ég lá þarna í rúminu í dag,  datt mér í hug að prófa að liðka mig í bakinu með því að lyfta fótunum upp til skiptis.  En mikið svakalega brá mér þegar ég lyfti fyrst upp öðrum fætinum, því það brakaði og brast  í hryggjarliðunum, niður eftir öllu bakinu. En ég hélt samt áfram þó ég byggist við því á hverri stundu að hryggsúlan hrykki í sundur með háum hvelli. En þessar æfingar báru þann árangur að ég gat skreiðst fram úr rúminu og gefið hommunum að éta og  svo náttúrulega bloggað líka.
En það var fínt að það var rigning í dag, því þá er svo gott að liggja í rúminu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

...það var kalsalegt í dag - eg er ennnn að reyn a að ná ur mer hrollinum, fer e likelga ekki fyrr en með heitu baði og grænu te 

Marta B Helgadóttir, 21.8.2007 kl. 21:11

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, það er notalegt að liggja í heitu baði og sötra te.

Svava frá Strandbergi , 21.8.2007 kl. 21:46

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi elskan þú alveg eins og ég  reyndu að jafna þig slappaðu af ég held að þu gerir meira  en þú getur En þú ert dugleg.,

Kristín Katla Árnadóttir, 21.8.2007 kl. 22:18

4 Smámynd: www.zordis.com

Er ekki Nimbus á ferðinni ef í búinu verður tómt ? 

Æj dúllan mín, þetta eru ekki góðar fréttir af þér ..... vona að þér líði betur og vertu dugleg að gera æfingar, jafnvel að stunda sund og heita potta! 

Smúts á sjúklinginn!

www.zordis.com, 21.8.2007 kl. 22:41

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Eins og mér datt í hug, maður fær það alltaf borgað þegar maður ber sig mannalega og reynir að vera með á mannamótum.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.8.2007 kl. 22:48

6 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Æ æ dúllan mín.

Vona að þetta gangi yfir fljótt.

Slökun og góð tónlist er góð við verkjum. Mun betri ef Parkóhelvítið.

Knús knús

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:04

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús til ykkar allra dúllurnar mínar.

Svava frá Strandbergi , 21.8.2007 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband